Stjörnur - 01.07.1953, Qupperneq 4
Nokkru scinna tókust samningar
rnilli hennar o«; AVarner Bros eða
þrem dös;uin eftir að reynslumynd
var tekin af lienni. Svo til samstund-
is tók hún að leika í kvikmyndinni
„ROMANCE ON THE HIGH
SEAS‘% ,,Tónatöfrar“.
Myndir hennar eru nú orðnar 15
talsins, þar með talin sú scinasta,
,,CaIamity Jane“, sem kvað vera
álcaflega skemmtileg: ckki síður en
fyrri myndirnar. Hún gerist í villta
vestrinu í gamla dag:a, og inörsum
kann nú að líka það illa, að Dor-
is skuli ekki syngja eitt einasta
iag í myndinni.
Fjórar af myndum h'ennar hafa
komið hingað til Reykjavíkur á
3. apríl 1951 gekk hún í heilagt
hjónaband með umboðsmanni sín-
um, Marty Melcher. I>au búa nú í
San Fernandodal í yndislegu húsi,
sem hún er sífellt að fegra og
betruinbæta. Hjónaband þeirra og
heimilislíf þykir með afbrigðum
farsælt og hamingjusamt.
Doris hefur sagt um sjálfa sig, að
hún sé blátt áfram stúlka, sem
hafi yndi af að syngja og bugsa
um heimilið sitt. En hún er miklu
meira. Hún hefur yndi af að gera
aðra hamingjusania og glaðvær
lífsheimspeki hennar birtist okkur
æ oían í æ í kvikmyndum hennar.
D(*ris Day hefur megnustu óbeit
á símanum og anzar lioniim varla
nokkurn tímann. Eftirlætisleikar-
ar hennar eru Ingrid Bergman,
Henry Fonda, Humphrey Bogart
og Bette Davis. Hún kann ekki að
leika á neitt hljóðfæri. Dálæti hef-
ur hún á fataburði og ilmvötnum.
Hún fær sér langar gönguferðir
og gætir þess að sofa nóg. Hún er
lítið hrifin af næturklúbbum og
sækir þá ekki. Hún kann að mat-
reiða, en leiðist það. Hoekey og
knattleikur eru eftirlætisíþróttir
liennar. Rautt er hennar uppáhalds-
litur. í tómstundum sínum prjónar
hún og safnar plötum. Mamma
hennar svarar bréfunum fyrir
hana. Hún þverneitar því að liún
sé hjátrúarfull. Biblían er eftirlæt-
is-lestrarefni hennar.
i