Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 51
51Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Ullarvika á Suðurlandi verður haldin í þriðja sinn
dagana 29. september til 5. október á ýmsum stöðum
innan Suðurlands.
Frá Ölfusi í vestri og allt austur í V-Skaftafellssýslu,
en aðalmiðstöð Ullarviku verður í félagsheimilinu
Þingborg sem staðsett er skammt austan við Selfoss.
Mikið verður um að vera enda vikan hugsuð til þess
að gera íslensku ullinni hátt undir höfði. Er gestum
meðal annars boðið á sauðfjárlitasýningu, hægt verður
að kíkja í litunarpotta Hespuhússins á Selfossi, njóta
fræðslu í formi fyrirlestra og heimsókna í ýmsar
vinnustofur víðs vegar um svæðið, auk þess að líta við
á markaðstorginu sem verður haldið ásamt kaffihúsi
á Þingborg. Smáspunaverksmiðjan Uppspuni opnar
dyr sínar gestum en þar fara fram bæði námskeið
og viðburðir sem eru frekar auglýstir á vefsíðu
UIlarvikunnar, www.ullarvikan.is. Á vefsíðunni er
einnig að finna kort yfir vinnustofurnar, en allar
almennar upplýsingar eru þar vandlega fram settar.
Að Ullarvikunni standa Feldfjárbændur,
Spunasystur, Uppspuni, Þingborgarkonur ásamt fleiri
aðilum og því um að gera að taka sér tíma og kíkja
í sveitina.
/sp
Ullarvika á Suðurlandi
Hér til vinstri er Ullarvikan auglýst með víkingastemningu en til hægri er Guðný Sörenge Sigurðardóttir, ein
Þingborgarkvenna, glöð í bragði. Myndir / Aðsendar
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Dagana 23.-25. ágúst nk. mun Smalahundafélag Íslands
í samstarfi við deild Snata í Húnavatnssýslu
halda aðalafund og landskeppni í Vatnsdal.
Aðalfundurinn byrjar kl. 19 föstudagskvöldið 23. ágúst
í Fellsbúð við Undirfellsrétt í Vatnsdal.
Landskeppnin fer fram að Ási í Vatnsdal
laugardag og sunnudag
og að venju verður keppt í A-flokk, B-flokk og Unghundaflokk.
Keppni byrjar kl. 10 báða dagana.
Nánari upplýsingar auglýstar síðar á heimasíðu félagsins;
smalahundur.123.is og facebook síðunni: Smalahundafélag Íslands
Stjórn SFÍ.
Landskeppni
Smalahundafélags Íslands
Skoðaðu
úrvalið!
www.skralli.is/lilleseth
Viltu verðtilboð?
skralli@skralli.is
Úrvalið af hífi- og festibúnaði stækkar!
Hliðarlistar:
Takið upp hverja lykkju á allri
hliðinni hægra megin (bæði
framstykki og afturstykki), líka
þessar tvær sem voru geymdar
(ekki sleppa lykkjum eins og
stundum er gert á listum- takið upp
lykkju fyrir hverja umferð). Teljið
lykkjurnar og skráið hjá ykkur, því
þið viljið hafa jafnmargar lykkjur
báðum megin á vestinu.
Prjónið 1sl og 1br þar til listinn
mælist 5 - 7 cm. (Leyfið ykkar
mati að ráða). Gerið nákvæmlega
eins hinum megin. Passið að taka
upp jafnmargar lykkjur á báðum
hliðum.
ATHUGIÐ að það eru ekki
hnappagöt á vestinu, heldur eru
tölurnar saumaðar fastar í gegnum
bæði stykkin EFTIR AÐ VESTIÐ
HEFUR VERIÐ ÞVEGIÐ – þær
eru þá eingöngu skraut en ekki
til að hneppa. Það er óþarfi, því
vestið er vítt og auðvelt að fara í
það og úr.
Ef óskað er eftir hnappagötum,-
þá skuluð þið fara í vestið áður en
þið prjónið hliðarlistana, setja
prjónamerki þar sem þið viljið hafa
tölurnar og setja hnappagöt þar á
móti. Fallegra er að hnappagötin
séu á framstykkinu.
Hnappagat er gert þannig:
Prjónið hliðarlistann 2,5 cm fram
og til baka. Sláið tvo hringi upp
á prjóninn þar sem hnappagatið
á að vera og prjónið næstu tvær
lykkjur saman.
Gott er að hafa í huga að þegar
horft er á framhliðina á vestinu,
þá sé slegið upp á prjóninn fyrir
hnappagat við slétta lykkju og 2
lykkjur prjónaðar brugðið saman,
því lykkjan er fallegri í sléttu
línunni en þeirri brugðnu.
Í næstu umferð er snúningurinn
tekinn af en ekki prjónaður
og í þriðju umferð er lykkjan
prjónuð eins og venjulega.
Síðan eru prjónaðar 3 umferðir
slétt og brugðið og síðan fellt af.
FELLIÐ MJÖG LAUST AF.
Skolið úr vestinu og leggið
til þerris. Gott er að leggja
rúllukragann í brot en það er ekki
nauðsynlegt.
Festið tölurnar á eftir að vestið
er orðið þurrt, þá lenda þær akkúrat
þar sem þið viljið hafa þær. Best er
að fara í vestið og setja merki þar
sem þið viljið hafa tölurnar.
Það væri gaman að sjá
myndir af tilbúnu vesti
á Instagram og Facebook
með myllumerkjunum
#uppspuni
#Búðarhálsvest
Skráið smáauglýsingar
á www.bbl.is