Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 38
38 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Á vegum GENO, norska kynbóta-
fyrirtækisins, er nú starfrækt öflug
rannsóknarstofa sem er sérhæfð í
fósturvísaframleiðslu.
Tilgangurinn er fyrst og fremst
sá að auka erfðaframfarir NRF
kúakynsins en talið er að með því
að framleiða fósturvísa megi auka
kynbótaframfarir kúastofnsins um að
lágmarki 20% umfram hefðbundnar
aðferðir!
Tvær aðferðir við framleiðsluna
GENO framleiðir fósturvísa með
tvenns konar aðferðum. Annars
vegar með hefðbundinni skolun,
svokallaðri MOET (Multiple
Ovulation Embryo Transfer) aðferð
og hins vegar OPU (Ovum Pick
Up) aðferð. Við hefðbundna MOET
framleiðslu er kvígan meðhöndluð
þannig að hún fær mörg egglos í einu.
Hún er svo sædd og fósturvísarnir
skolaðir úr leginu viku síðar. Að
meðaltali fást 5–7 fósturvísar með
þessari aðferð. Sömu kvígu má svo
nota á ný til fósturvísaframleiðslu
eftir u.þ.b. tvo mánuði. Með OPU
aðferðinni eru ófrjóvguð egg sótt
beint úr eggjastokkum kvígunnar
með sérstakri nál sem sogar eggin
út um slöngukerfi. Þessa aðferð má
endurtaka með 2–3 vikna millibili
yfir lengri tíma og getur gefið mun
fleiri fósturvísa en MOET tæknin.
Eftir að eggin hafa verið soguð upp
eru þau frjóvguð á rannsóknarstofu
GENO með hefðbundinni glasa-
frjóvgun. Þeir fósturvísar sem
verða til með þessari aðferð eru svo
meðhöndlaðir með sérstökum hætti í
sjö daga. Hægt er að setja upp ferska
fósturvísa en hjá GENO eru þeir
frystir, svo hægt sé að dreifa þeim
betur um landið.
Semja við ákveðin kúabú
Til að tryggja að GENO nái sem
bestum árangri hefur félagið samið
við fjölda kúabúa víða um Noreg
og með því tryggt aðgengi að
nægum fjölda kúa sem getur
fóstrað nautgripi framtíðarinnar
fyrir GENO. Þessar kýr, sem eru
þá notaðar til að setja fósturvísa
upp í, eru oftar en ekki kýr sem
ekki eru heppilegar til að rækta
undan en eru heilbrigðar og í góðu
standi og því heppilegar fyrir
fósturvísana. Búin, þar sem kýrnar
eru, fá þessa þjónustu ókeypis frá
GENO en á móti kemur að félagið
á rétt á að kaupa kálfinn þegar þar
að kemur og byggir sú ástæða á
arfgerfðargreiningu á kálfinum.
Ef greiningin bendir til þess að
um áhugaverðan kynbótagrip sé
að ræða fær bóndinn fasta greiðslu
fyrir kálfinn og skiptir ekki máli
hvort kynið er. Ef GENO vill ekki
kálfinn, heldur bóndinn honum að
sjálfsögðu.
Kaupa líka kvígur
Hér áður fyrr vildu kynbótafyrirtæki
einungis efnilega nautkálfa á
stöðvar sínar en nú er þetta orðið
breytt og GENO kaupir því líka inn
kvígukálfa, um 130 á ári. Kvígurnar
eru keyptar inn þegar þær eru 3–5
mánaða gamlar og svo eru þær
nýttar í fósturvísaframleiðslu frá
að jafnaði 12 mánaða aldri og í
3–5 mánuði eftir því hve margir
fósturvísar eru teknir. Eftir að
fósturvísaframleiðslu er lokið er
kvígan sædd og þegar hún er með
staðfest fang er hún seld frá GENO.
Þessar kvígur bera nokkuð seinna en
aðrar kvígur eða við um 30 mánaða
aldurinn og fær bóndinn sem seldi
GENO kvíguna rétt á að kaupa hana
til baka, en ef hann vill hana ekki er
hún seld annað.
Hafa náð góðum árangri
Þróunin á framleiðslu fósturvísa
hefur tekið miklum framförum á
undanförnum árum og er árangurinn
nú orðinn nánast undraverður.
Þannig er t.d. hægt að ná fósturvísum
úr ungum kvígum eins og áður segir
og eru gæði fósturvísanna mjög
góð. Samkvæmt tölum GENO eru
líkurnar á því að fá lifandi fæddan
kálf í dag frá fósturvísi 50%, þ.e.
kálfur fæðist af öðrum hverjum
uppsettum fósturvísi!
Nota kyngreiningu á sæði
Undanfarin ár hefur notkun kúabúa
á kyngreindu sæði GENO aukist
verulega og því hefur snarfækkað
fæðingum á nautkálfum í Noregi.
Um leið og þetta hefur auðvitað
lækkað framleiðslukostnað norskra
kúabúa og eflt ræktun norska
kúastofnsins þá eru færri fædd
naut verra fyrir GENO sem
þarf á nautum að halda fyrir
sæðisframleiðsluna. Framleiðsla
á fósturvísum er því leið að því
marki að fá inn í ræktunarstarfið
gripi sem henta. Enn fremur notar
vísindafólk GENO kyngreint sæði
við fósturvísaframleiðsluna, en með
því er enn betur hægt að stýra því
hvaða gripir fæðast og því hægt að
velja með um 90% öryggi hvert kyn
kálfsins verður. Fyrir vikið er enn
frekar en áður hægt að fá efnileg
naut fyrir sæðisframleiðslu og
efnilegar kvígur fyrir hefðbundna
mjólkurframleiðslu.
Hvetja bændur til
að kaupa fósturvísa
Fósturvísaframleiðsla GENO er í
dag ekki einungis til að framleiða
efnilega kynbótagripi heldur
ekki síður til þess að snarauka
erfðaframfarirnar á kúabúum
landsmanna. Þannig hvetja samtökin
bændur til þess að kaupa erfðavísa og
láta setja upp í slakari kýrnar enda er
þetta hraðvirkasta leiðin til þess að
bæta bústofninn án þess að hreinlega
kaupa gripi. Það kerfi sem GENO
notar er einkar áhugavert en bóndinn
borgar ákveðna lágmarks upphæð
fyrir fósturvísinn og uppsetningu
hans og eftir að kálfurinn fæðist fær
bóndinn lokareikning frá GENO
eftir kyni kálfsins. Ef um nautkálf
er að ræða, borgar bóndinn ákveðið
lágmarksgjald enda má ætla að stefnt
hafi verið að því að fá kvígukálf. Ef
hins vegar um kvígukálf er að ræða
þarf að borga hærra gjald, enda má
ætla að kvígan muni standa öðrum
framar innan fjóssins þegar fram
líða stundir.
200 fósturvísar að lágmarki
Uppsetning fósturvísa krefst
töluverðrar æfingar og er GENO í
samstarfi við útvalda dýralækna og
frjótækna, sem sjá um að setja upp
fósturvísana. Rannsóknir GENO
sýna að til þess að geta náð góðum
árangri við að setja upp fósturvísa
þarf dýralæknirinn eða frjótæknirinn
að setja upp að lágmarki 200
fósturvísa á ári, svo hann haldi sér
í góðri þjálfun og nái viðunandi
árangri.
Mikill áhugi er meðal bænda á
sölu og kaupum líflamba með
verndandi og mögulega verndandi
arfgerðir.
Gerður er
greinarmunur
á sölu/kaupum
á líflömbum af
líflambasölu-
svæðum og
öðrum svæðum
landsins.
Umsóknar-
frestur um sölu
er til 1. maí ár
hvert. Í ár var hann framlengdur
til 1. júlí.
Líflambasölusvæðin eru fjögur (4):
Snæfellsneshólf, Vestfjarðahólf
eystra, Norðausturhólf (frá Jökulsá
á Fjöllum að Brekknaheiði) og
Öræfasveit.
Bú á þessum svæðum geta sótt
um leyfi til sölu lamba af öllum
arfgerðum nema þau sem bera
genasamsætuna VRQ, sem er
bannað að selja yfir varnarlínur.
Umsóknareyðublað 2.11 í
þjónustugátt á mast.is.
Bú í Snæfellsneshólfi geta aðeins
selt inn í þau varnarhólf þar sem
bólusett er gegn garnaveiki. Bú í
hinum þremur varnarhólfunum geta
selt hvert á land sem er. Alltaf að því
tilskildu að viðkomandi bú sé með
söluleyfi.
Önnur svæði en þau sem teljast
til líflambasölusvæða
Bú í öðrum varnarhólfum en þessum
fjórum líflambasöluhólfum geta sótt
um leyfi til þess að selja lömb með
verndandi og mögulega verndandi
arfgerðir. Umsóknareyðublað 2.46
í þjónustugátt á mast.is. Þessar
arfgerðir eru ARR/x, T137/x, AHQ/
AHQ, AHQ/C151 eða C151/C151
(x má vera hvaða genasamsæta sem
er nema VRQ). Verklagsreglur um
afgreiðslu slíkra umsókna er að finna
á heimasíðunni mast.is undir Bændur
– Sauðfé og geitur – Flutningar og
sjúkdómavarnir.
Kaup á líflömbum
Umsóknarfrestur til kaupa á
líflömbum er til 1. júlí ár hvert. Í ár
er hann framlengdur til 20. ágúst.
Við kaup úr líflambasölu-
hólfum er fyllt út umsóknar-
eyðublað 2.09 í þjónustugátt á mast.
is og nægilegt er að taka fram fjölda
hrúta og gimbra sem óskað er að
kaupa úr hverju hólfi.
Eins og fyrr segir er eina
skilyrðið varðandi arfgerðir
lambanna að þau mega ekki bera
VRQ genasamsætuna.
Við kaup á verndandi/mögu-
lega verndandi arfgerðum úr
öðrum varnarhólfum er fyllt
út umsóknareyðublað 2.45 í
þjónustugátt á mast.is og þar þarf
að merkja við hvaða arfgerðir það eru
sem óskað er eftir að kaupa, fjölda
lamba af hvoru kyni og tiltaka þarf
nafn þess bæjar/bæja sem óskað er
eftir að kaupa af.
Höfundur er sérgreinadýralæknir
hjá Matvælastofnun.
Norðmenn veðja á fósturvísa
til að flýta erfðaframförum
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Kaup og sala líflamba
Sigurbjörg
Bergsdóttir.
GENO hefur stóreflt starfsemi sína við framleiðslu fósturvísa og sér í lagi
með glasafrjóvgunartækni. Mynd / Aurora Hannisdal.
MbryO er skrásett vörumerki GENO
fyrir NRF-fósturvísa. Mynd / GENO
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Mynd / Jón Eiríksson