Bændablaðið - 15.08.2024, Qupperneq 7

Bændablaðið - 15.08.2024, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Í síðasta tölublaði Bændablaðsins, nú fyrir sumarfrí starfsmanna, slógum við á létta strengi og ákváðum að setja upp einhvers konar stefnumótasíðu hér á blaðsíðu sjö. Ekki er annað hægt að segja en áhuginn hafi verið gífurlegur. Færri komust að en vildu í hóp þeirra útvöldu, en fiðringur fór um landið þegar við hófum úthringingar fyrir efnið. Eftir að blaðið fór í dreifingu var eins og við manninn mælt að ákafur skjálfti hríslaðist um landsmenn. Fjölmiðlar gripu efnið, bæði útvarp og blöð og vakti það mikla lukku. Til viðbótar fengu starfsmenn Bændablaðsins sendar ýmiss konar fyrirspurnir um hina lukkulegu aðila, auk þess sem mikill áhugi var fyrir að fá að komast að í næsta Bænder. En nú velta áhugasamir lesendur væntanlega fyrir sér upplifun þeirra sem tóku þátt í Bændernum svo og hvort ástalíf þeirra hafi tekið stakkaskiptum. Svarið við því er auðvitað ekki á eina vegu, en öll áttu þau það sameiginlegt að mæla hundrað prósent með því að taka þátt – ef ekki væri fyrir annað en skemmtanagildið. Aðspurð sögðu þau mörg hver ættingja og vini hafa haft sérstaklega gaman af, en einnig gæfu sig á tal við þau ókunnugir sem glottu við tönn og /eða dáðust að þeim á einn hátt eða annan. Nýjar vinabeiðnir streymdu til sumra viðmælenda, einn var boðaður í viðtal hjá morgun- útvarpi Rásar 2 og annar fékk bónorð frá Bandaríkjamanni. Sá þriðji sem rætt var við sagði heilt yfir lítið nýtt að gerast í ástamálunum en vill benda Viðskiptablaðinu á að það var nær eini fjölmiðillinn sem ekki hampaði Bændernum. Hefur það kannski bak við eyrað þegar Bænder birtist aftur á síðum blaðsins. Ekki er áætlað að halda stefnumótasíðu Bændablaðsins sem reglulegum dálki, en auglýsum auðvitað ef við tökum upp þráðinn. /sp Ps. Farið var rangt með nafn Theodóru Drafnar, hún er Skarphéðinsdóttir, ekki Baldvinsdóttir. Guðmundur Skúli Þorgeirsson fær hér stuðning og aðhlynningu eftir sundafrekið hjá björgunarsveitarstúlkunni Sæunni Líf Christophsdóttur en Guðmundur Skúli hefur synt tvisvar í klauffar Sæunnar og farið létt með. Hólmfríður Bóasdóttir, hótelstóri í Holt Inn, er stolt þegar hún kemur í land, Hrönn ásamt bræðrunum Jóhanni og Jóni Ágústi taka á móti henni en sjóriða hrjáir sundmenn yfirleitt þegar stigið er upp úr sjónum. Vísnahornið Flestir komnir yfir miðjan aldur muna Stefán Jónsson fréttamann. Hnyttinn var hann og hlífði fáum. Þessa fékk fyrrum dagskrárstjóri sjónvarpsins, Emil Björnsson: Séra Emil giftir og grefur glatt er í himnaranninum. Eru á ferli úlfur og refur í einum og sama manninum. Þegar mynd birtist af Bjarna Ben., þ.e. þeim eldri, sitjandi á úlfalda, orti Stefán fréttamaður: Áður voru ær og kýr, yndi landsins barna. En nú er komið kameldýr í klofið á honum Bjarna. Um Seltirning sagði hann: Seltirningurinn sefur fast í sínu bóli. Ekki er þetta um hann last, en ólíkt hóli. Stefán var gráglettinn sem hefur kannski erfst frá honum. Orti hann um starfsmann RÚV sem féll úr söðli og hlaut höfuðskaða. Óttast var um blæðingu á heila: Um höfuðbrotið aðeins eitt, ég inna vil. Það blæðir aldrei inn á neitt, sem ekki´er til Ekki þarf að kynna Þórarin Eldjárn. Hér er ein úr Disneyrímum: Nemur löndin Andrés önd, argvítugur steggur. Dauða hönd á dal og strönd Disneyvélin leggur. Alltaf er stutt í gamansemi Þórarins: Niðri í bæ var gömul geit sem gekk þar teit í leit að beit. Fann hún grænan gróðurreit, grasið sleit og beit spikfeit. Löggan kom í hamsi heit; -Heyrðu geit, þú ert úr sveit. Geitin sagði sár:- Ég veit. Síðasta stráið beit. Og skeit. Úr Gamanvísnabókinni: Ef menn hafa ekki neitt umtalsvert að segja þá er nú svona yfirleitt ágætt ráð að þegja. Karl Sigtryggsson verkamaður á Húsavík orti: Argir knýja vindar vog, velta skýjaborgir. Margir flýja undan og elta nýjar sorgir. Egill Jónasson á Húsavík var þekktur og snjall hagyrðingur. Hann mun hafa sneitt að kvensemi Karls Sigtryggssonar í þessari: Að þér lið var oft á sjó, allra sviða manndóm barstu, þóttir iðinn aflakló, en aldrei miðaglöggur varstu. Miklir jarðskjálftar urðu á fimmta áratug síðustu aldar á Húsavík. Níu mánuðum síðar fæddust óvenju mörg börn: Allt er í lagi okkur hjá, eignast börnin hver sem getur. Loksins bregður ljósi á, landskjálftana í fyrravetur. Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610@gmail.com Hefð er fyrir því að synt sé til heiðurs afrekskúnni Sæunni yfir Önundarfjörð í ágúst og árið 2024 er engin undantekning. Um sundið og Sæunni er ítarlega fjallað í 16. tölublaði Bændablaðsins í fyrra og afrek hennar er þekkt. Í stuttu máli stóð til að slátra kúnni Hörpu í sláturhúsinu á Flateyri í október 1987, það þóttu henni vond tíðindi og óásættanleg, hún lék því á alla, sleit sig lausa og synti sér til lífs þvert yfir Önundarfjörð. Þar var hún tekin í fjós á Kirkjubóli í Valþjófsdal og gegndi hún nafninu Sæunn upp frá því. Núna verður synt í klauffar hennar þann 31. ágúst og í anda Sæunnar verður fyllsta öryggis gætt og til þess að svo megi verða þarf að leita til björgunarsveita og kajakræðara á svæðinu til að fylgja afreksfólkinu yfir fjörðinn, um það bil 2,5 km og stundum í ólgusjó. / bs Sæunn setur öryggið á oddinn Ívar Kristjánsson, öryggisstjóri og stjórnarmaður í Sæunnarsundi, mundar hér sjónaukann og hefur vökult auga á öryggisgæslu sundsins. Honum á vinstri hönd er Bernharður Guðmundsson frá Kirkjubóli í Valþjófsdal, sonur Sigríðar og Guðmundar Steinars, sem tóku á móti Sæunni í fjörunni í Valþjófsdal um árið. Bernharður er eins og Ívar í stjórn Sæunnarsunds og forsprakki þessa árlega viðburðar. Myndir / bs Ef skip Landhelgisgæslunnar er á svæðinu renna þau inn fjörðinn og eru til taks ef á þarf að halda. Jón Ágúst, stjórnarmaður í Sæunnarsundi, leggur ætíð gjörva hönd á undirbúning og öryggisgæslu og leiðir hann hér þaulvanar Sæunnar- sundskonur, Magneu Hilmarsdóttur og Ernu Héðinsdóttur í öruggt skjól eftir sundið yfir fjörðinn. Bænder: Sumarskjálftinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.