Islande-France - 01.11.1947, Page 7
TSLANDE - FRANCE
5
Nú eru í víðri veröld allt að 700
félagseiningar í Alliance frangaise.
Margar þeirra eru ungar og athafna-
samar, aðrar eru smám saman að
endurnýja starfsaðferðir sínar og
starfsvenjur. I háskólum, mennta-
skólum, almennum skólum og hag-
nýtum námskeiðum í frönsku á veg-
um Alliance franyaise er meir en
40.000 nemendum og stúdentum veitt
kennsla í franskri tungu. Á einu
starfsári, veturinn 1946—47, fóru
77 fyrirlesarar frá París á vorum
vegum til ýmissa landa, 21 að tölu.
En Alliance frangaiset einkennist
miklu fremur af anda sínum en vexti.
Alliance frangaise hyggist á
frjálsu starfi. 1 það félag ganga menn
að eigin vild. Þar liittast þeir allir,
sem Frakklandi unna, einkanlega
menningu ])ess og þó um fram allt
tungu. Alliance frangaise, sem ó-
háð er öllum trúflokkum og stjórn-
málaskoðunum, forhoðar engan, enda
væri eigi með góðri samvizku unnt
að hannfæra þann félagsskap.
Alliance frangaise er ekki áróð-
ursfélag. 1 fyrsta lagi af því, að þetta
félag er franskt, og Frakkland hef-
ur megnan ýmugust á áróðri, svo
mjög sem það hefur fengið að kenna
á honum. I öðru lagi álítum vér og
(ef til vill með nokkru oflæti), að
eigi maður í fórum sínum andlegan
fjársjóð jafngildan og andlegan fjár-
sjóð Frakklands, sé óþarft að gorta
af honum óhóflega eða þröngva hon-
um upp á fólk með tuddaskap eða
slægvizku. Hið fagra orð Alliance í
vorri fornu tungu táknar vináttu.
. . . Vér skynjum öll glöggt, að það
getur ekki táknað annað.
Alliance frangaise Islands er oss
kært, eins og oss eru kærar allar
dætur vorar. Aðeins að vegalengd
er það oss fjarri. Vitanlega er þetta
félag ekki svo vel sett, að því gefist
oft tækifæri til að taka á móti full-
trúum frá oss, en vér erum þó stöð-
ugt nálægir því. Eigum vér hér við
áhugasama sendikennara, sem oss
auðnaðist að útvega.
Fjölmörg félög í Alliance fran-
gaise gefa að öllum jafnaði út tímarit
eða skýrslu. Ber þar til að nefna
félögin í Danmörku, Mexico, Banda-
ríkjunum, Perú, Indlandi, Indókína
og Urúguay. Nú hefir hið litla en
rausnarlega félag á Islandi hafizt
handa um útgáfu tímarits, sem helg-
að er fransk-íslenzkri menningu.
Vér óskum tímariti þessu langra
lífdaga og getum vér fullvissað yður
um ])að, þér íslenzku vinir, að þar
sem vér erum, eigið þér bæði vísa
áhugasama lesendur og vini, sem
styðja munu yður í hinni fögru við-
leitni yðar. Marc Blancpain.
ECOLE PRATIQUE DE “L’ALLIANCE FRANCJAISE”
101, BOUL, RASPAIL — PARIS (53e année)
Enseignement de la langue et de la Gours de phonétique théorique et
littérature francaises aux Etrangers. pratique.
Cours de graimnaire et de langue. Conférences sur la littérature coq-
Conversation. temporaine.