Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Page 8

Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Page 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2024 Eldsnemma sl. sunnudagsmorgunn voru 82 spenntir krakkar úr FH mættir á bílastæðið í Kaplakrika. Þetta voru krakkar úr handknatt­ leiksdeild félagsins sem voru að fara til keppni á alþjóða handboltamótinu Partille Cup í Gautaborg. Voru þau í 4. og 5. flokki félagsins, bæði drengir og stúlkur en alls sendir FH níu lið til keppni. Alls taka 43 íslensk lið þátt í keppninni. Meðal þeirra eru tvö lið stúlkna úr Haukum. U­16 landslið kvenna keppir fyrir hönd Íslands í sérstökum landsliðsriðli og þar á FH einn fulltrúa, Dagnýju Þorgilsdóttur og Haukar þrjá, þær Ebbu Gurrý Ægisdóttur, Hafdísi Helgu Pétursdóttur og Roksana Jaros. Aðeins Svíþjóð, Danmörk og Noregur senda fleiri lið til keppni, 600 sænsk lið keppa, 184 norsk og 190 dönsk en alls senda 38 lönd lið til keppni og eru keppendur alls 1.306 talsins og leika 4.492 leiki. Að sögn fulltrúa FH verður að teljast að strákarnir í 5. flokki séu líklegir til afreka enda unnu þeir Norden Cup í vetur með glæsibrag ásamt því að vera Íslands­ meistarar í sínum flokki. En markmið flestra er þó að hafa gaman að og njóta. Áttatíu og tvö fóru á Partille Cup 38 þjóðir keppa á mótinu og FH sendir 9 lið til keppni Ungu handboltakrakkarnir úr FH spenntir þegar lagt var af stað á hið risa stóra Partille Cup handboltamótið Lj ós m .: Ó m ar S næ va r F rið rik ss on Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 17. júní sl. sæmdi forseti Íslands 16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, þar af tveimur Hafnfirðingum. Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og sagnfræðingur, fékk riddarakross fyr ir rannsóknir, miðlun og varðveislu menn­ ingar tengda íslenskum þjóð búningum. Guðrún Hildur rekur fyrir tækið Ann ríki, búningar og skart, ásamt eigin manni sínum og hefur haldið fjöl mörg námskeið í gerð íslenskra þjóð búninga. Daginn sem hún fékk fálkaorðuna stóð yfir sýning á hluta að safnkosti hennar í Apótekinu í Hafnarborg en margir undruðust fráveru Hildar þegar fólk í þjóðbúningum safnaðist saman fyrir utan Hafnarborg til myndatöku. Það skýrðist svo síðar að Hildur þurfti að bregða sér til Bessastaða í miðju annríki sínu. Jóna Dóra Karlsdóttir, stofn andi og fyrrverandi formaður Nýrrar dögunar, riddarakross fyrir frum kvöðulsstarf til stuðnings syrgjendum og fyrir að stuðla að opinni umræðu um sorg og sorgar­ viðbrögð. Jóna Dóra er fv. bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Fengu Fálkaorðuna Guðrún Hildur og Jóna Dóra fengu fálkaorðuna Guðrún Hildur Rosinkjær í glæsilegum íslenskum þjóðbúningi. Jóna Dóra Karlsdóttir ásamt forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni. Lj ós m .: Fo rs et ae m bæ tti ð Lj ós m .: G uð ni G ís la so n v/Kaldárselsveg 555 6455 - 894 1268 www.grodrarstod.is Tré og runnar í garðinn þinn Daði til Eininga verksmiðjunnar Daði Hafþórsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá Eininga verksmiðjunni ehf. á Koparhellu. Tók hann við starfinu af Guðbjörgu Sæunni Friðriksdóttur sem hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjá Set ehf. á Selfossi. Daði, sem er Hafnfirðingur frá Siglu firði, kemur frá Orku náttúrunnar þar sem hann hefur síðustu ár verið forstöðu­ maður virkjanareksturs. Þar áður var hann framkvæmdastjóri framleiðslusvið Fóð ur blöndunnar. Hann er með B.Sc. gráðu í vöru stjórnun frá Tækniháskólanum og Black Belt próf á vegum RTA í Lean – Six Sigma verkefnastjórnun. Hann innleiddi einmitt þá aðferða­ fræði þegar hann vann hjá Rio Tinto Alcan. Maki Daða er Hanna María Bjarnadóttir.

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.