Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 24
24 Viðtal Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Þau Karen Helga R. Steinsdóttir
og Jón Helgi Sigurgeirsson voru
ekkert að hika þegar til kom að
jörðin Víkur á Skaga væri föl og
festu sér hana við fyrsta hanagal,
ef svo má að orði komast.
Jörðina sátu fjögur systkini sem
komin voru á aldur og sagan segir
að þau hafi fyrir löngu sagt að ef
hún Karen litla frá Hrauni næði sér
í duglegan bónda fengi hún Víkur á
sanngjarnan prís. Og það gekk eftir.
Karen er fædd og uppalin á næsta
bæ við Víkur, á Hrauni, sem hefur verið
í hennar ætt frá því 1914 en foreldrar
hennar, Merete Ruböla frá Fjóni í
Danaveldi og Steinn Rögnvaldsson,
tóku þar við búi af foreldrum hans,
Rögnvaldi og Guðlaugu, en þau tóku
við Hrauni á sínum tíma af foreldrum
Rögnvaldar. Jón Helgi segist hins
vegar vera hreinræktaður Fljótamaður
en flutti þriggja ára með foreldrum
sínum, þeim Sigurgeiri Þorsteinssyni
og Birnu Sigurbjörnsdóttur, að
Varmalandi í Sæmundarhlíð, þar
sem lengst af var kúabú en þar er nú
stunduð hrossarækt.
Karen og Jón eru bæði fædd 1995
og voru því aðeins 21 árs þegar þau
tóku við á Víkum árið 2016. Karen
hafði þá lokið námi á Hvanneyri og Jón
Helgi vélvirkjanámi en draumurinn
hafði alltaf verið búskapur og engin
ástæða til að hika þegar tækifærið
gafst. Það dró fljótt til tíðinda hjá
þeim skötuhjúum því frumburðurinn
Sigursteinn Finnur kom í heiminn ári
seinna og blaðakona getur staðfest
að þar er á ferðinni spjallsamur og
gestrisinn piltur sem ætlar sér í skóla
í haust og segist vera orðinn læs.
Aðspurður taldi hann ekki ástæðu til
að ákveða hvað hann ætlaði að verða
þegar hann yrði stór því það væri svo
langt þangað til.
Þegar skemman brann
Þessi nýorðnu hjón voru ekkert að
tvínóna við hlutina og blekið var ekki
einu sinni komið á pappírana þegar
þau hófu stand og skiptu um þak á
fjárhúsunum, þá reyndar í samstarfi
við fyrrverandi eigendur. „Þau hafa
hjálpað okkur mikið og Finnur var
meira eða minna með okkur í öllu
fyrstu árin og ég held að þetta sé í
fyrsta sinn í fyrra sem hann er ekki
með okkur í sauðburði,“ segir Jón
Helgi og þau eru sammála um það
bæði tvö að aðstoð fyrri eigenda
hafi verið ómetanleg.
„Við lendum svo í því árið 2018
að skemman brann,“ segir Karen og
þá finnst Sigursteini Finni ástæða
til að leggja orð í belg.
„Ég vakti mömmu og mamma
vakti pabba,“ segir hann og man
þetta svo greinilega, þrátt fyrir að
vera ekki orðinn ársgamall þegar
þetta áfall dynur yfir. Sem betur
fer var logn þessa nótt svo aðrar
byggingar voru aldrei í hættu en
skemman brann til kaldra kola,
upptök eldsins að öllum líkindum
í dráttarvél.
Nú er komin ný skemma og
búið að skipta um svo til öll þök á
útihúsunum enda flest komið á tíma.
„Við klæddum svo framhliðina á
íbúðarhúsinu sem var eftir að klæða
og skiptum um hurðir og glugga,“
segir Karen.
Þess má geta að rafmagn var
fyrst lagt að Víkum þegar þau
tóku við, fram að því var notast
við ljósavél.
Börn, sauðfé og hross
Í Víkum eru nú um það bil 480 skjátur
og hrossin telja tvo til þrjá tugi. Jörðin
er stór, eða um 2.000 hektarar, og þolir
stærri búsmala en húsakost þarf að
bæta ef búið á að stækka. Þau hjónin
hafa líka haft í ýmsu að snúast, öðru en
að snuddast í fjárhúsum því börnunum
hefur fjölgað. Þorsteinn Helgi fæddist
2019 og í fyrra, árið 2023, kom Jóhann
Liljar í heiminn.
„Það er svolítið erfitt að vera bundin
yfir börnum og komast minna í úti-
verkin,“ segir Karen en hún hefur þó
undanfarin ár unnið á leikskólanum á
Skagaströnd og þannig drýgt tekjur
heimilisins. „Við stefnum á að vinna
alfarið bæði við búið,“ segja þau bæði í
kór. „Ég lenti óvart í sveitarstjórn árið
2018,“ segir Karen en persónukjör var
viðhaft í kosningum í Skagabyggð.
„Ég reyndi nú svo sem að gera það
sem ég gat, en var örugglega ekki
best í þessu,“ bætir hún við. Nú hafa
Skagabyggð og Húnabyggð sameinast
svo það eru litlar líkur á persónukjöri
aftur en þau hjón eru sammála um að
þeirra tíma næstu árin sé betur varið
í að hlúa að börnum og búskap en
pólitík. „En auðvitað vitum við að það
þarf að sinna hagsmunagæslu bænda
og við munum njóta afraksturs af
þeirri vinnu sem aðrir eru að sinna
núna og þó við ætlum ekki að taka
þátt strax kemur kannski að því
seinna,“segir Jón Helgi
Undanfarin ár hafa þau fengið til
sín starfsmenn á vegum samtakanna
Work away, um er að ræða ungt fólk
sem kemur alls staðar að í heiminum,
búa á heimilinu og fá laun, fæði og
húsnæði. „Við höfum verið mjög
heppin með fólk og mörg þeirra koma
aftur og aftur í heimsókn,“ segir Jón.
Á réttri hillu
Þessi ungu hjón eru sammála um
að þau séu á réttri hillu og að gera
nákvæmlega það sem þau vilja.
„Þetta er kannski ekki alltaf mjög
fjölskylduvænt líf og oft er þetta
mikil vinna. Við höfum skroppið til
Danmerkur en annars förum við ekki
mikið í frí, ég er svo sérvitur og vil
hafa yfirsýn yfir það sem þarf að gera
og hvernig það er gert,“ segir Jón en
Karen skreppur stundum í stutt frí
með börnin.
Á Skaga:
Unga fólkið í Víkum
Þorsteinn Helgi og Sigursteinn Finnur sitja fyrir á rúlluvélinni, brosmildir
og í fallegum heimaprjónuðum peysum.
Hér getur að líta fjölskylduna í Víkum, Jón Helgi Sigurgeirsson situr með eldri drengina, Þorstein Helga (t.v.) og
Sigurstein Finn, en Karen Helga R. Steinsdóttir með litla Jóhann Liljar. Myndir / bs
Það er glæsilegt heim að líta í Víkum, íbúðarhúsið er afar reisulegt og fallegt.
Bryndís Sigurðardóttir
bryndis@yfirlit.is
Jóhann Liljar nýtur þess að ferðast um útihúsin í fangi
móður sinnar en hann mun fljótlega skottast um grundir
á eigin fótum