Bændablaðið - 15.08.2024, Page 42

Bændablaðið - 15.08.2024, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Landsáætlunin var unnin undir forystu matvæla- ráðuneyt i s ins (MAR) ásamt fulltrúum frá Matvælastofnun (MAST), Bænda- samtökum Íslands (BÍ) og Ráð- gjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML). Stefnuskjalið er yfirgrips- mikið og tekur á flestum þáttum tengdum riðunni, s.s. vörnum gegn riðuveiki, vöktun, rannsóknum, viðbrögðum ef upp kemur riða og nýtingu fjármuna. Þar er jafnframt tilgreint hver skuli bera ábyrgð á hverju. Hryggjarstykkið er innleiðing verndandi (V) og mögulega verndandi (MV) arfgerða og verður fókusinn settur á þann þátt í þessum pistli. Næsta skref er síðan að MAR leggi fram reglugerð á grunni landsáætlunarinnar og er sú vinna í gangi hjá ráðuneytinu,en drög munu verða kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Landsáætlunin er aðgengileg á netinu, m.a. á heimasíðu RML, undir „Kynbótastarf“ > „Ræktun gegn riðu“. Áhættuflokkun bæja Í landsáætluninni eru sauðfjárbú flokkuð í þrjá flokka m.t.t. áhættu gagnvart riðusmiti. Í grunninn byggir flokkunin á varnarhólfunum og því hvenær riða greindist þar síðast. Áhættuflokkarnir eru eftirfarandi: Áhættubær er bær sem hefur faraldsfræðilega tengingu við riðubæ undangengin sjö ár fyrir staðfestingu riðunnar. Tengslin geta verið vegna samgangs fólks eða fjár eða samnýting á tækjum eða tólum (nánari lýsingu er að finna í landsáætluninni). Bær er áhættubær í allt að sjö ár frá uppkomu riðu. MAST hefur ekki gefið út hvaða bæir tilheyra þessum flokki enda er reglugerðin, sem mun byggja á landsáætluninni, ekki komin í gagnið. Strax við útgáfu nýrrar reglugerðar getur MAST hafist handa við að flokka bæina, en forsendur flokkunarinnar er að finna í landsáætluninni og geta því bændur í riðuhólfum sjálfir skoðað núna hvernig þeirra bú muni líklega flokkast. Aðrir bæir í áhættuhólfi eru þeir bæir í varnarhólfi þar sem riða hefur verið staðfest síðastliðin sjö ár, en eru hvorki riðubæir né áhættubæir. Landið allt utan áhættuhólfa. Í þessum flokki eru öll bú á landinu sem tilheyra varnarhólfum þar sem lengra er en 7 ár frá síðasta riðutilfelli eða varnarhólfum þar sem riða hefur aldrei fundist. Hraði innleiðingar á V og MV arfgerðum Eitt af grundvallaratriðum í áætluninni er að ræktaður sé upp þolinn sauðfjárstofn gegn riðuveiki. Allir þurfa að spila með í þessu en gert er þó ráð fyrir að hraði innleiðingar geti verið mismundi eftir svæðum m.t.t. áhættu á riðusmiti. Mikil áhersla verður lögð á hraða ræktun á áhættubæjum. Eins er lágmarkskrafa um innleiðingu hinnar verndandi arfgerðar ARR mismikil eftir svæðum. Þessar áherslur ættu að gefa ákveðið svigrúm til þess að lágmarka aukningu skyldleikaræktar fyrir stofninn í heild, að sem minnst sé gefið eftir í erfðaframförum í helstu kynbótaeiginleikum og erfðafjölbreytileika í stofninum sé viðhaldið. Þá er lagt upp með að markmiðin séu það rúm að þau séu bændum vel viðráðanleg. Ef allt gengur að óskum, líkt og útlit er fyrir, mun innleiðing arfgerðanna ganga mun hraðar en markmiðin gefa til kynna. Settar eru upp nokkrar vörður á leiðinni að lokamarkinu en hér verða einungis tiltekin lokamarkmiðin og markmið fyrir haustið 2024 og 2025. Áhættubæir: Fyrir bæi sem gætu tilheyrt þessum flokki, er markmiðið að allar kindur beri V eða MV arfgerðir eigi síðar en haustið 2032. Nokkrar vörður eru á leiðinni. Sú fyrsta er að í haust (2024), að þá beri meira en helmingur ásettra kynbótahrúta V/x arfgerð. Haustið 2025 beri allir kynbótahrútar á þessum búum V eða MV genasamsætur og þar af séu að lágmarki 25% kynbótahrúta arfhreinir V/V eða arfblendnir V/ MV. Í landsáætluninni er gert ráð fyrir sérstökum stuðningi við þessa bæi til að hraða ræktun eins og kostur er. Áætlunin gerir ráð fyrir að þegar >75% áa er með V/x eða MV/x arfgerðir verði takmörkunum aflétt af viðkomandi búi þó minna en 7 ár séu liðin frá uppkomu riðu á tengdum riðubæ. Aðrir bæir í áhættuhólfi: Markmiðið fyrir bú í þessum flokki er að haustið 2032 sé yfir 90% ásettra áa sem beri V eða MV genasamsætu. Markmiðið í haust (2024) er að á öllum búum sé að lágmarki 25% ásettra kynbótahrúta sem ber V/x. Haustið 2025 er markmiðið fyrir þessi bú að yfir 50% hrúta beri V eða MV genasamsætu og að lágmarki helmingur þeirra beri V. Áætlunin gerir ráð fyrir að takmörkunum verði aflétt af þessum flokki bæja, þó ekki séu liðin 7 ár frá síðasta riðutilfelli í hólfinu ef eftirfarandi árangri er náð: Að >75% kynbótahrúta séu með V/V eða V/MV arfgerðir og restin V/x eða MV/x og >50% ásettra áa sé með V/x eða MV/x arfgerðir. Landið allt utan áhættuhólfa: Í öðrum hólfum en áhættuhólfunum er svigrúm til að fara aðeins hægar í sakirnar. Lokamarkmiðið er að yfir 90% fjár í hverri hjörð beri V/x eða MV/x haustið 2044. Fyrsta varðan í áætluninni er að haustið 2025 sé yfir 50% hrúta í 25% hjarða sem beri V/x eða MV/x. Þess ber að geta að þó sam- setning hrútastofnsins sé hafður til viðmiðunar í markmiðum um innleiðingu að þá er það í raun notkun hrútanna sem mun skipta máli þegar upp er staðið. Notkun sæðingahrúta telur því einnig inn í slíkt mat. Skilvirkast að nota hrúta með tvö „græn flögg“ Markmiðin fela í sér að í áhættu- hólfunum þurfa bændur að tryggja sér kynbótahrúta með verndandi arfgerðir til notkunar strax í haust. Til að ná markmiðunum þurfa áhættubúin helst að setja eingöngu á gimbrar sem bera V eða MV arfgerðir eigi síðar en haustið 2025 og aðrir bæir í áhættuhólfum fari í þann takt ekki síðar en haustið 2026. Skilvirkasta leiðin er að bændur komi sér sem fyrst upp hrútum sem eru arfhreinir V/V eða arfblendnir V/MV þannig að allar gimbrar sem fæðast komi til álita til ásetnings og þörf fyrir arfgerðagreiningar minnki. Þó bændur á öðrum svæðum landsins hafi meira svigrúm eru allir bændur hvattir til að hefja innleiðingu að einhverju marki strax og sama gildir hér að skilvirkast er að koma sér upp sem fyrst hrútum sem bera V/V, V/MV eða MV/MV arfgerðir. Sú ánægjulega staða er þó uppi að mörg öflug ræktunarbú utan áhættusvæða eru þegar kominn í verkefnið af krafti og eru því í ÞÚ KEMST HÆRRA MEÐ BYKO LEIGU www.byko.is/leiga | leiga@byko.is | 515-4020 Smalað í Breiðuvík. Búið var að greina hjá Íslenskri erfðagreiningu um 47.000 sýni frá 1. apríl samkvæmt skráningum í Fjárvís. Ef skoðuð eru hrútlömb frá í vor, þá eru í Fjárvís skráð 5.242 hrútlömb sem bera ARR genasamsætuna og þar af 42 arfhreinir hrútar (ARR/ARR). ). Hrútlömb sem bera MV arfgerð (en eru hvorki með ARR né VRQ) eru 4.267. Ef sérstaklega er horft á hvern breytileika fyrir sig, þá hafa verið greind 429 hrútlömb með T137, 396 með C151 og 4.010 með AHQ (H154). Því ætti að vera talsvert svigrúm til að miðla gripum milli búa þannig að sem flestir geti náð sér í þetta erfðaefni. Mynd / Úr safni Bbl Riðulaust Ísland – Nokkur orð um ræktun gegn riðu og nýja landsáætlun Eyþór Einarsson. Þann 8. júlí síðastliðinn var landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu undirrituð. Skjal þetta er í raun stefnuyfirlýsing þar sem mótuð hefur verið sameiginleg stefna stjórnvalda og bænda og þar með stigið stórt skref í að blása til sóknar í baráttunni við riðuna með nýrri nálgun, sem vonandi verður lokabardaginn. En hvað felur þessi áætlun í sér? Hver eru næstu skref? Og hver er núverandi staða ræktunar gegn riðu?

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.