Bændablaðið - 15.08.2024, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024Af vettvangi Bændasamtakanna
Við þekkjum öll þann einfalda veruleika að það eru tvær hliðar á hverjum
peningi. Hvorki fleiri né færri. Í hita umræðuátaka er reyndar stundum skautað
fram hjá þessu ófrávíkjanlega lögmáli og sum okkar setja þá gjarnan kíkinn
fyrir blinda augað og fyrirgefa yfirsjónina vegna þess að tilgangurinn helgi
meðalið.
Það er hins vegar útilokað að fyrirgefa sjálfu Viðskiptaráði Íslands, sem
að eigin sögn á vef sínum [„...] vinnur að því að efla íslenskt atvinnulíf og
skapa þannig forsendur til framfara og bættra lífskjara.“
setur fram villukenningu sem jafnvel mætti kalla falsfrétt
um sparnað í heimilisbuddu landsmanna með því að
afleggja tolla á innflutt matvæli.
Viðskiptaráð Íslands er frjáls félagasamtök sem
segjast hafa unnið samkvæmt framangreindu leiðarljósi
allar götur síðan 1917. Nokkuð augljóst virðist vera að
á þeim bæ teljist íslenskur landbúnaður ekki lengur til
atvinnulífsins og þrátt fyrir fagurgala um bætt lífskjör
almennings virðast þröngir sérhagsmunir ráða alfarið för
þegar slengt er fram staðhæfingum um búhnykk heimilanna með ótolluðum
matvælainnflutningi. Hjá hagfræðingunum, sem í þessu tilfelli mætti kannski
frekar kalla spunameistara, er hinni hliðinni á peningnum algjörlega sleppt
og hlýtur hún þó að vera hverjum manni augljós.
Okkur þótti öllum vænt um að heyra á sínum tíma þau fleygu orð falla
frá fyrrverandi forsetafrú okkar í hrifningarvímu á Ólympíuleikunum í Peking
árið 2008 að „Ísland er ekki lítið land – það er stórasta land í heimi“. Það er
hins vegar grafalvarlegt ef því er í alvörunni trúað innan veggja Viðskiptaráðs
Íslands að samfélagið okkar sé af þeirri stærðargráðu að við getum ein allra
þjóða heims sagt okkur úr lögum við heimsmarkaðinn hvað tollvernd varðar.
Samningar allra þjóða um tollvernd eru nefnilega gagnkvæmir. Okkar matvæli
bera mismunandi mikla tolla inn í viðkomandi lönd og samningsstaða okkar í
þeim efnum myndi veikjast til mikilla muna ef hér væri einfaldlega „ókeypis
aðgangur og allir velkomnir“. Tollvernd þjóða heims byggist á gríðarlega
stóru og flóknu alþjóðakerfi marghliða samninga sem allir lúta að því að
jafna aðstöðumun og tryggja rekstrargrundvöll landbúnaðar hverrar þjóðar.
Það er auðvitað einfalt reikningsdæmi að finna út mögulega verðlækkun
ef engir væru tollar eða aðflutningsgjöld á matvæli. Það væri eflaust líka hægt
að lækka skatta á heimilin með því að leggja t.d. niður löggæslu í landinu
og jafnvel dómstólana líka. En hverjar yrðu afleiðingarnar? Hvernig yrði
hin hliðin á peningnum? Og hvað myndi það þýða þegar upp er staðið ef
t.d. bæði íslenskum landbúnaði og væntanlega um leið langstærsta hluta
ferðaþjónustunnar myndi blæða út? Ég er þá ekki eingöngu að hugsa um
atvinnumissi bænda og landbúnaðartengdra starfa. Og ég er heldur ekki að
hugsa eingöngu um tekjur þjóðarbúsins af hinum blómlega ferðamannaiðnaði.
Ég hef líka í huga þann landbúnaðartengda menningararf sem íslenskri þjóð
er í blóð borinn í gegnum árhundruðin frá landnámi Íslands. En ekkert af
þessu kemst inn í reikningsformúlur sérfræðinga Viðskiptaráðs.
Þeir hafa reiknað út umtalsverðar lækkanir á innfluttum matvælum
ef tollar yrðu aflagðir. Væntanlega yrði matvaran um leið langt undir verði í
viðmiðunarlöndum okkar. Kannski er það reyndar eitt og sér of gott til að geta
verið satt. En hvernig skyldu þessir sömu reiknimeistarar íslenskra innflytjenda
útskýra íslenskt útsöluverð á t.d. húsgögnum, fötum og skóm? Allt eru þetta
vörur sem fluttar eru til landsins án nokkurra tolla eða aðflutningsgjalda. Samt
er verðið langt fyrir ofan það sem býðst utan landsteinanna og Íslendingar
flykkjast enn tugþúsundum saman í innkaupaferðir til útlanda eða kaupa
varninginn af alþjóðlegum netverslunum.
Þetta útspil Viðskiptaráðs Íslands er að mínu viti langt í frá málefnalegt
innlegg í umræðu um heildarmyndina þegar efling íslensks atvinnulífs og
hagur heimilanna er annars vegar. Og auðvitað veldur það vonbrigðum
líka, enda þótt það komi e.t.v. ekki á óvart, að framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda, eða ætti ég í þessu tilfelli að tala frekar um „félag innflytjenda“
stökkvi á vagninn og taki undir heilshugar. Það er hins vegar vonandi að
fólkið í landinu gjaldi varhug við málflutningi af þessu tagi og hafi það
í huga að á þessum peningi eru klárlega tvær hliðar – og önnur þeirra er
vægast sagt ófrýnileg. Þess vegna var gott að sjá þau afdráttarlausu viðbrögð
fjármálaráðherra fyrr í vikunni að honum þætti þetta fráleit hugmynd enda
þótt hann orðaði það eilítið kurteislegar.
Trausti Hjálmarsson,
formaður Bændasamtaka Íslands.
Pistill formanns
Trausti
Hjálmarsson.
Í síðustu viku opnaði ég nýjan vef
Líforku. Opnun vefsvæðisins er hluti
samstarfsverkefnis matvælaráðu-
neytisins, umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytisins og Samtaka
sveitarfélaga og atvinnuþróunar
á Norðurlandi eystra (SSNE) um
almennt söfnunarkerfi dýraleifa
á landsvísu.
M a r k m i ð
verkefnisins er að
koma á fót sam-
ræmdu söfnunar-
kerfi dýraleifa á
landsvísu og
koma þeim í við-
eigandi úrvinnslu
á Dysnesi í Eyja-
firði. Í dag er
ekkert slíkt kerfi til staðar og förgun
dýraleyfa er ekki í föstum skorðum.
Frá árinu 2013 hefur Eftirlits-
stofnun EFTA (ESA) rekið mál gegn
Íslandi vegna ófullnægjandi innviða
til förgunar á aukaafurðum dýra. Í
júlí 2022 var Ísland dæmt brotlegt af
EFTA dómstólnum. Verði ekkert að
gert gæti þetta leitt til þess að ESA
stöðvi matvælaútflutning frá Íslandi
sem myndi hafa alvarleg áhrif á
íslenska matvælaframleiðslu, þar
með talinn útflutning á fiski. Með
uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi
erum við að tryggja að Ísland standi
við alþjóðlegar skuldbindingar og
stuðla að öruggri matvælaframleiðslu.
Uppbygging líforkuversins og
söfnunarkerfisins hefur þó meiri
og ríkari tilgang en að uppfylla
alþjóðlegar skuldbindingar. Í upp-
færðri aðgerðaáætlun í loftslags-
málum, sem kynnt var í sumar,
var ákveðið að hefja uppbyggingu
nauðsynlegra innviða fyrir líforkuver
á Dysnesi. Samkvæmt áætluninni
er markmiðið að árið 2027 verði
verksmiðjan í stakk búin til að taka við
10.000 tonnum af lífrænum úrgangi
árlega. Þetta verkefni er lykilatriði til
að ná loftslagsmarkmiðum Íslands og
minnka losun gróðurhúsalofttegunda
sem kemur til vegna urðunar. Þá mun
líforkuverið á Dysnesi nýta nýjustu
tækni til að umbreyta lífrænum
úrgangi í kjötmjöl og fitu sem má
nýta í orkugjafa svo sem lífdísil.
Nú er unnið að tillögu um
hvernig söfnun dýraleifa verður
háttað, með það að leiðarljósi að
kerfið verði sem einfaldast og
íþyngi ekki bændum. Markmiðið
er að byggja upp kerfi sem tryggir
að dýraafurðir verði meðhöndlaðar
á öruggan og viðurkenndan
hátt, í samræmi við alþjóðlegar
skuldbindingar og umhverfisverndar-
staðla. Líforkuverið á Dysnesi
verður ekki aðeins hjartað í þessu
nýja kerfi, heldur einnig tákn um
hvernig við getum umbreytt úrgangi
í verðmæti og skapað tækifæri til
orkuvinnslu og endurnýtingar í anda
hringrásarhagkerfisins.
Líforkuverið á Dysnesi er lifandi
dæmi um hvernig nýsköpun og
framfarir geta farið hönd í hönd með
umhverfisvernd og efnahagslegum
ávinningi. Ég tel að við eigum að
fara að fordæmi Finna þar sem er
eitt líforkuver enda kostnaðarsamt
að koma slíku á laggirnar.
Ég hlakka til að fylgjast með
framgangi þessa verkefnis og þeirri
jákvæðu breytingu sem það mun hafa
á íslenskt samfélag.
Höfundur er matvælaráðherra.
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir.
Líforkuver á Dysnesi
Sýk la ly f j a -
ónæmi er ein
stærsta heil-
brigðisógn sem
heimurinn stendur
frammi fyrir í dag
og fer hún vaxandi
með hverju ári.
Neytendur geta því
stigið skref í því að
sporna gegn sýklalyfjaónæmi meðal
annars með því að kaupa íslenskar
landbúnaðarafurðir og koma þannig
í veg fyrir frekari útbreiðslu.
Samkvæmt könnunum sem
framkvæmdar hafa verið hér á landi
vilja flestir íslenskir neytendur styðja
innlenda matvælaframleiðslu, verslun
og þjónustu. Flestir vilja vita hvaðan
hráefnin koma, hvar og hvernig
matvælin voru framleidd o.s.frv. og
telja það mikilvægt. Framleiðendur
íslenskra vara vilja margir hverjir
svara kalli neytenda og markaðsetja
vöru sína með óyggjandi hætti svo
neytendur geti auðsjáanlega séð að
vara eða framleiðslan sé íslensk í raun.
Bændasamtök Íslands og Samtök
iðnaðarins sendu Alþingi erindi árið
2015 og impruðu á mikilvægi þess að
unnt verði að nota þjóðfána Íslendinga
til að auðkenna íslenska framleiðslu og
töldu það styrkja íslenska framleiðslu
og þar með atvinnulífið. Frumvarpi til
laga um breytingu á lögum um þjóðfána
Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið
var ætlað að bæta úr annmörkum á
þágildandi löggjöf og opna fyrir þann
möguleika að nýta megi þjóðfánann til
auðkenningar á vöru og þjónustu sem
er íslensk að uppruna. Orðin „íslensk
að uppruna“ voru nýmæli og til þess
að vara gæti talist slík yrði hún að
vera framleidd hér á landi úr innlendu
hráefni að uppistöðu til.
Frumvarpið varð að lögum en
þó með þeim breytingum að vara úr
aðfluttu hráefni að hluta eða öllu leyti
telst íslensk að því skilyrði uppfylltu
að hún hafi hlotið nægilega aðvinnslu
hérlendis. Tilgangur þess er að tryggja
að nægilegur hluti virðisaukningar
vöru verði til í landinu. Undantekning
á því er að ef aðflutta hráefnið telst
vera einkennandi hluti vörunnar og
er eðlislíkt búvöru eða vöru sem er
framleidd hér á landi á garðyrkjubýli,
gróðrarstöð eða garðyrkjustöð.
Lögin fjalla ekki nánar um
hvað sé nægileg aðvinnsla og lagði
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til
að ráðherra verði falið að útfæra
nánar í reglugerð hvað teljist nægileg
aðvinnsla, hvað teljist einkennandi
hluti vöru og eðlislíkt hráefni og
skilgreiningu framleiðslulands.
Ráðherra setti reglugerð nr.
618/2017 þar sem skilgreind er
nægileg aðvinnsla á eftirfarandi hátt:
„Framleiðsla eða vinnsla vöru sem
skapar næga virðisaukningu til þess
að unnt sé að meta vöruna íslenska.“
Erfiðlega reynist að sjá að um nánari
útfærslu sé að ræða í reglugerðinni
og verður að telja hugtakið „nægileg
aðvinnsla“ enn matskennt og galopið
til túlkunar.
Neytendur ættu að geta treyst því
að með kaupum á vöru, þjónustu
eða framleiðslu sem ber íslenska
þjóðfánann í markaðssetningu séu
þeir að styðja við innlenda framleiðslu.
Með þessum forsendum sem liggja
fyrir í málinu er enn óljóst hvers konar
aðvinnsla sé nægileg, sem tryggir
að nægilegur hluti virðisaukningar
vöru hafi verið til í landinu til þess
að uppfylla skilyrði laganna að nota
þjóðfána Íslendinga í markaðssetningu.
Það er ekki „Íslenskt staðfest“.
Þetta kallast á góðri íslensku að
varalita svínið.
Höfundur er lögfræðingur.
Íslensk innflutt vara
(með nægilegri aðvinnslu)
Katrín
Pétursdóttir.
Ísland er á meðal fámennustu fullvalda ríkja í heiminum, í 172. sæti
af 195. Samtímis getum við sagt stolt að íslenskir bændur framleiða
heilnæmar landbúnaðarafurðir með velferð dýra að leiðarljósi
og samkvæmt ríkum aðbúnaðarkröfum ásamt lágmarks notkun
á sýklalyfjum og plöntuvarnarefnum. Það er óumdeilt og það er
aðdáunarvert.
Úr matvöruverslun. Katrín telur að hugtakið „nægileg aðvinnsla“ sé afar matskennt en undir þeirri túlkun má merkja
vörur með íslenska þjóðfánanum, þótt þær innihaldi ekki íslensk hráefni. Mynd / ghp
Af vettvangi Stjórnarráðsins
Hin hliðin á peningnum