Stjörnur - 01.07.1953, Page 11

Stjörnur - 01.07.1953, Page 11
| ÍSLENZKIR I DANSLAGATEXTAR É3 * SJÓMANNAVALS Lag: Svavar Benediktsson. Ljóð: Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Það gefur á bátinn við Grænland og gustar um sigluna kalt, en togarasjómanni tamast það.er að tala sem minnst um það allt. En fugli, sem flýgur í austur er fylgt yfir hafið með þrá, og vestfirzkur jökull, sem heilsar við Horn í hylling, með sólroðna brá, segir velkominn heim, segir velkominn heim. Þau verma hin þögulu orð. Sértu velkominn heim, yfir hafið og helm, þá er hlegið við störfln um borð. En geigþungt er brimlð við Grænland og gista það kýs ekki neinn. Hvern varðar um draum þess og vonir og þrá, sem vakir þar hljóður og einn. En handan við kólguna kalda býr kona, sem fagnar í nótt og raular við bláeygan sofandi son og systur hans, þaggandi hljótt: Sértu velkominn heim, sértu velkominn heim, — að vestan er siglt gegnum is. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim. Og Hornbjarg úr djúplnu ris. ÆFINTÍR Lag og ljóð: Steingrímur Sigfússon. Vona minna vermireitur verður alltaf kærleikseldur þinn, á meðan líf í brjósti bærist, blóð í mínum æðum hrærist. Ástarblossinn unaðsheitur enn við mínar hjartarætur býr. Minning þína ég geymi, mig í sælu dreymi lifs míns eina æfintýr. Viðlag: Ást mín eina, ó hve ég þrái aftur að finna ilm vara þinna. Geislaregni gæfan þig strái, lífs míns ljómi, lofnar sómi, ljúfa æfintýr. Nokkur laganna úr Danslagakeppni S. K.T. hafa náð geysilegum vinsældum um land allt. STJÖRNUR ætla því að byrja þennan danslagatexta-þátt sinn með því að birta all-mörg ljóð við vinsælustu lögin. Auk textanna við verðlaunalögin, birtast hér nokkrir aðrir, sem oss fund- ust vel þess virði að koma fyrir almenn- ings sjónir. Stjörnur 9

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.