Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 33
33ViðtalBændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 5hlutir sem Ásgeir & Karen geta ekki verið án 1. Burðartjakkur: Það er hjálpartæki sem er gott bæði fyrir bónda og menn þegar burður gengur illa. 2. Avant-inn minn: „Avant er fjölnota tæki sem á að vera til á hverjum einasta bæ.“ Mikill rígur er á milli þeirra sem eiga Avant eða Schäffer í sveitinni. 3. Case-inn: „Maður er náttúrlega ekki án traktors.“ 4. Róbótinn: „Það væri glatað að eiga ekki róbót.“ 5. Tökubás: Hann er nauðsynlegur í holdanautaræktinni. einum öðrum stórum bónda hérlendis sem hagar sínu nautaeldi svona. Parið segir þetta gott viðskipta- módel, en þau eru með þrjá fasta kaupendur af öllum kálfum og svo séu fleiri sem hafi áhuga en komist ekki að. Hver kálfur sé seldur á í kringum 190 þúsund krónur að hausti, en Ásgeir segir að þökk sé hækkandi verði á kjöti megi bændur gera ráð fyrir að fá greitt 450 til 550 þúsund krónur fyrir hvern grip við slátrun ári síðar. „Við fórum í þetta af því að holdakýrnar voru orðnar svolítið margar og við vorum ekki með húspláss fyrir þetta allt,“ segir hann. Þetta henti þeim vel þar sem þau hafa nægt hey og landnæði og geti látið kýrnar vera að mestu úti allt árið. Upphaf þessa fyrirkomulags megi rekja til þess að stórt fyrirtæki auglýsti eftir að kaupa ung holdanaut sem stóð til að ala. Ásgeir og Karen hafi selt þeim sína kálfa í tvö ár en hætt því þar sem erfitt var að eiga í viðskiptum við eiganda þess fyrirtækis. „Það er miklu auðveldara að selja bændunum hér í kringum sig þó þeir eigi ekki endilega mikið af peningum en hann á nóg af þeim,“ segir Ásgeir. „Hann dró mann á asnaeyrunum lengi. Svo á seinustu stundu þegar maður þurfti að losna við kálfana gat hann nefnt einhverja tölu sem maður varð eiginlega að sætta sig við.“ Engar veiðitekjur kostur Ásgeir vill hvetja eldri bændur til að leyfa unga fólkinu að komast að og aðstoða við kynslóðaskipti sem muni stuðla að endurnýjun fólks í sveitum. Honum finnist sem seljendur megi oft vera liprari, þó hann taki fram að það eigi ekki við í þeirra tilfelli, og nóg sé af fólki sem vilji komast í búskap. Karen segir þau vera heppin með að tekjurnar af veiðiréttindum í Víðidalsánni séu ekki mjög miklar með þessari jörð og það hafi haldið kaupverðinu niðri. „Það er fullt af frábærum jörðum hérna allan dalinn sem er búið að leggja í eyði út af þessari laxveiðiá hérna,“ bætir Ásgeir við. Ásgeir og Karen tóku saman árið 2018 og hafa eignast tvö börn; Emil Jóhann, fimm ára, og Dagbjörtu Ósk, fjögurra ára. Karen Ósk ásamt Dagbjörtu Ósk, fjögurra ára. Þar að auki á unga parið soninn Emil Jóhann, fimm ára. Ásgeir heldur mikið upp á Avant fjósavélina. www.veldix.is - veldix@veldix.is - 547 5577 Suðurhraun 10, 210 Garðabæ - Vöruafgreiðsla: Suðurhraun 12, 210 Garðabæ Gasalega gaman! Fyrsta sendingin er komin Argon 20 og 50 lítra Argon + 18% CO2 20 og 50 lítra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.