Bændablaðið - 15.08.2024, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
lykilstöðu varðandi líflambasölu.
Reglur um flutning lamba
grundvallast nú þegar að mestu
leyti á því að lömbin standist
ákveðnar kröfur um arfgerðir.
Benda má á heimasíðu MAST
varðandi reglur um flutning
líflamba og samantekt um þessar
reglur sem birt var á heimsíðu
RML 22. júlí síðastliðinn.
Megináherslan
á verndandi arfgerðir
Genasamsæturnar sem stjórna
næmi kinda fyrir riðu eru
flokkaðar sem verndandi (V),
mögulega verndandi (MV) eða
næmar (N). Eðlilegt hlýtur að
teljast að megináherslan sé á
það sem flokkast sem verndandi,
sérstaklega á áhættusvæðum.
Hins vegar er mikið svigrúm til
hagnýtingar á MV arfgerðum
í áætluninni enda vilji til að
viðhalda þessum breytileikum
í stofninum. Þessi nýting MV
arfgerða skapar í raun sérstöðu og
gerir ræktunarstefnu Íslands gegn
riðu frábrugðna ræktunarstefnu
Evrópusambandsins. Flokkun
arfgerðanna getur síðan tekið
breytingum þegar fram líða
stundir þegar aukin þekking
gefur tilefni til. Í dag er það ARR
genasamsætan sem flokkast sem
verndandi og er auðkennd í Fjárvís
með dökkgrænu flaggi. Mögulega
verndandi teljast breytileikarnir
H154 (AHQ samsætan), C151 og
T137 og bera þeir ljósgrænt flagg
í Fjárvís.
All gott úrval af lömbum
með V og MV arfgerðir
Heilt yfir er staðan nokkuð
góð. Í öllum hólfum er að finna
sauðfjárbú sem eru komin vel af
stað í innleiðingunni. Þátttaka
í sæðingum sl. vetur var mjög
góð og frábær þátttaka var í
arfgerðargreiningum í vor.
Þegar þessi orð eru sett á blað
er búið að greina hjá Íslenskri
erfðagreiningu um 47.000 sýni frá
1. apríl samkvæmt skráningum
í Fjárvís. Tæplega 10.000 sýni
eru í greiningarferlinu enn þá.
Hugsanlega er eitthvað af sýnum
enn sem eiga eftir að koma inn frá
vorinu. Ef skoðuð eru hrútlömb
frá í vor, þá eru í Fjárvís skráð
5.242 hrútlömb sem bera ARR
genasamsætuna og þar af 42
arfhreinir hrútar (ARR/ARR).
Hrútlömb sem bera MV arfgerð
(en eru hvorki með ARR né VRQ)
eru 4.267. Ef sérstaklega er horft á
hvern breytileika fyrir sig, þá hafa
verið greind 429 hrútlömb með
T137, 396 með C151 og 4.010
með AHQ (H154). Því ætti að
vera talsvert svigrúm til að miðla
gripum milli búa þannig að sem
flestir geti náð sér í þetta erfðaefni.
Atriði sem gott er að bændur
hafi í huga í haust
• Samkvæmt landsáætluninni þurfa
allir bændur í áhættuhólfum að
tryggja sér að lágmarki ákveðið
hlutfall kynbótahrúta fyrir næstu
fengitíð sem bera ARR/x. Sé
ætlunin að kaupa hrúta þarf að
muna að sækja um leyfi til MAST
fyrir 20. ágúst.
• Mikilvægt er að bændur utan
áhættuhólfa hefji strax innleiðingu
á V og MV arfgerðum – að allir
taki þátt þó mishratt sé farið.
Bæði til þess að raunhæft verði
að ná markmiðum um innleiðingu
arfgerðanna fyrir stofninn í heild og
einnig til að framleiða kynbótafé/
sölulömb.
• Mikilvægt er að allir bændur
taki þátt í arfgerðargreiningum.
Markmiðið er að allir ásettir hrútar
landsins séu arfgerðargreindir.
• Til að sporna gegn óæskilegri skyld-
leikaræktaraukningu í stofninum
samhliða hraðri innleiðingu
verndandi arfgerða er mikilvægt að
endurnýjun hrúta sé ör. Þannig ætti
að skipta sem mest af veturgömlu
ARR hrútunum út í haust til að
komast einni kynslóð lengra frá
upphafshrútunum sem komu frá
Þernunesi. Aðeins að horfa til þess
að halda áfram í yfirburða gripi.
Riðulaust Ísland
Landsáætlun um útrýmingu
riðuveiki skapar mikilvægan ramma
utan um þetta risastóra verkefni
sem þegar er komið á allgott skrið
og óskandi að ný reglugerð á grunni
hennar muni fljótlega líta dagsins
ljós í samráðsgátt stjórnvalda. Sú
samstaða sem einkennt hefur þetta
verkefni frá upphafi er mikilvæg
og vonandi ber okkur gæfa til að
halda í hana áfram – að bændur
og stjórnvöld vinni saman að
því að ná aðalmarkmiðinu, sem
er riðulaust Ísland. Afurðin ætti
að vera að sauðfjárræktin eflist,
hömlur minnki og umtalsverðir
fjármunir sparast.
Höfundur er ráðunautur
á búfjárræktarsviði.
Veitulausnir
ENDURVINNSLA Í 80 ÁR
Þessar áherslur ættu að gefa
ákveðið svigrúm til þess að lágmarka
aukningu skyldleikaræktar
fyrir stofninn í heild ...