Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 16

Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 16
16 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024                      Tækniframfarir: Bændur í sólarselluverkefni – Getur orðið ný aukabúgrein á Íslandi Fyrirtækið Alor sérhæfir sig í orkulausnum, meðal annars inn- leiðingu á framleiðslu rafmagns með sólarsellum og geymslu þess á rafhlöðum hér á Íslandi. Í undirbúningi er verkefni með þátttöku bænda, þar sem markmiðið er að skoða nýtingu slíkrar orkuöflunar í mismunandi búrekstri. Linda Fanney Valgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Alor, segir að verkefnið sé samstarfsverkefni með Bændasamtökum Íslands og muni felast í að setja upp jafnstór kerfi af sólarsellum og rafhlöðum nú í haust á fjórum bæjum; kúabúi með mjaltaþjóni, svínabúi, garðyrkjubýli og aflögðu loðdýrabúi. Hún segir að búið sé að ganga frá samningum um þátttöku við alla nema garðyrkjubændur og óskar eftir því að áhugasamir gefi sig fram við hana. Vonir standa til þess að stærstur hluti kostnaðar verkefnisins verði fjármagnaður með styrkjum úr samkeppnissjóðum og séu styrkvilyrði þegar farin að berast. Birtuorka fremur en sólarorka Að sögn Lindu felst hlutverk Bænda- samtakanna í að opna samtal við aðra bændur, halda þeim upplýstum um framgang verkefnisins og aðstoða við að kynna niðurstöður þess. Hún segir að margir haldi að sólarsellur þurfi sól til að safna orku, en það sé ekki rétt. Einungis þurfi tiltekin birtuskilyrði og því sé réttara að kalla ferlið birtuorkuframleiðslu. „Verkefnið leggur grunn að því að slík framleiðsla geti orðið ný aukabúgrein bænda hér á landi, þar sem rafmagnið er selt inn á raforkukerfið, líkt og í fjölmörgum öðrum ríkjum,“ segir Linda. Fjölþættir kostir Linda segir að í raun sé græn orka uppseld á Íslandi miðað við núverandi forsendur. Því sé raforkuöryggi heimila og fyrirtækja ógnað. Óeining sé um nýtingu á vindorku og frekari vatnsaflsvirkjunum auk þess sem nokkur ár séu í að slíkir orkukostir skili raforku inn í kerfið. „Sólarsellur og rafhlöður eru tæknilausnir sem nýttar hafa verið með góðum árangri um allan heim og stærri uppsetningar á Íslandi hafi sýnt jákvæðar niðurstöður, svo sem í Grímsey. Sólarsellur eru yfirleitt festar á húsþök eða jarðfastar og eru slíkar framkvæmdir algjörlega afturkræfar. Með því að nýta þennan orkukost, sem lítil áhersla hefur verið á hér á landi hingað til, er unnt að lækka rafmagnskostnað, auka afhendingaröryggi í rafmagnstruflunum, draga úr olíunotkun vegna minni notkunar olíuknúinna rafstöðva og draga úr álagi á raforkukerfið,“ segir hún. Jafn sjálfsagt og að virkja bæjarlækinn Eðlilegt sé að horfa einnig til þessarar nýtingar í því skyni að aðstoða við að standa undir skuldbindingum í loftslagsmálum. Bent hafi verið á mikilvægi birtuorkuframleiðslu til framtíðar í skýrslu starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um bætta orkunýtni og ný tækifæri til orkuöflunar sem kom út í apríl síðastliðnum. Íslensk stjórnvöld átti sig á mikilvægi þessa orkukosts og vinni að því að gera sölu birtuorku inn á kerfið einfalda og aðgengilega. „Við hjá Alor munum leggja metnað í að styðja við vinnuna og vonumst til þess að innan tíðar verði jafn sjálfsagt að virkja birtuna og bæjarlækinn,“ segir Linda. Þekkir áskoranir bænda Linda segir að gríðarleg aukning hafi orðið í nýuppsettu birtuafli á heimsvísu á árunum frá 2021 til 2023 – eða um 40 prósent. Norðurlöndin séu komin langt á undan okkur í þeirri þróun. „Það er jákvætt fyrir Ísland, meðal annars vegna þess að við getum byggt á áralangri reynslu nágrannaþjóða okkar. Alor er í samstarfi við rótgróið, danskt fyrirtæki og munu fulltrúar þess veita dýrmæta tækniráðgjöf í verkefnum félagsins. Við Íslendingar erum þó sjálf bestu sérfræðingarnir þegar kemur að því að tryggja að búnaður standist veðurágang hér á landi og við vinnum nú að sérhönnuðum festingum í samstarfi við öfluga aðila hér á landi. Spurð af hverju Alor velji að fara í samstarfsverkefni með bændum, segir Linda að sjálf sé hún fædd og uppalin á sauðfjárbúi í Skagafirði og hafi starfað sem sérfræðingur í ráðuneyti sem fór með málefni landbúnaðar og matvæla. Hún þekki því þær áskoranir sem bændur standa frammi fyrir. „Þeir glíma við afkomuvanda þar sem rafmagnskostnaður er sístækkandi kostnaðarliður – og hamlar í raun vexti til dæmis í ylrækt. Þarna geti verið tækifæri með birtuorkuframleiðslu. Auk þess er rafmagnskostnaður hærri á landsbyggðinni og endurgreiðslutími búnaðarins því styttri en á höfuðborgarsvæðinu.“ Hagstæðari búnaður en áður Kostnaður við kaup og uppsetningu á kerfunum er mismunandi eftir aðstæðum hvers og eins, en búnaðurinn hefur lækkað töluvert í verði á síðustu árum. Alor setur upp áætlun við kostnað og greinir fýsileikann á nýtingunni á kerfunum. Linda segir að Alor aðstoði einnig við styrkumsóknir og bendir á að opið sé fyrir umsóknir fyrir Sólarsellustyrki Orkuseturs Orkustofnunar til 31. ágúst næstkomandi. „Áætlað meðaltal af birtuorku- framleiðslu á fermetra á Íslandi er 985 kílóvattstundir (kWst) á ári. Þannig má gefa sér að á 100 fermetra þaki komist fyrir um 50 sellur sem framleiða um 19.000 kWst á ári. Til samanburðar má nefna að meðalheimili notar um 4.000 kWst árlega. Þar sem raforkuverð auk flutnings er í kringum 23 krónur á kWst er áætlað að sparnaður af slíku kerfi geti verið tæplega 450 þúsund krónur á ári, þegar kostnaður við kerfið hefur verið greiddur. Að því gefnu að birtuorkuframleiðslan og notkun haldist í hendur eða orkan sé geymd á rafhlöðum. Birtuorkusellur endast í 25–30 ár með litlu viðhaldi og má þannig áætla að heildarframleiðsla yfir líftíma framangreinds kerfis sé í kringum 580.000 kWst,“ segir Linda. /smh Í síðustu viku heimsótti Linda Fanney Valgeirsdóttir tvo bæi í Eyjafjarðarsveit sem munu taka þátt í tilraunaverkefninu. Hér er hún ásamt Aðalsteini Hallgrímssyni í fjósinu í Garði þar sem unnið er að undirbúningi uppsetningar birtuorkukerfis. Mynd / AðsendAukin bandvídd á Vestfjörðum Nýr bylgju- lengdarbúnaður á stofnneti Mílu á Vestfjörðum styður nú við aukna bandvídd á svæðinu. „Þessi upp- færsla tryggir að Míla geti annað bandvíddareftirspurn á svæðinu næstu áratugi og opnar á frekari aukningu með auðveldum hætti,“ er haft eftir Daða Sigurðarsyni, framkvæmdastjóra tæknisviðs Mílu, í tilkynningu. „Það er gaman að sjá 30 ára ljósleiðaraþræði fá endurnýjun lífdaga með 200 gígabita uppfærslu með nýrri bylgjulengdartækni. Vestfirðir fá þarna góða innspýtingu af bandvídd sem kemur til með að nýtast íbúum, stofnunum og fyrirtækjum á svæðinu. Við eigum svo inni að bæta við fleiri bylgjum til að auka bandvídd enn frekar.“ /mhh Daði Sigurðarson. Reglubundin yfirhalning farm- flugvélar er ástæða þess að engin hross hafa verið flutt frá Íslandi síðan í byrjun júlí. Icelandair Cargo sér um flutning hrossa frá Íslandi. Ein farmvél rúmar bása hrossanna en sú flugvél fór í reglulega skoðun og lagfæringu í júlí. Vélin er áætluð aftur til landsins í september og er gert ráð fyrir að útflutningur hefjist aftur þann 5. september næstkomandi. Það sem af er árinu hafa 617 hross verið flutt frá landinu, 116 stóðhestar, 229 geldingar og 272 hryssur samkvæmt upplýsingum WorldFengs, upprunaættbók íslenska hestsins. /ghp Frestun hrossa- útflutnings Útflutninguráhrossumhefstaftur í september. Norðurlandamótið í hestaíþróttum fór fram um liðna helgi í Danmörku. Svíar voru þar atkvæðamestir en íslensku ungmennin stóðu sig vel. Mótið fór fram í Herning dagana 8.–11. ágúst. Meirihluti knapa í íslenska landsliðinu tók þátt í yngri flokkunum en af tuttugu knöpum Íslands voru eingöngu sex í fullorðinsflokki. Þar fór fremstur Þórður Þorgeirsson sem tryggði Íslandi gull í A flokki gæðinga. Sat hann Gorm fra Villanora en voru þeir efstir að lokinni forkeppni og héldu forystu í gegnum öll úrslitin og sigruðu nokkuð örugglega. Alslemma var í úrslitum í fimmgangi í ungmennaflokki en þar röðuðu íslensku knaparnir sér í þrjú efstu sætin. Védís Huld Sigurðardóttir á Búa frá Húsavík fór „Krýsuvíkurleiðina“ að sigrinum en þau unnu sér þátttökurétt í úrslitunum í gegnum B úrslit. Matthías Sigurðsson var annar á Páfa frá Kjarri og Hulda María Sveinbjörnsdóttir þriðja á Hetju frá Árbæ en Hulda og Hetja hlutu einnig silfur í samanlögðum fimmgangsgreinum. Í A flokki ungmenna unnu þeir glæsilegan sigur, Matthías Sigurðsson og Gustur frá Stóra-Vatnsskarði og Guðmar Hólm Ísólfsson og Sólbjartur frá Akureyri unnu silfrið. Guðmar vann síðan B flokk ungmenna á Eyvari frá Álfhólum. Ragnar Snær Viðarsson tók silfur í tölti í ungmennaflokki, Dagur Sigurðsson vann brons í unglingaflokki á gæðingavellinum og Herdís Björg Jóhannsdóttir vann silfur í slaktaumatölti í ungmennaflokki. Flestir keppendur íslenska landsliðsins kepptu á lánshestum en einungis einn hestur var fluttur út fyrir mótið samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi hestamannafélaga. Svíar tóku heim liðabikarinn en þeir unnu m.a. gull í 250 metra skeiði en Daníel Ingi Smárason og Hrafn frá Hestasýn voru með besta tímann. Sigurður Óli Kristinsson sigraði gæðingaskeiðið á Fjalladís frá Fornusöndum en Sigurður er búsettur í Danmörku og keppti því fyrir hönd heimamanna á mótinu. /hf Hestaíþróttir: Sigursæl á lánshestum ÍslendingarröðuðuséríþrjúefstusætiífimmgangiungmennaáNorður- landamótinu. Frá vinstri: Matthías Sigurðsson, Védís Huld Sigurðardóttir og Hulda María Sveinbjörnsdóttir. Mynd / Anja Mogensen

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.