Bændablaðið - 15.08.2024, Page 36

Bændablaðið - 15.08.2024, Page 36
36 Viðtal Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Þetta var haustið 1971 og Olli aðeins 19 ára en svo sannarlega til í að verða bóndi. Brandur, sem orðinn var 24 ára, var ráðsettur heimilisfaðir í Borgarnesi, kvæntur æskuástinni sinni, henni Jónu Jóns, og á þessum tíma voru komin tvö lítil börn í kotið, þau Áslaug og Úlfar. Það varð uppi fótur og fit og pabbi gamli, Guðbrandur Magnússon, fengin í samningagerð við Guðrúnu Guðmundsdóttur á Mel, sem var komin um nírætt og bjó þar ásamt Aðalsteini Péturssyni, syni sínum, en hann var kominn yfir sjötugt og fluttu þau bæði á Dvalarheimilið í Borgarnesi. Skemmst er frá því að segja að samningar við þau mæðgin tókust, enda Guðbrandur eldri annálaður samningamaður, og á vordögum 1972 fluttu þeir bræður ásamt búaliði í gamla íbúðarhúsið á Mel, það var um það bil 87 fermetrar. Frá rúmruskinu góða sem áður er nefnt hafði einn ungi bæst í hópinn hjá Brandi og Jónu því Guðrún Steinunn skaust í heiminn 14. maí 1972, nóttina fyrir daginn sem þeir tóku við Melnum. Olla hafði tekist að krækja í 16 ára bráðfallega yngismey, Guðrúnu Jónasdóttur, sem að mestu hafði slitið barnsskónum á Grenjum í næstu sveit, steinsnar frá Álftá þar sem Olli hafði alist upp frá fimm ára aldri. Kunnugir gera sér svo grein fyrir að Melur er svo líka í sömu sveit. Þröng á þingi en samkomulagið gott Ráðsetta fjölskyldan, Brandur og Jóna, fengu aðstöðu í gamla eldhúsinu á Mel og stærra herbergið á efri hæðinni. Þar var pláss fyrir þau hjón og þrjú börn en sennilega hefur herbergið þó ekki verið stærra en 15 fermetrar. Fyrir unga parið var útbúið lítið eldhús á neðri hæðinni og svo fengu þau minna herbergið á efri hæðinni fyrir sig, þar var hægt að koma fyrir tvíbreiðu rúmi sem var 120 cm og með naumindum var hægt að koma fyrir barnarúmi líka, sem kom sér vel því frumburður þeirra hjóna, Guðbrandur, kom í heiminn í desember ári seinna. Tíu mjólkandi Fjósið á Mel var ekki stórt og í fyrstu aðeins pláss fyrir átta mjólkandi kýr og allar voru þær handmjólkaðar en fljótlega var hægt að bæta við tveimur kusum þegar úr vatnsmálum leystist en þannig háttaði til að í fjósinu þurfti að vera söfnunartankur fyrir vatn þegar brunnurinn gaf illa. „Þarna voru þær Melkorka, Dimma, Fífa frá Fíflholtum og svo tvíburarnir Blíðrós og Sumarrós,“ segir Olli dreyminn en í þá daga fengu gripirnir nafn en ekki bara númer eins og nú tíðkast. Fljótlega var hafist handa við byggingu á nýju 30 kúa fjósi með mjaltakerfi og var það tekið í notkun árið 1975. Þá hafði reyndar færst enn meira fjör í leikinn því Olli og Guðrún höfðu bætt við einum dreng, Jónasi, sem fæddist í mars 1975. Eins og sumarstúlkan fékk að kynnast var erfitt með vatnið á Mel, þurfti hún stundum að fara á Dontanum með mjólkurbrúsa á Dontakerrunni og ausa vatninu með fötu upp úr ánni í brúsana. En þessi sumarstúlka er sú stúlka sem ber ábyrgðina á þessum skrifum. Því réðust bræðurnir í það haustið 1975, þegar nýja fjósið var tekið í notkun, að leggja vatnsveitu ofan frá Svarfhólsmúla. Veitan varð upphaf að Vatnsveitu Hraunhrepps sem var síðan árið 1980 plægð áfram niður um alla sveit. Var það gríðarlega góð framkvæmd, því að þótt Mýrarnar séu blautar var mjög erfitt með neysluvatn á bæjunum. „Þetta er það eina sem er utan kvóta,“ er haft eftir Brandi á Mel um barneignir og niður hlóðust börnin, Bjargey Anna fæddist 1976 og Gunnhildur í febrúar 1978 hjá Brandi og Jónu og þá var orðið nokkuð ljóst að til aðgerða þurfti að grípa. Brandur og Jóna tóku á leigu næstu jörð, Staðarhraun, sem var ríkisjörð og hafði verið í eyði í nokkur ár og þar engar nýtilegar byggingar. Árið 1978 var byrjað að byggja íbúðarhús fyrir þeirra fjölskyldu og fluttust þau að Staðarhrauni fyrir jólin 1979, áfram ráku þau samt saman félagsbúið á Mel. Fljótlega var byrjað á fjárhúsbyggingu á Staðarhrauni og flutti Brandur með kindurnar 1985 en fáum árum seinna með kýrnar og sameiginlegum búrekstri þessara samheldnu fjölskyldna þar með lokið. „En það var alltaf afar gott samkomulagið hjá okkur og aldrei féll styggðaryrði milli Guðrúnar og Jónu, en við bræður vorum ekki alltaf sammála, eins og gengur með bræður,“ segir Olli. „Börnin voru dugleg að leika sér saman,“ segir Guðrún og þau eru sammála um að lífið hafi verið gott þó þröngt hafi verið setið á Mel. Það eru þrír kílómetrar á milli bæjanna, Mels og Staðarhrauns, og hlupu börnin oft þar á milli eftir að Brandur og Jóna fluttu. Jóna lést eftir skammvinn veikindi árið 2020, Guðbrandur brá þá búi og flutti í Borgarnes. Ætlaði ekki að búa í sveit Guðrún, sem er þriðja yngst þrettán systkina og alin upp í sveit, ætlaði nú ekkert að verða bóndi. „En ég hélt að hann yrði svo leiður ef ég vildi ekki koma í sveitina,“ segir hún og þar með voru örlög hennar ráðin. Olli, sem eins og Guðrún á mörg systkini, er næstyngstur af tólf. Foreldrar Guðrúnar voru Jónas Gunnlaugsson frá Hrísdal í Miklaholtshreppi og Guðveig Guðmundsdóttir frá Flesjustöðum í Kolbeinsstaðahreppi en foreldrar Olla og Brands voru Bjargey Guðmundsdóttir frá Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi og Guðbrandur Magnússon frá Hallkelsstaðahlíð í sömu sveit. Nýbygging á Mel Árið 1984 var tilbúið nýtt íbúðarhús á Mel enda gamla húsið orðið ansi lélegt og þá var lag að stækka fjölskylduna. Gunnar fæddist árið 1979 og engin ástæða til að hætta barnaframleiðslunni enda bráðgerir drengir þessi þrír sem voru fæddir voru fyrir, Guðbrandur, Jónas og Gunnar. 1983 fæðist Rögnvaldur, 1985 Þórey, 1989 Þóroddur, 1991 Ágúst og 1993 kom svo Eva Sóley. Nú voru börnin orðin átta og ákvörðun tekin um að nóg væri komið. Svona í framhjáhlaupi má nefna að á Staðahrauni hjá Brandi og Jónu voru líka komin á þessum tíma átta börn, til viðbótar við þau sem áður voru upptalin voru Jón Guðlaugur, Hugrún Lukka og Jóhannes mætt og allt er þetta fyrirmyndarfólk. Það var í nógu að snúast hjá húsfreyjunni á Mel, með átta börn sem gæta þurfti að og þá erum við að tala um allar vaktir, nútildags þriðju, fjórðu og jafnvel fimmtu. Það er verkefni að láta átta grislinga lesa og reikna, passa upp á sundföt og íþróttaföt, eiga til útigalla, ullarsokka og endurnýja vettlinga sem alltaf eru að týnast. Koma þeim í skólarútu, búa um í heimavist þegar það átti við og snýta og skeina eftir þörfum, svo ekki sé talað um að næra allan hópinn svo vel sé. Hugsanlega ekki framtíðin sem hin unga Guðrún Jónasdóttir sá fyrir sér þegar hún fylgdi kærastanum á Mel. „Ég hefði kannski viljað læra trésmíði,“ segir hún aðspurð um hugsanlega drauma um menntun en ekki er að sjá nokkra eftirsjá. Guðrún er mikil hagleikskona, prjónar, skreytir kerti, smíðar úr silfri og hér á árum áður saumaði hún á börnin. Þegar um hægðist og börnin komin til manns fór Guðrún að vinna á leikskóla í Borgarnesi við góðan orðstír en hætti störfum árið sem hún varð 67 ára og fannst kominn tími á annað en brauðstritið. Olli hefur um árabil unnið á vinnuvélum meðfram bústörfum og tekur enn í vélarnar þegar vantar í nágrenninu. Byggðu nýtt hús í skóginum Nú eru þau hjón sest í helgan stein, Þórey dóttir þeirra hefur ásamt manni sínum, Sigurjóni Helgasyni frá Austvaðsholti í Landsveit, tekið við búskapnum á Mel. Þorkell og Guðrún hafa byggt annað hús fyrir sig í skógarlundi í landi Mels sem þau fluttu í árið 2009. Þar hafa líka synir þeirra, Jónas og Rögnvaldur, byggt sér hús og búa þar með fjölskyldum sínum. „Brandur, Brandur, vaknaðu maður, Melur er kominn á sölu.“ Það var Olli, Þorkell Guðbrandsson, sem þarna var að koma úr partíi í sláturtíðinni í Borgarnesi og æstur reyndi að vekja stóra bróður, Guðbrand Guðbrandsson, til lífsins þegar hann uppgötvaði að jörðin sem þeir bræður hefðu verið að sverma fyrir væri loksins orðin föl. Bryndís Sigurðardóttir bryndis@yfirlit.is Mýrar: Vaknaðu Brandur, Melur er kominn á sölu – Farsæll fjölskyldubúskapur á Mel Þorkell Guðbrandsson og Guðrún Jónasdóttir á sólpallinum við Furumel. Til flutnings Gott 170fm timburhús og 67fm bílskúr til sölu til flutnings. Staðsett í Kópavogi. Seljast saman eða í sitthvoru lagi. Ýmis skipti koma til greina. Nánari upplýsingar veitir Ólafur s. 695-4000

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.