Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 49
fulltrúi Sameíningar-
flokks alþýðu — sósíal-
istaflokksins — á þing.
★
23. sept. s.l. var Hólm-
fríður Helgadóttir vara-
form. Félags afgreiðslu-
stúlkna í brauða- og
mjólkurbúðum (ASB)
sextug. Hún á langa og
dáðríka starfssögu að
baki innan verkalýðs-
samtakanna. Um hana
segir Guðrún Finns-
dóttir form. ASB, að í
þessu stéttarfélagi hafi
Hólmfríður starfað sam-
fleytt í 22 ár, verið
varaformaður s.l. 12 ár-
in, mætt sem fulltrúi fé-
lagsins á sambands-
þingum ASÍ, starfað í
mæðrastyrksnefnd o. s.
frv. Er hér þó ekki
nema lítið talið af störf-
um, sem Hólmfríður
hefur rækt á sviði fé-
lagsmála af viður-
kenndri prýði, en samt
nóg til þess að jafnvel
ókunnugur getur óhik-
að dregið þar af þá á-
lyktun, að hér sé um af-
bragðs starfskraft að
ræða. Um þetta geta þó
kunnugir bezt dæmt.
Enda vitnisburður
þeirra ótvíræður með
því að hafa enaurfalið
henni trúnaðarstörf svo
oft sem raun er á. Það
er ósk vor og von að
stéttarsamtök verka-
lýðsins megi sem lengst
njóta starfskrafta þess-
arar ágætu íorystu-
konu. +
30. nóvember s.l. var
ísleifur Högnason fram-
kvstj. sextugur. ísleifur
á að baki langa og
glæsilega sögu í ís-
lenzkri verkalýðshreyf-
ingu. Hann var aðeins
26 ára gamall þegar
verkamenn í Vest-
mannaeyjum fólu hon-
um framkvæmdastjóra-
starf fyrir nýstofnuðum
verzlunarsamtökUm sín-
um, Kaupfélaginu Dríf-
anda. En þegar útgerð-
armenn gerðust um of
ráðríkir í félaginu sagði
ísleifur lausu starfi sínu
hjá félaginu og gekkst
fyrir stofnun Kaupfé-
lags verkamanna og
veitti því forstöðu þar
til hann flutti til
Reykjavikur og tók við
forstjórastöðu í KRON.
Þegar ísleifur lét af því
starfi 1. apríl 1954 hafði
hann gegnt forstjóra-
starfi í neytendasamtök-
um alþýðunnar í sam-
fleytt 33 ár. — Á meðan
ísleifur var í Vest-
mannaeyjum var hann
aðalforystumaður
Kommúnistaflokksins
og síðar Sósíalista-
flokksins þar. Hann átti
jafnan sæti í bæjar-
stjórn í Eyjum sem full-
trúi verkamanna, var
einn af þremur mönn-
um, þeim fyrstu, er
Kommúnistaflokkur ís -
lands fékk kosna á Al-
þing 1937 og var kosinn
tvisvar síðar á þing sem
fulltrúi Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíal-
istaflokksins.
-k
20. sept. s.l. var Rós-
inkranz ívarsson 75 ára.
Hann er Barðstrending-
Framh. á bls. 215.
VINNAN og verhalýSurinn
211