Bændablaðið - 15.08.2024, Page 15
Mun halda mig við
Active JOINTS í
framtíðinni
Ég vil bara
vera sprækur
Guðrún Sigríður JakobsdóttirEinar Bárðarson
Active JOINTS frá Eylíf fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaupum, Krónunni, Nettó. Allar nánari upplýsingar eru á eylif.is
og bjóðum við upp á fría sendingu með Dropp ef keypt er fyrir 7.000 kr. eða meira.
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum.
Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Úr hreinum íslenskum hráefnum
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og Stronger LIVER, allt vörur
sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr
hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukefnum
er bætt við. Framleiðslan er á Grenivík með GMP
gæðastaðli. „Vinsælasta varan er Active JOINTS
sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og
margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif
þeirra,“ segir Ólöf Rún Tryggvadóttir, stofnandi Eylíf.
Hrein íslensk gæðahráefni,
framleitt á Grenivík
www.eylif.is
Active JOINTS frá Eylíf hefur reynst mér vel
bæði fyrir liðina og sjónina
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir kynntist Active JOINTS frá Eylíf fyrir fjórum árum og
mælir sérstaklega með því fyrir þá sem finna fyrir óþægindum í liðum. Sjálf var hún
með stöðuga verki í hnjám sem komu í veg fyrir daglega hreyfingu.
Eftir að Guðrún byrjaði að taka Active JOINTS fór líðan hennar að breytast til betri
vegar og hún segist ekki finna lengur fyrir óþægindum í liðum. „Mér leið ekki bara
betur í hnjánum heldur hafði Active JOINTS, svo ótrúlegt sem það hljómar, einnig
áhrif á sjónina. Ég var að bíða eftir augasteinaskiptum þar sem að ský hafði myn-
dast á augasteinana. Svo merkilegt sem það er þá hvarf skýið og sjónin batnaði til
muna eftir að ég byrjaði að taka Active JOINTS. Ég á enga aðra skýringu en að það
sé fæðubótarefninu að þakka,“ segir Guðrún og bætir því við að hún hafi ekki lengur
þörf fyrir augasteinaskipti og fari því ekki í aðgerðina.
Góð áhrif á margan hátt
„Það má segja að ég finni fyrir alls konar líkamlegum áhrifum eftir að ég byrjaði að
taka Active JOINTS og mun því halda því áfram. Til dæmis hefur það mjög góð
áhrif á húðina, mér finnst ég ekki eins viðkvæm fyrir sólinni og fæ fallegan lit. Active
JOINTS fylgir mér þess vegna í sólarferðir,“ segir hún og bætir við að hún hafi líka
prófað Stronger BONES með góðum árangri.
Mér var upphaflega bent á að prófa Active JOINTS til að minnka þessi óþægindi
sem ég var með í hnjánum. Það var full ástæða fyrir mig til að prófa og varð undran-
di hversu fljótt ég fann mun á mér til hins betra. Ef ég hætti að taka Active JOINTS í
smá tíma finn ég strax áhrif til verri vegar,“ útskýrir Guðrún.
Hún segist stundum hafa farið í fjallgöngur en eftir að hún fór að finna fyrir verkjum
í hnjánum hætti hún þeim. „Ég myndi treysta mér til að fara núna. Hef farið í góða
göngutúra um Elliðaárdalinn án þess að finna til.“
Mælir með Active JOINTS frá Eylíf
Guðrún segir að það sé góður kostur að Active JOINTS sé unnið úr hreinum íslen-
skum náttúruefnum. „Ég hef verið dugleg að benda vinum mínum og ættingjum á
Active JOINTS og margir hafa prófað með góðum árangri. Bróðir minn sem er afar
gagnrýninn er til dæmis mjög jákvæður í garð Active JOINTS.“
Guðrún er komin á eftirlaunaaldur en hún starfaði sem bókari hjá hva-
laskoðunarfyrirtækinu Special Tours. Eiginmaðurinn er í golfi en Guðrún er í félagss-
kap sem nefnist Business Professional Women, hún var gjaldkeri Evrópusam-
takanna og hafa ferðalög fylgt því starfi. Guðrún nýtur þess að vera þátttakandi í
samtökunum og hefur meiri tíma en áður til að vera virkur félagi.
Guðrún segist mæla með Active JOINTS frá Eylíf af heilum hug fyrir alla þá sem
finna fyrir einhvers konar liðóþægindum. „Ég get ekki annað en mælt með þessari
vöru þar sem hún hefur gert mér gott,“ segir hún.
Eftir að ég byrjaði aftur að taka inn Active JOINTS þá tók það aðeins rúmlega viku
þar til ég fór að finna aftur stóran mun á mér. Ég mun alveg pottþétt halda mér við
Active JOINTS í framtíðinni.
Einar Bárðarson var farinn að finna fyrir
verkjum í hnjám við áreynslu, til dæmis þegar
hann gekk upp tröppur. Hann segir að Active JOINTS hafi hjálpað sér frá fyrsta degi
og hann hafi því mikla trú á virkni þess.
„Fyrir um einu og hálfu ári las ég grein þar sem Hartmann reiðhjólamaður mælti
með Active JOINTS frá Eylíf sem bætiefni fyrir liðina. Ég ákvað að prófa og fann
mjög fljótt mikinn mun þannig að ég gæti að því að taka það inn daglega. Ef ég var
kærulaus og gleymdi að taka Active JOINTS í nokkra daga fann ég mun á mér til
verri vegar og passa því að sleppa ekki degi úr,“ útskýrir Einar.
„Ég fann fyrir sting undir hnéskelinni í tröppum og þegar ég reyndi á mig. Þetta er
ekkert alvarlegt en ef maður finnur til veigrar maður sér við að gera ýmislegt sem
annars er auðvelt. Ég vil vera sprækur eins og ég á að mér að vera,“ segir hann en
Einar er þekktur fyrir að koma ýmsu í verk og er athafnasamur.
Skiptir máli að varan sé íslensk
Einar segir að vissulega skipti það miklu máli að varan sé að öllu leyti íslensk. „Ég
treysti íslenskum náttúruvörum vel og finnst óþarfi að flækja hlutina ef það er hægt
að fá góða vöru sem er framleidd hér heima,“ segir hann.
Eftir þá góðu reynslu sem hann hafði af Active JOINTS ákvað hann að prófa líka
Happier GUTS frá Eylíf sem er sérhönnuð íslensk vara gerð til að styrkja meltingar-
kerfið. „Það var sama með Happier GUTS, ég fann fljótt bætta líðan. Betri melting
sem skilar sér í allar áttir í kroppnum. Þannig að ég hef tekið Happier GUTS nánast
óslitið síðan ég kynntist vörunni. Ég get mælt með Active JOINTS og Happier GUTS
frá Eylíf þar sem þær vörur hafa reynst mér vel,“ segir hann.
Einar er önnum kafinn maður með ýmislegt á prjónunum. Til dæmis heldur hann úti
vinsælum hlaðvarpsþáttum, Einmitt, sem hafa verið í loftinu frá árinu 2022. „Ég nýt
þess að eiga samtöl við fólk sem ég hef mætur á og vil jafnvel kynnast betur, ekki
er verra að geta síðan deilt því áfram og framleitt þætti sem fólk hefur gaman af
að hlusta á. Það er bara frábært,“ segir hann. „Viðtökurnar hafa farið fram úr öllum
væntingum og mér hefur þótt rosalega vænt um það.“
Hengill Ultra Trail hlaupakeppnin
Fram undan er landsmót utanvegahlaupara sem nefnist Hengill Ultra Trail en Eylíf er
einmitt styrktaraðili hlaupsins. „Ég kom inn í þetta verkefni árið 2017 en á stuttum
tíma hefur það sprungið út þrátt fyrir Covid og alls kyns uppákomur. Keppendur í ár
verða um það bil 1.500, bæði innlendir og erlendir, þar á meðal eru um 150 erlendir
hlauparar frá þrjátíu löndum. Hveragerði mun því breytast í alþjóðlega hlaupaborg
yfir helgina 7.–8. júní. Eylíf mun færa keppendum í öllum greinum sem komast á pall
verðlaunagjafir,“ greinir hann frá.
Einar segist vel geta mælt með Active
JOINTS fyrir alla hlaupara
„Ég hef heyrt ánægju með vöruna frá
mörgum hlaupurum,“ segir hann. Þegar
Einar er spurður hvort hann sé sjálfur
duglegur að hreyfa sig, svarar hann:
„Það fer nú eftir því hvern þú spyrð en
líklegast er alltaf tækifæri til að gera
betur.“
Hlaupum bara af stað!
Og þá gerir maður einmitt það,
segir Einar kátur.