Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 32
32 Viðtal Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Vestur-Húnavatnssýsla:
Fóru í framkvæmdir strax eftir kaup
– Tvöfölduðu framleiðslugetuna og settu upp mjaltaþjón
Karen og Ásgeir eru bæði úr
Húnabyggð. Hún frá Blönduósi og
Ásgeir frá Auðkúlu við Svínavatn.
Þegar þau tóku við Litlu-Ásgeirsá
var þar fjós sem rúmaði 32 kýr
á básum með 175 þúsund lítra
framleiðslurétti. Nokkrum vikum
eftir flutningana réðst unga parið í
miklar breytingar á fjósinu með það
að markmiði að fjölga kúnum og auka
framleiðslugetuna.
Núna eru þau komin með yfir
400 þúsund lítra greiðslumark og
segir Ásgeir þau heppin með að
mjólkurkvótinn hafi lækkað í verði.
Þau hafa bætt við sig framleiðslurétti
á öllum tilboðsmörkuðum með
greiðslumark frá því þau tóku við,
en eru hætt í bili þar sem þau eru
komin með kvóta nálægt framleiðslu-
getu búsins.
Alltaf viljað framleiða mjólk
„Jörðin var auglýst til sölu og við
keyptum hana á opnum markaði,“
segir Ásgeir, en þrátt fyrir að unga
parið hafi ekki þekkt fyrri ábúendur
hafi kaupin ekki verið óvinnandi
vegur. „Það sem hjálpaði okkur
var að við vorum búin að koma
þokkalega undir okkur fótunum í
búskap áður,“ segir hann. Þau voru
með 120 holdakýr sem voru farnar
að skila tekjum og hafa þau haldið
ræktun þeirra áfram á nýjum stað.
„Mig hefur alltaf langað að
fara að mjólka,“ segir Ásgeir,
en ungu bændurnir segjast
vera mjög áhugasöm um kýr.
„Mjólkurframleiðslan er nógu mikil
vinna til að maður geti verið heima
og reynt að lifa af því,“ segir hann,
en þau þurftu bæði að vinna utan
bús þegar þau voru áður eingöngu í
holdanautarækt.
„Við ákváðum að fara strax í
að breyta í lausagöngufjós og setja
upp róbót,“ segir Ásgeir. Það hafi
meðal annars verið þar sem þau
vildu auka framleiðsluna og hafa
færi á að fjölga kúnum. Þá hafi þau
ekki viljað vera bundin í mjöltum
kvölds og morgna.
Framkvæmdir mikið föndur
Þeim tókst að fjármagna
framkvæmdirnar að stórum hluta með
því að selja eitt íbúðarhúsið á Litlu-
Ásgeirsá. Kaupandinn var Dani sem
hafði verið vinnumaður á Auðkúlu í
nokkur ár og hafði áhuga á að setjast
að á landinu. Þeim var mikið í mun
að velja sér góðan nágranna þar sem
húsið er á bæjarhlaðinu.
Mikið föndur hafi fylgt
breytingunum þar sem þau gátu
ekki hætt að mjólka á meðan. Þau
hafi þurft að reka kýrnar yfir alls
konar krókaleiðir til að koma þeim í
mjaltabásinn þegar búið var að brjóta
upp öll gólfin í fjósinu. Í nokkur skipti
hafi þurft að reka kýrnar í kringum
bygginguna til að koma þeim á sinn
stað eftir mjaltir. Álagið hafi verið
mikið fyrstu mánuðina; „en núna
gerum við ekki neitt,“ segir Ásgeir
kíminn.
Raunin sé hins vegar sú að
nauðsynlegt er að vera stöðugt á
tánum í fjósinu og nefnir Karen
að mikilvægt sé að sjá vandamálin
fyrir áður en þau koma upp. Fyrstu
vikurnar og mánuðina hafi þau þurft
að reka sig á ýmsa hluti þar sem
mjólkurkýrnar eru mun viðkvæmari
en holdakýrnar. Þau hafi verið
óhrædd við að spyrja dýralækna og
reyndari bændur ráða ásamt því að
fletta upp upplýsingum á netinu.
Heildarfjöldi gripa á bænum er
á bilinu þrjú til fjögur hundruð ef
talin eru með mjólkurkýr, holdakýr
og gripir sem eru í uppeldi eða
geldstöðu, þó þessi tala sé breytileg
eftir árstíma. Þar af séu 60 til 80
kvígur í eldi á Auðkúlu. Þegar þau
tóku við Litlu-Ásgeirsá fylgdi nokkur
fjárstofn, en þau ákváðu eftir rúmt ár
að einbeita sér alfarið að nautgripum
og losuðu sig því við allt sauðféð. Þau
hafa keypt fjögur hreinræktuð Angus
naut í sameign með öðrum bændum
og eru holdakýrnar að miklu leyti
undan þeim.
Selja ung naut á fæti
„Það eru í rauninni bara kýr og
kvígur á búinu,“ segir Ásgeir, en
að auki við að selja nautkálfana
frá mjólkurkúnum unga, ala þau
holdanautin ekki til slátrunar, heldur
selja þau fimm mánaða gömul til
annarra bænda sem klára eldið.
Holdakýrnar bera á vorin og eru
kálfarnir afhentir nýjum eigendum í
október eða nóvember. „Úti í hinum
stóra heimi er þetta meira og minna
alltaf gert svona,“ segir Ásgeir, en
hann veit hins vegar ekki af nema
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Kúabændurnir Ásgeir Ósmann Valdemarsson og Karen Ósk Guðmunds-
dóttir keyptu Litlu-Ásgeirsá í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu í apríl
2022. Þau höfðu áður byggt upp holdanautarækt á æskuslóðum Ásgeirs
í Austur-Húnavatnssýslu en gerðust að auki mjólkurframleiðendur
við þessa flutninga.
Ásgeir Ósmann Valdemarsson, 33 ára, og Karen Ósk Guðmundsdóttir, 31 árs. Þau hafa verið saman síðan 2018 og
eiga tvö börn. Ásgeir er frá Auðkúlu við Svínavatn og Karen frá Blönduósi.
Nýju bændurnir á Litlu-Ásgeirsá höfðu mikinn áhuga á að verða kúabændur með mjólkurframleiðslu. Þau keyptu jörðina árið 2022 og breyttu 32 kúa básafjósi í lausagöngufjós með mjaltaþjóni.
Áður höfðu þau komið undir sig fótunum í holdanautarækt á Auðkúlu í Austur-Húnavatnssýslu, en þau fluttu holdakýrnar með sér. Myndir / ál
Breytingarnar á fjósinu voru mikið föndur, en það var ekki hægt að hætta að mjólka á meðan framkvæmdirnar stóðu yfir. Nú er vinnuaðstaðan öll betri og framleiðslugetan helmingi meiri.