Bændablaðið - 15.08.2024, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Nýr
Fendt
500 V
ario
!
Gerðust áskrifandi að fréttabréfinu
núna á www.fendt.com/500
– VERKIN TALA
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
It‘s Fendt. Beacause we understand Agriculture.
fendt.com | Fendt is a worldwide brand of AGCO.
Nýtt og byltingarkennt
starfsumhverfi með
FendtONE.
Hornsteinninn bak við alla nýsköpun hjá Fendt er að taka eitthvað stórkostlegt
og gera það betra. Nýja Fendt vinnuumhverfið býður fleiri skjái og aðgengilega
stjórnrofa, með öllum þessum frábæru Fendt eiginleikum. Nýir Fendt eigendur
munu samstundis upplifa sig á heimavelli.
Alþjóðleg þörungaráðstefna,
Arctic Algea, verður haldin í
Reykjavík 4. og 5. september.
Þetta er í annað sinn sem slík
ráðstefna fer fram hér á landi.
Þörungarækt er í hraðfara vexti í
heiminum. Markmið Arctic Algae
er að skapa aukna umræðu um
þörungastarfsemi og tengja saman
fólk úr geiranum til þess að kynnast
og læra hvað af öðru.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
hagræn- og umhverfisáhrif tengd
smá- og stórþörungastarfsemi.
Ræktun og fullvinnsla smáþörunga-
afurða er í mikilli sókn og hér á landi
hefur byggst upp þörungavinnsla
á heimsvísu. Talið er að engin
matvælaframleiðsla úr hafinu hafi
vaxið jafnhratt á síðustu áratugum
og ræktun og fullvinnsla þörunga.
Arctic Algae fer fram í
höfuðstöðvum Arion banka við
Borgartún og er stýrt af Rækt
nýsköpunarmiðstöð lagareldis
með Samtökum þörungafélaga
og unnin í samstarfi við evrópsku
þörungasamtökin EABA. Auk
ráðherra matvæla og háskóla-,
iðnaðar- og nýsköpunar, innlendra
aðila og framkvæmdastjóra World
Wildlife Fund, taka þátt fulltrúar
stærstu félaga í Færeyjum, Noregi og
Bandaríkjunum í stórþörungaræktun
og fullframleiðslu. /sá
Þingað um
þörunga
Hófhirða hrossa er viðfangsefni
ráðstefnu sem haldin verður í
húsnæði Eldhesta í Ölfusi dagana
23. og 24. ágúst.
Geert Cornelis er einn
skipuleggjenda ráðstefnunnar. „Mér
finnst enn þá almenn þekking á
járningum aðeins of lítil hér á landi
samanborið við önnur lönd eins og
í Evrópu og Bandaríkjunum. Það
er að lagast en það er mikið eftir.
Sumir hlutir í kringum þetta, eins
og kynbóta- og keppnisjárningar,
þessi hófasöfnun sem fylgir þeim
oft, er í raun ekki best fyrir dýrið eða
hestvænt. Því er svo mikilvægt að
segja frá og kynna fyrir fólki hvað sé
gott og slæmt,“ segir Geert og bætir
við að með góðri járningu sé hægt að
auka endingu hjá hrossi um einhver ár.
Margt liggur að baki
Ráðstefnan er ekki eingöngu ætluð
fagfólki eins og járningamönnum og
dýralæknum heldur öllu hestafólki
sem hefur áhuga á heilbrigði hrossa.
„Flestir járningamenn vita hvað
þeir eru að gera en tamningamenn
og eigendur eru með kröfur um
hvernig þeir vilja láta gera þetta og
hafa oft áhrif á járningamanninn. Því
er mikilvægt að auka þekkingu allra
aðila. Það er svo margt á bak við þetta.
Járning er ekki bara að setja fjórar
skeifur undir hestinn og málið dautt,
þótt sumir haldi að það sé bara nóg,“
segir Geert.
Skrefalengd og röntgenmyndir
Á meðal frummælenda verður
Aksel Vibe, sem fjallar um notkun
röntgenmynda þegar kemur að
hófsnyrtingu og járningu. Jonathan
Nunn og Josh Nunn munu fjalla
um skrefalengd og hvernig hægt
er að hafa áhrif á hana. Jeffrey
Newnham mun ræða um fylliefni
og Michael Weishaupt fjallar um
áhrif keppnisjárninga á hreyfingu,
stoðkerfi og heilbrigði hófa á
íslenskum hrossum. Ráðstefnunni
lýkur á verklegum hluta. /hf
Vill auka þekkingu um járningar og hófhirðu
Með góðri járningu er hægt að auka
endingu hjá hrossi. Mynd / hf
Smalahundar
etja kappi
Smalahundafélag Íslands stendur
fyrir landskeppni smalahunda 24.
og 25. ágúst næstkomandi.
Landskeppnin verður haldin
í samstarfi við deild Snata í
Húnavatnssýslu. Fer keppnin fram
að Ási í Vatnsdal og verður að
vanda keppt í A-flokki, B-flokki og
Unghundaflokki. Hefst keppni kl.
10 báða dagana.
Félagið heldur jafnframt aðalfund
sinn í aðdraganda helgarinnar,
föstudaginn 23. ágúst, í Fellsbúð
við Undirfellsrétt í Vatnsdal og hefst
hann kl. 19.
Smalahundafélag Íslands birtir
upplýsingar um keppnina á vefnum
smalahundur.123.is og á Facebook-
síðu sinni. /sá
Sigurvegarar landskeppni Smala-
hundafélags Íslands í fyrra. Mynd / SFÍ
Bændablaðið
kemur næst út
29. ágúst