Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 44

Bændablaðið - 15.08.2024, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Í þessum þriðja og síðasta hluta frásagnar minnar af ráðstefnu ICAR í Bled beini ég sjónum að síðasta degi hennar þar sem einkum var rætt um tæki til stuðnings við ákvarðanatöku, sjálfbæra bústjórn, hnattrænar áskoranir í erfðavali fyrir minni metanlosun í jórturdýrum og mælingar á mjólk með innrauðri tækni og tengingu þeirra við sjálfbæra búskaparhætti. Dagskráin var keyrð með nokkrum samhliða málstofum þannig að undirritaður varð að velja og hafna, því miður, en allt er þetta mjög áhugavert. Ég sat fyrst erindi Birgit Gredler- Grandl hjá Háskólanum í Wageningen í Hollandi. Hennar erindi bar yfirskriftina „Erfðaval fyrir minni metanlosun mjólkurkúa – tilbúið til innleiðingar?“ Hún byrjaði á að fara yfir stöðuna og sagði að 2021 hefði metanlosun vegna iðragerjunar hjá fimm stærstu búfjártegundunum numið rúmlega 97 þús. kílótonnum. Þar af ætti nautakjötsframleiðslan rúman helming (55%) og mjólkurkýr tæpan fimmtung (19%). Til þess að geta notfært sér erfðaval þyrfti þó ýmislegt til að koma. Í fyrsta lagi þyrfti að skilgreina framleiðsluumhverfið og ræktunarmarkmiðið, í öðru lagi þyrfti upplýsingar (arfgerðir, ættartengsl, svipgerðir), í þriðja lagi yrði að ákveða hvernig staðið væri að vali gripa til kynbóta, í fjórða lagi miðla upplýsingum og nota þær og í fimmta lagi huga að framförum og erfðabreytileika. Hún sagði að í dag væru til svipgerðarmælingar á metanlosun hjá 27 þús. Holstein-kúm, flestum í Hollandi, Danmörku og á Spáni þar sem í gangi væri skipu- og regluleg gagnasöfnun hvað þennan þátt varðar. Auk þess væru verkefni með mælingar með „GreenFeed“ komnar í gang í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kanada. Hjá öðrum kúakynjum (rauðum og Jersey) væru til rúmlega 9 þús. mælingar og uppistaðan væru danskar Jersey, rauðar danskar og norskar NRF-kýr. Vandamálið við mælingarnar væri hins vegar að þær væru erfiðar og dýrar ef þær ættu að vera mjög nákvæmar. Með hliðsjón af gæðum, verði og aðgengi væri „GreenFeed“-bás og/eða þefarar (sniffers) raunhæfustu lausnirnar. Rannsóknir hafa sýnt að arfgengi metanlosunar er frá 0,16 upp í 0,32 sem þýðir að hægt er að velja fyrir minni metanlosun. Sterk fylgni er með metanlosun og lífþunga og þurrefnisáts þannig að þær kýr sem eru stórar og/eða éta mikið losa meira metan. Aftur á móti hefur komið fram veik neikvæð fylgni við afurðir í kg mjólkur en veik jákvæð við afurðir í kg verðefna. Arfgengi upp á 0,20 þýðir að til þess að ná ásættanlegu öryggi þarf nálægt 20 þús. mælingar þannig að þess vegna væri hægt að innleiða erfðaval fyrir metanlosun, a.m.k. í Holstein-kúastofninum. Hins vegar væri enn ósvarað hvernig skilgreina ætti eiginleikann og setja ræktunarmarkmið. Á að horfa til metanframleiðslu í g/dag, metan á hverja fóðureiningu, metan á hverja framleidda einingu eða framleitt metan á t.d. hvert kg lífþunga. Hvað verður fyrir valinu skiptir miklu máli og þarf að ákvarðast með hliðsjón og fylgni metanlosunar við aðra framleiðslueiginleika. Að loknu erindi Birgit skipti ég um málstofu og hlýddi á nokkur erindi um tól og tæki til stuðnings við ákvarðanatöku sem stuðlað gætu að sjálfbærri bústjórn. Fyrsta erindið sem ég hlýddi á flutti Robert Fourdraine, aðstoðarframkvæmdastjóri skýrslu- haldsdeildar Háskólans í Norður- Karólínu, en það fjallaði um tæki fyrir bændur til þess að áætla fjölda kvígna til endurnýjunar. Robert sagði að áður hefði þetta ekki verið neitt mál fyrir bændur, ef þá vantaði kvígur voru þær einfaldlega keyptar af öðrum. Nú væri hins vegar öldin önnur. Blendingskálfar væru mun verðmætari en hreinræktaðir Holstein- nautkálfar og því notuðu bændur eins mikið kyngreint sæði og þeir gætu. Kvígur umfram þarfir væru því einfaldlega ekki til. Forritið aðstoðaði bændur við að taka ákvarðanir út frá lykiltölum eins og hvað þyrfti margar kýr og hversu margar kvígur væru tiltækar. Þetta væri reiknað út frá tölum um ófyrirséða förgun, sölu á kvígum, stækkun búsins, sæðingar/ mán., fanghlutfalli, fósturláti, dauðfæddum kálfum, kálfadauða og aldri við 1. burð. Þannig gætu bændur nú tekið upplýstari og betri ákvarðanir um notkun á kyngreindu sæði og holdasæði án þess að eiga á hættu á að það vantaði kvígur til endurnýjunar. Erindi Valentinu Ferrari við Háskólann í Padova á Ítalíu fjallaði að segja má um það sama. Hún lýsti forriti sem reiknar endurnýjunarþarfir við ítalskar aðstæður þar sem tekið er tillit til kostnaðar við kvíguuppeldi og þess munar sem er á verðmæti hreinræktaðra Holstein-nautkálfa og holdablendinga. Markmiðið er að ala ekki kvígur umfram þarfir og selja eins marga nautkálfa og hægt er til þess að hámarka hagnað. Önnur erindi málstofunnar fjölluðu um tæki til þess að aðstoða bændur við ákvarðanatöku. Má þar nefna app sem metur erfðaframvindu við mismunandi notkun nauta, þ.e. hvaða áhrif það hefur á reksturinn að velja nautin í stað þess að nota þau sem í boði eru án sérstakrar pörunar. Þar kom fram athyglisverður munur þar sem skipulegt val samkvæmt ákveðnu markmiði gefur mun betri raun en tilviljanakennd notkun sömu nauta. Lokaerindi málstofunnar fjallaði svo um viðhorf slóvenskra bænda gagnvart ræktunarmarkmiðum. Það var flutt af Mariu Klopčič, prófessor við Háskólann í Lubljana. Gerð var könnun meðal bænda og voru helstu niðurstöður þær að skipta má þeim í þrjá hópa, þá sem meta framleiðslueiginleika mest, þá sem horfa mest til frjósemis-, heilsufars- og endingareiginleika og þá sem einkum líta til byggingar kúnna og vinnuþátta. Sammerkt öllum var þó að vilja minnka vægi á afurðir, bæði mjólk og kjöt, en auka vægi heilsufars, frjósemi og eiginleika sem auka endingu og minnka vinnu. Maria sagði kannanir sem þessar mikilvægan leiðarvísi fyrir þá sem stýra ræktunarstarfinu til þess að taka ákvarðanir um hver ræktunarmarkmiðin ættu að vera. Næsta málstofa sem ég sat fjallaði um nákvæmni mjólkurmælinga úr einstökum kúm. Þar voru m.a. tvö erindi um leifar milli kýrsýna (e. carryover) frá vinnuhópi ICAR um mæli- og sýnatökubúnað. ICAR hyggst gera viðmiðunarreglur sem nota má til þess að draga úr líkum á leifum en þær geta leitt til rangrar lyfjameðhöndlunar eða ótímabærrar förgunar á kúm. Matthew Thompson hjá ICBF á Írlandi flutti erindi um fitu- og próteinhlutfall kýrsýna í samanburði við tanksýni. Fram kom að fylgnin er 0,86 fyrir fituhlutfall en 0,92 fyrir próteinhlutfall og þarlendis er magn verðefna vanmetið í skýrsluhaldinu gagnvart innlagðri mjólk, öfugt við það sem við þekkjum hér. Mesta misræmið er á fituhlutfalli. Matthew sagði ekki auðvelt að finna einhverja eina skýringu en þó væri greinilegt að rafræn og sjálfvirk sýnataka væri nákvæmari en handvirk. Í málstofu sem fjallaði um áhrif erfðatækni á sjálfbærni vakti athygli mína erindi frá Háskólanum í Lubljana þar sem greint var rannsóknum á erfðaefni mjólkur til þess að meta júgurhreysti. Fram kom að nærri 7 þús. erfðavísar finnast á öllum stigum mjaltaskeiðsins, breytileiki er mikill og flest bendir til þess að nota megi arfgreiningu á mjólk til þess að kynbæta fyrir júgurhreysti í framtíðinni. Mark Waters hjá ICBF á Írlandi sagði frá arfgerðargreiningum þar í landi og þeirri ákvörðun Íra að arfgreina allan kúastofninn. Hann sagði það mat þeirra að arfgreiningar skiluðu fjárfestingunni fjórfalt til baka í meiri erfðaframförum og öðrum þáttum, eins og rekjanleika. Á árinu 2023 hefði 60% holdakúa verið arfgreindar en aðeins 6,5% mjólkurkúa. Í ársbyrjun 2024 var átaki ýtt úr vör þar sem innleiddar voru sýnatökur með einstaklingsmerkjum (eins og við gerum hérlendis). Nú væru 65% holdakúnna og 35% mjólkurkúnna arfgreindar og stefnt væri að auka þátttöku enn frekar. Kostnaður við hverja greiningu er 18 evrur (um 2.700 krónur) og skiptist hann jafnt milli mjólkur- og kjötiðnaðarins, ríkisins og bænda. Ætternisvillur virðast nokkuð algengar en Mark sagði þær vera um 15% í mjólkurkúnum og 11% í holdakúnum. Hér á landi hefur þetta hlutfall verið 5–6%. Með það í huga að fyrir um aldarfjórðung voru kappa-kasein arfgerðir íslenskrar kúamjólkur skoðaðir og íslenska kúamjólkin sögð hafa töluverða sérstöðu vakti erindi frá Ísrael forvitni mína. Þar var sagt frá rannsókn á áhrifum kappa-kasein arfgerða á hleypi- og ystingareiginleika mjólkur úr ísraelskum Holstein- kúm. Í Ísrael fer ríflega fjórðungur mjólkurinnar til framleiðslu harðra osta og um 30% til framleiðslu mjúkra osta. Það eru því verulegir hagsmunir í húfi varðandi nýtingu og eiginleika mjólkurinnar sem hráefni til ostagerðar. Þekktar eru þrjár kappa- kasein samsætur, þ.e. arfgerðir A, B og E, þar sem B hefur jákvæðust áhrif en E neikvæðust. Í Ísrael er tíðni arfgerða þannig að 33% bera AA, 16% BB, 46% AB, AE 3%, BE 2% og EE finnst nánast ekki. Samsætutíðnin er 57% A, 40% B og 3% E samanborið við að snemma á tíunda áratug síðustu aldar var tíðni B samsætunnar 17% og sögðu höfundar aukna tíðni tengjast vali fyrir hærra próteinhlutfalli í mjólk. Það er í takti við þær niðurstöður sem fram komu hér á landi um aldamótin. Rannsóknin staðfesti að ystingareiginleikar mjólkur eru mestir úr kúm með BB arfgerð og minnstir hjá kúm með AA arfgerð. Áhrif mjólkurskeiðs voru einnig til staðar þar sem ostagerðaeiginleikar mjólkur voru betri hjá kúm á 1. mjólkurskeiði Frá ráðstefnu ICAR í Bled í Slóveníu – 3. hluti Guðmundur Jóhannesson. Árleg ráðstefna og aðalfundur ICAR (International Committee for Animal Recording) voru haldin í Bled í Slóveníu dagana 19.-24. maí sl. Þessi samtök eru á heimsvísu og láta sig varða allt sem viðkemur skýrsluhaldi og skráningum búfjár og má þar nefna staðla fyrir skýrsluhald og rafræn samskipti, arfgreiningar, efnamælingar á mjólk, sæðisgæði og svo mætti áfram telja. Alls eru fyrirtæki og samtök frá 55 löndum aðilar að ICAR nú og fer stöðugt fjölgandi. Í fjósi Tomaž Černivec. Fjósið er glæsilegt legubásafjós með nánast öllum þeim tæknibúnaði sem til boða stendur. HVERNIG VÆRI AÐ FARA FREKAR INN UM GLUGGANN? Liftroller er lausn sem auðveldar allan flutning á byggingarefni á færibandi inn og út af verkstað. Þannig minnkar álagið á starfsfólki. www.byko.is/leiga | leiga@byko.is | 515 4020 LEIGUVARA

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.