Bændablaðið - 15.08.2024, Page 16
16 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Tækniframfarir:
Bændur í sólarselluverkefni
– Getur orðið ný aukabúgrein á Íslandi
Fyrirtækið Alor sérhæfir sig í
orkulausnum, meðal annars inn-
leiðingu á framleiðslu rafmagns með
sólarsellum og geymslu þess
á rafhlöðum hér á Íslandi. Í
undirbúningi er verkefni með þátttöku
bænda, þar sem markmiðið er að
skoða nýtingu slíkrar orkuöflunar í
mismunandi búrekstri.
Linda Fanney Valgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Alor, segir að
verkefnið sé samstarfsverkefni með
Bændasamtökum Íslands og muni
felast í að setja upp jafnstór kerfi
af sólarsellum og rafhlöðum nú í
haust á fjórum bæjum; kúabúi með
mjaltaþjóni, svínabúi, garðyrkjubýli
og aflögðu loðdýrabúi. Hún segir
að búið sé að ganga frá samningum
um þátttöku við alla nema
garðyrkjubændur og óskar eftir
því að áhugasamir gefi sig fram
við hana. Vonir standa til þess að
stærstur hluti kostnaðar verkefnisins
verði fjármagnaður með styrkjum
úr samkeppnissjóðum og séu
styrkvilyrði þegar farin að berast.
Birtuorka fremur en sólarorka
Að sögn Lindu felst hlutverk Bænda-
samtakanna í að opna samtal við aðra
bændur, halda þeim upplýstum um
framgang verkefnisins og aðstoða
við að kynna niðurstöður þess. Hún
segir að margir haldi að sólarsellur
þurfi sól til að safna orku, en það
sé ekki rétt. Einungis þurfi tiltekin
birtuskilyrði og því sé réttara að kalla
ferlið birtuorkuframleiðslu.
„Verkefnið leggur grunn að því
að slík framleiðsla geti orðið ný
aukabúgrein bænda hér á landi,
þar sem rafmagnið er selt inn á
raforkukerfið, líkt og í fjölmörgum
öðrum ríkjum,“ segir Linda.
Fjölþættir kostir
Linda segir að í raun sé græn orka
uppseld á Íslandi miðað við núverandi
forsendur. Því sé raforkuöryggi
heimila og fyrirtækja ógnað. Óeining
sé um nýtingu á vindorku og frekari
vatnsaflsvirkjunum auk þess sem
nokkur ár séu í að slíkir orkukostir
skili raforku inn í kerfið.
„Sólarsellur og rafhlöður eru
tæknilausnir sem nýttar hafa verið
með góðum árangri um allan heim
og stærri uppsetningar á Íslandi hafi
sýnt jákvæðar niðurstöður, svo sem
í Grímsey. Sólarsellur eru yfirleitt
festar á húsþök eða jarðfastar og
eru slíkar framkvæmdir algjörlega
afturkræfar. Með því að nýta
þennan orkukost, sem lítil áhersla
hefur verið á hér á landi hingað til,
er unnt að lækka rafmagnskostnað,
auka afhendingaröryggi í
rafmagnstruflunum, draga úr
olíunotkun vegna minni notkunar
olíuknúinna rafstöðva og draga úr
álagi á raforkukerfið,“ segir hún.
Jafn sjálfsagt og að virkja
bæjarlækinn
Eðlilegt sé að horfa einnig til þessarar
nýtingar í því skyni að aðstoða við
að standa undir skuldbindingum
í loftslagsmálum. Bent hafi verið
á mikilvægi birtuorkuframleiðslu
til framtíðar í skýrslu starfshóps
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
um bætta orkunýtni og ný tækifæri
til orkuöflunar sem kom út í apríl
síðastliðnum. Íslensk stjórnvöld átti
sig á mikilvægi þessa orkukosts og
vinni að því að gera sölu birtuorku
inn á kerfið einfalda og aðgengilega.
„Við hjá Alor munum leggja
metnað í að styðja við vinnuna og
vonumst til þess að innan tíðar verði
jafn sjálfsagt að virkja birtuna og
bæjarlækinn,“ segir Linda.
Þekkir áskoranir bænda
Linda segir að gríðarleg aukning
hafi orðið í nýuppsettu birtuafli á
heimsvísu á árunum frá 2021 til 2023
– eða um 40 prósent. Norðurlöndin
séu komin langt á undan okkur í
þeirri þróun. „Það er jákvætt fyrir
Ísland, meðal annars vegna þess
að við getum byggt á áralangri
reynslu nágrannaþjóða okkar. Alor
er í samstarfi við rótgróið, danskt
fyrirtæki og munu fulltrúar þess veita
dýrmæta tækniráðgjöf í verkefnum
félagsins. Við Íslendingar erum þó
sjálf bestu sérfræðingarnir þegar
kemur að því að tryggja að búnaður
standist veðurágang hér á landi og
við vinnum nú að sérhönnuðum
festingum í samstarfi við öfluga aðila
hér á landi.
Spurð af hverju Alor velji að fara í
samstarfsverkefni með bændum, segir
Linda að sjálf sé hún fædd og uppalin
á sauðfjárbúi í Skagafirði og hafi
starfað sem sérfræðingur í ráðuneyti
sem fór með málefni landbúnaðar
og matvæla. Hún þekki því þær
áskoranir sem bændur standa frammi
fyrir. „Þeir glíma við afkomuvanda
þar sem rafmagnskostnaður er
sístækkandi kostnaðarliður – og
hamlar í raun vexti til dæmis í
ylrækt. Þarna geti verið tækifæri
með birtuorkuframleiðslu. Auk
þess er rafmagnskostnaður hærri á
landsbyggðinni og endurgreiðslutími
búnaðarins því styttri en á
höfuðborgarsvæðinu.“
Hagstæðari búnaður en áður
Kostnaður við kaup og uppsetningu
á kerfunum er mismunandi eftir
aðstæðum hvers og eins, en
búnaðurinn hefur lækkað töluvert
í verði á síðustu árum. Alor setur
upp áætlun við kostnað og greinir
fýsileikann á nýtingunni á kerfunum.
Linda segir að Alor aðstoði einnig við
styrkumsóknir og bendir á að opið sé
fyrir umsóknir fyrir Sólarsellustyrki
Orkuseturs Orkustofnunar til 31.
ágúst næstkomandi.
„Áætlað meðaltal af birtuorku-
framleiðslu á fermetra á Íslandi er 985
kílóvattstundir (kWst) á ári. Þannig má
gefa sér að á 100 fermetra þaki komist
fyrir um 50 sellur sem framleiða um
19.000 kWst á ári. Til samanburðar má
nefna að meðalheimili notar um 4.000
kWst árlega. Þar sem raforkuverð auk
flutnings er í kringum 23 krónur á
kWst er áætlað að sparnaður af slíku
kerfi geti verið tæplega 450 þúsund
krónur á ári, þegar kostnaður við
kerfið hefur verið greiddur. Að því
gefnu að birtuorkuframleiðslan og
notkun haldist í hendur eða orkan sé
geymd á rafhlöðum. Birtuorkusellur
endast í 25–30 ár með litlu viðhaldi og
má þannig áætla að heildarframleiðsla
yfir líftíma framangreinds kerfis
sé í kringum 580.000 kWst,“
segir Linda. /smh
Í síðustu viku heimsótti Linda Fanney Valgeirsdóttir tvo bæi í Eyjafjarðarsveit
sem munu taka þátt í tilraunaverkefninu. Hér er hún ásamt Aðalsteini
Hallgrímssyni í fjósinu í Garði þar sem unnið er að undirbúningi uppsetningar
birtuorkukerfis. Mynd / AðsendAukin bandvídd
á Vestfjörðum
Nýr bylgju-
lengdarbúnaður
á stofnneti Mílu
á Vestfjörðum
styður nú við
aukna bandvídd
á svæðinu.
„Þessi upp-
færsla tryggir að
Míla geti annað
bandvíddareftirspurn á svæðinu
næstu áratugi og opnar á frekari
aukningu með auðveldum hætti,“
er haft eftir Daða Sigurðarsyni,
framkvæmdastjóra tæknisviðs Mílu,
í tilkynningu.
„Það er gaman að sjá 30 ára
ljósleiðaraþræði fá endurnýjun lífdaga
með 200 gígabita uppfærslu með nýrri
bylgjulengdartækni. Vestfirðir fá
þarna góða innspýtingu af bandvídd
sem kemur til með að nýtast íbúum,
stofnunum og fyrirtækjum á svæðinu.
Við eigum svo inni að bæta við fleiri
bylgjum til að auka bandvídd enn
frekar.“ /mhh
Daði Sigurðarson.
Reglubundin yfirhalning farm-
flugvélar er ástæða þess að engin
hross hafa verið flutt frá Íslandi
síðan í byrjun júlí.
Icelandair Cargo sér um flutning
hrossa frá Íslandi. Ein farmvél rúmar
bása hrossanna en sú flugvél fór í
reglulega skoðun og lagfæringu í
júlí. Vélin er áætluð aftur til landsins
í september og er gert ráð fyrir að
útflutningur hefjist aftur þann 5.
september næstkomandi.
Það sem af er árinu hafa 617
hross verið flutt frá landinu, 116
stóðhestar, 229 geldingar og 272
hryssur samkvæmt upplýsingum
WorldFengs, upprunaættbók
íslenska hestsins. /ghp
Frestun hrossa-
útflutnings
Útflutninguráhrossumhefstaftur
í september.
Norðurlandamótið í hestaíþróttum
fór fram um liðna helgi í Danmörku.
Svíar voru þar atkvæðamestir en
íslensku ungmennin stóðu sig vel.
Mótið fór fram í Herning dagana
8.–11. ágúst. Meirihluti knapa
í íslenska landsliðinu tók þátt í
yngri flokkunum en af tuttugu
knöpum Íslands voru eingöngu sex
í fullorðinsflokki. Þar fór fremstur
Þórður Þorgeirsson sem tryggði
Íslandi gull í A flokki gæðinga. Sat
hann Gorm fra Villanora en voru
þeir efstir að lokinni forkeppni og
héldu forystu í gegnum öll úrslitin og
sigruðu nokkuð örugglega.
Alslemma var í úrslitum í
fimmgangi í ungmennaflokki en
þar röðuðu íslensku knaparnir
sér í þrjú efstu sætin. Védís Huld
Sigurðardóttir á Búa frá Húsavík fór
„Krýsuvíkurleiðina“ að sigrinum en
þau unnu sér þátttökurétt í úrslitunum í
gegnum B úrslit. Matthías Sigurðsson
var annar á Páfa frá Kjarri og Hulda
María Sveinbjörnsdóttir þriðja á
Hetju frá Árbæ en Hulda og Hetja
hlutu einnig silfur í samanlögðum
fimmgangsgreinum.
Í A flokki ungmenna unnu þeir
glæsilegan sigur, Matthías Sigurðsson
og Gustur frá Stóra-Vatnsskarði og
Guðmar Hólm Ísólfsson og Sólbjartur
frá Akureyri unnu silfrið. Guðmar
vann síðan B flokk ungmenna á Eyvari
frá Álfhólum. Ragnar Snær Viðarsson
tók silfur í tölti í ungmennaflokki,
Dagur Sigurðsson vann brons í
unglingaflokki á gæðingavellinum og
Herdís Björg Jóhannsdóttir vann silfur
í slaktaumatölti í ungmennaflokki.
Flestir keppendur íslenska
landsliðsins kepptu á lánshestum en
einungis einn hestur var fluttur út fyrir
mótið samkvæmt upplýsingum frá
Landssambandi hestamannafélaga.
Svíar tóku heim liðabikarinn
en þeir unnu m.a. gull í 250 metra
skeiði en Daníel Ingi Smárason og
Hrafn frá Hestasýn voru með besta
tímann. Sigurður Óli Kristinsson
sigraði gæðingaskeiðið á Fjalladís frá
Fornusöndum en Sigurður er búsettur
í Danmörku og keppti því fyrir hönd
heimamanna á mótinu. /hf
Hestaíþróttir:
Sigursæl á lánshestum
ÍslendingarröðuðuséríþrjúefstusætiífimmgangiungmennaáNorður-
landamótinu. Frá vinstri: Matthías Sigurðsson, Védís Huld Sigurðardóttir
og Hulda María Sveinbjörnsdóttir. Mynd / Anja Mogensen