Bændablaðið - 15.08.2024, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Auglýsing um skipulagsmál
í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga
að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.
Eystri-Sámsstaðir – breyting á deiliskipulagi.
Deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir nýrri lóð sem gerir ráð fyrir sex gestahúsum
fyrir ferðamenn. Hvert hús um sig verður að hámarki 60 m² að stærð.
Hólmalækur – nýtt deiliskipulag, samhliða aðalskipulagsbreytingu.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 10 lóðum fyrir gestahús fyrir ferðamenn. Heimilt verður
að byggja allt að 250 m² gestahús fyrir ferðamenn með möguleika á fastri búsetu á lóð 2-8.
Einnig verður heimilt að byggja allt að 300 m² skemmur á lóðunum undir rekstartengdan
búnað og 150 m² undir þjónustuhús fyrir rekstur svæðisins. Á lóð 1 er möguleiki að byggja
4-6 hús í 6 klösum innan byggingareitar, heildarbyggingamagn er 2.000 m² og hámarkshæð
8 m. Mannvirki skulu falla inn í umhverfið en að öðru leyti eru húsform frjáls.
Ofangreindar tillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra og á Skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar frá 6. ágúst 2024. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta
er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar og er athugasemdafrestur veittur
til og með 27. september 2024. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina
eða skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra
að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst breytinga á aðalskipulagi
Rangárþings eystra.
Hólmalækur – aðalskipulagsbreyting, samhliða nýju deiliskipulagi.
Aðalskipulagslýsingin gerir ráð fyrir að 37 ha landbúnaðarlandi (L1) verði breytt
í íbúðarbyggð (ÍB).
Hægt er að nálgast skipulagstillöguna á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar frá 6. ágúst 2024. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta
er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar og er athugasemdafrestur veittur
til og með 27. september 2024. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða
skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4,
860 Hvolsvelli.
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt skipulagslýsing vegna breytinga
á aðalskipulagi Rangárþings eystra.
Fornhagi – breyting á aðalskipulagi.
Aðalskipulagslýsingin gerir ráð fyrir að 37 ha landbúnaðarlandi (L1) verði breytt
í íbúðarbyggð (ÍB) fyrir allt að18 lóðum.
Hægt er að nálgast skipulagstillöguna á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar frá 6. ágúst 2024 með athugasemdafrest til og með 6. september 2024.
Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða skriflega
til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli
F.h. Rangárþings eystra
Þóra Björg Ragnarsdóttir
Fulltrúi skipulags- og byggingarsviðs Rangárþings eystra
en eldri kúm. Höfundar sögðu að
mælingar á ystingareiginleikum
væru tímafrekar og dýrar, leiðin til
þess að bæta ostagerðareiginleika
mjólkur væri með kynbótum með
vali á nautum með B arfgerðir. Hins
vegar væri þeim ekki kunnugt um
að neins staðar í heiminum greiddi
mjólkuriðnaðurinn aukalega fyrir slíka
mjólk og því spurning hvað gera ætti.
Sem áhugamanni um nautgriparækt
almennt og tækninýjungar lék mér
hugur á að vita hverjar niðurstöður
Bandaríkjamanna á erfðafræðilegu
mati á magnbundnum mjaltahraða og
tímalengd mjalta væru. Asha Miles
greindi frá niðurstöðum rannsóknar
varðandi mælingar á mjólkurflæði
og tímalengd mjalta í BNA. Helstu
niðurstöður voru þær að arfgengi
mjólkurflæðis reyndist vera 0,37 ef
allar mælingar voru teknar með en 0,28
ef einungis voru notaðar flæðitölur
á mælingardegi. Fylgni milli allra
mælinga og mælidagsmælinga var 0,99
sem þýðir að um sama eiginleikann er
að ræða. Mjólkurflæði hefur jákvæða
fylgni við nythæð og frumutölu,
þ.e. kýr sem mjólkast hraðar mjólka
meira og hafa hærri frumutölu. Þessar
niðurstöður komu ekki á óvart og eru
í takti við það sem hefur t.d. komið í
ljós á Norðurlöndunum.
Síðasti dagurinn var helgaður
heimsóknum á bú. Sem sannur
áhugamaður um nautgriparækt fór
ég í ferð á tvö kúabú. Bæði þessi
bú eru þátttakendur í „Digi4Live“,
Evrópusambandsverkefni með það
að markmiði að hjálpa evrópska
búfjárgeiranum að nýta stafræna tækni
og gögn til hagsbóta fyrir bændur
og matvæla- og tæknifyrirtæki og
auðvelda opinbera stjórnsýslu. Eitt
af því sem verkefnið miðar að er
að auka dýravelferð, draga úr tapi
næringarefna og notkun sýklalyfja
fyrir árið 2030, í samræmi við græna
sáttmála Evrópusambandsins (e.
European Green deal).
Búin sem voru heimsótt voru
annars vegar bú Nada og Martin
Jamšek í Komenda og hins vegar bú
Tomaž Černivec í Radomilje. Hjá
Nada og Martin eru 49 Holstein-
kýr í básafjósi með rörmjaltakerfi.
Ársframleiðslan er rúmlega 720
þús. lítrar með 4,14% fitu og 3,60%
próteini, 85% eru seld mjólkurbúinu,
10% á svæðinu í mjólkursjálfsölum
og 5% beint til skóla. Um 35 ha.
eru nýttir til heyskapar og beitar, 8
ha. skóglendi og 61 ha. í annarri
ræktun (maís, sojabaunir, bygg). Á
móti okkur tók sonur þeirra Nada og
Martin sem er að ljúka háskólanámi í
búvísndum og ætlar að taka við búinu.
Hann sagði framtíðarstefnuna vera að
byggja nýtt fjós á nýjum stað (hærra í
landinu) því að í vetur hefði flætt inn
í fjósið og kýrnar staðið í 1,5 metra
af vatni. Auk þess væri mikilvægt
að bæta dýravelferð. Athyglisvert
var að heyra viðhorfin á þessu búi
þar sem aðallega var horft inn á við,
hverjir væru styrkleikar og veikleikar
búsins. Á búi Tomaž var annað upp
á teningnum. Það bú er mun stærra,
180 kýr í nýju 200 bása legubásafjósi
með þremur GEA-mjaltaþjónum,
60 ha. til heyskapar og beitar, 18 ha.
skóglendi og 110 ha. í öðru (maís,
hveiti, bygg, smárablanda). Í fjósinu
er sjálfvirk fóðrun og eldri byggingar
nýttar fyrir kvígueldi. Ársframleiðslan
er um 1.650 þús. lítrar með 3,93%
fitu og 3,36% próteini, 97% seld
mjólkurbúinu og 3% í sjálfsölum og
í skóla. Á þessu búi var aðallega litið
út á við og viðhorf bændanna þau
að afkoman réðist aðallega af ytri
framleiðsluaðstæðum. Mér fannst
sem menn teldu búið standa sterkt og
lítið hægt að bæta heima fyrir, það
sem aflaga færi væri öðrum að kenna.
Það var skemmtilegt að sjá þessi bú,
svo ólík sem þau eru, og móttökurnar
voru bæði góðar og höfðinglegar.
Maður fékk á tilfinninguna að aðstæður
til mjólkurframleiðslu í Slóveníu væru
góðar þó vissulega sé landverð hátt
en bæði þessi bú eru nokkuð nærri
höfuðborginni, Lubljana. Það sem
vekur athygli er hið mikla nábýli
búanna við þéttbýli og hversu algengt
það virðist vera að hluti mjólkurinnar
sé seldur milliliðalaust í nánasta
umhverfi búanna. Þá virðast viðhorf
til landbúnaðar og mjólkurframleiðslu
á margan hátt vera jákvæðari en maður
upplifir norðar í Evrópu, landbúnaður
nýtur ríkari viðurkenningar sem
atvinnugrein og almenningur geri sér
almennt betur grein fyrir mikilvægi
þess að nýta landið, framleiðslu
matvæla heima fyrir og þeim afleiddu
störfum sem landbúnaðurinn skapar.
Þessi viðhorf verður maður því miður
ekki mikið var við hérlendis og því
án efa margt sem við getum lært af
nágrönnum okkar í Evrópu.
Ráðstefnan var, heilt yfir,
mjög vel heppnuð, skemmtileg og
fróðleg. Auðvitað er kynbótastarfið
fyrirferðarmikið og þar beinast
sjónir einkum að erfðamengisúrvali
og þeim miklu möguleikum sem
arfgerðargreiningar skapa. Rannsóknir
á því sviði munu taka stakkaskiptum
á komandi árum og færa kynbætur
enn meira í átt til þess að rækta
endingargóðar og hraustar kýr til þess
að bæta afkomu nautgriparæktarinnar
frá því sem nú er. Mér er nokkuð ljóst,
eftir að hafa hlýtt á nokkur erindi
um notkun kyngreinds sæðis, að
skipulagslaus notkun þess getur leitt
okkur til ófarnaðar. Það hefur löngum
verið sagt að í upphafi skyldi endinn
skoða og það á við hér. Innleiðing
kyngreinds sæðis, svo dæmi sé tekið,
er eitt af því þar sem mikilvægt er að
skoða og læra af reynslu annarra og
undirstrikar mikilvægi þess að fylgjast
með, sækja og endurnýja þekkingu
erlendis frá. Ráðstefnur sem þessar
eru kjörinn vettvangur til þess.
Höfundur er ábyrgðarmaður
í nautgriparækt.
Í fjósi Nada og Martin Jamšek. Kýrnar eru hreinar og fallegar þótt fjósið sé
komið til ára sinna.
ALLT FRÁ
FYRSTU
HUGMYND AÐ
FULLBÚNU HÚSI
▶ Hönnun og ráðgjöf
▶ Framleiðsla
▶ Uppsetning
▶ Verkefna- / byggingastjórn
Súlur
stálgrindarhús
fyrir atvinnu-, iðnaðar- og
íbúðarverkefni
kristjan@sulurehf.is www.sulurehf.is 669 0803