Bændablaðið - 15.08.2024, Side 54
54 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Eftir gular viðvaranir og alla þessa
rigningu hættir sér ekki nokkur
út að grilla lengur. Þá er gott að
geta bara soðið smá pasta og haft
það kósí.
Þegar ég var ungur og að hefja
búskap var aðal pastarétturinn að
bræða piparost í rjóma eða mjólk og
brytja út í hann brauðskinku. Bera
svo fram í tagliatelle pastahreiðri,
sem var nýlunda þá. Þessi réttur er
tileinkaður honum.
Til að gera kremkennda sósu
þarf ekki alltaf rjóma. Að þessu
sinni er það blanda af pastavatni og
osti sem mun framkalla rjómalega
sósu. Ég notaði grana padana, af því
að það var þriðjudagur, en auðvitað
má nota parmesan eða jafnvel
pekkórínó ef hann finnst. Muna að
það er mjög fonkí bragð af honum.
Til að pastavatnið blandist
saman við ostinn þarf að framkalla
það sem á íslensku kallast fleyti.
Það á við töfrana að blanda saman
vatni og olíu. Olían flýtur um í
vatninu í míkródropum. Alveg eins
og majónes er fleyti og bernaise
líka. Þar er eggið, vatnið og olía
eða bráðið smjör feitin. Hér er það
feitur ostur og sterkjuríkt pastavatn.
Pastaval
Það er hægt að nota hvaða pastatýpu
sem er; spagettí, penne eða hvað
sem er. En gott að hafa í huga að því
betra pasta sem notað er því betri
verður sósan. Því betra pasta gefur
frá sér meiri sterkju.
Ein leið til að sjá muninn á góðu
og ekki alveg jafngóðu pasta er að
því betra sem pastað er því mattara
er það og yfirleitt ljósleitt að lit.
Dökkgult og glansandi pasta er fínt
í hakk og spagettí en yfirleitt ekki
nógu gott í svona eldamennsku.
Til að fá sem allra mesta sterkju
í vatnið er um að gera að sjóða
pastað í eins litlu vatni og hægt er.
Þannig þykknar það og blandast
auðveldlega með ostinum. 400
grömm af pasta er hægt að sjóða í
hálfum lítra af vatni.
Gott að nota víðan pott eða
jafnvel pönnu með loki. Nota lokið
og hræra reglulega í pottinum.
Þegar upp er staðið ætti að vera um
helmingurinn af vatninu eftir. Salta
vatnið ekki of mikð. Tæp teskeið
er nóg því það er salt úti um allt í
hinu hráefninu.
Skinkan
Í staðinn fyrir skinku er tilvalið að
nota grísasíðu. Líka hægt að nota
beikon ef draumurinn er að fá smá
reykbragð. Salta síðubitana á öllum
hliðum með minnst klukkutíma
fyrirvara, skera svo í litla bita og
passa að ekkert af rifjunum endi í
pönnunni.
Getur verið smá maus að skera
í litla bita þegar kjötið er hrátt og
þá er bara fínt að skera í kubba
steikja þá örlítið og taka svo upp
úr pönnunni og saxa hálftilbúna
bitana.
Þeir fara svo aftur ofan í pönnuna
til að klára að steikjast. Við viljum
að bitarnir verði sæmilega stökkir
og nær öll fitan sé bráðin. Tilvalið
að pipra vel þegar steikingin er
hálfnuð svo piparinn brenni ekki.
Matskeið eða svo af nýmuldum og
muna að setja ekkert salt því það
var þegar komið á kjötið.
Fleytið
Það eru margar leiðir til að
ná árangri með þennan rétt en
auðveldasta leiðin er að nota
eitthvert gott eldhústæki sem snýst
hratt. Best að nota blandara eða
töfraprota en jafnvel handþeytari
virkar líka.
Rífa parmesanost, 100 grömm
eða svo, og blanda við 250 ml af
volgu pastavatni. Til að fá extra
góða sunnudagssósu er gott að
skutla 50 ml af kotasælu út í
blönduna.
Blanda saman í nokkrar
sekúndur þangað til úr verður
silkimjúk og rjómakennd sósa.
Rétturinn er kláraður með því
að hræra sósunni og svínabitunum
saman við pastað. Gott að hræra
líka matskeið eða svo af olíunni
sem safnaðist í steikarpönnunni.
Bera fram með hressilegu magni
af parmesan, ferskum pipar og
mögulega hvítlauksbrauði.
KROSSGÁTA
Lausn á krossgátu í síðasta blaðiÓSKUÐU
DIMMA
EFNI
VORKENNA
SEGUL-
BAND
NAFN
FÍNLEGUR ÞEKKJA
LEIÐ
AUÐN
EFTIRSJÁ
HÁLFAPI
BOGNA
HEIMTING
TILNEFNA
UNDIR-
OKUN
LEGU
GREIP
DUNDAR
ÆTT
GRIÐ-
UNGUR
ÁTT
HERMA
SJÓNGLERMETTA
Í RÖÐ
NEITUN
TILREIÐA
ÓREIÐA
GÆLU-
NAFN
BÖÐLAST PEST
HÆFILEIKI
DRÁTTUR
MÁTTUR
RAUN
BYLUR
ERFIÐI
GAFL
ÁRÉTTA
JURT
SKRIFA
UMDÆMIS
HYGGST
FYLGSNI
AFKOMA
FLEYGUR
AÐ-
KALLANDI
LEIÐSLNA
OFTAR
ÞRJÓSKUR
BRAKI
LIÐ
ÞÓTT
ÁI
KROPPI
VENJA
NASL
EYÐA BIL
STÖKUM
TVEIR
EINS FARVEGIR
RINGUL-
REIÐ
HVOLF
LAND
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
224
STEIN-
TEGUND SKISSA HYSKI TRAUST ÁHALD YNDIS VÖKNA
SFLIKRÓTTUR K R Æ P Ó T T U R
KSÖGULJÓÐ V I Ð A
MEÐ-
VITUND
BEINN R Æ N A
RFLAN A S K J Ú K A K
R S A K A FAG
ÞRÆLKUN I Ð N
MÁNUÐUR
AF-
HENDING
FÆDDI A F S A L HLJÓTA
SPRIKL F Á ÁTT
HUGSÝNN S A
RÁSFUGL
OVALDA
TIGNA
BEIN
RÍKI Í
AFRÍKU
S J Ó Ð A SKILABOÐ
GEÐ
FLÍK S I N N I FISKUR TVEIRKRAUMA
M Ú L L
TIL-
BÚNINGUR
KJARR S M Í Ð SKRAMBI
BÆLI A N S IBEISLI
Á L VESÆLL
PILLU A R M U R STAFLI
JARÐEFNI B U N K IMÁLMUR
H Í T ÞEI
VISNA U S S
VÍSA LEIÐ
HELGI-
TÁKN L Ó Ð S A EINKENNISTÓRT
ÍLÁT
E
ARÐA
SAMS-
KONAR Ö G N AÐA S K E L TÆRA
PÚSTRAR Æ T A
S E F U N KK NAFN
LÖGG A R I FLÝTIR
SÓDI H R A ÐRÓUN
T I L L I T GRENJA
SLÁ O R G A GELT EKKI AAUGNA-
RÁÐ
U
R
N
S
U
FRÁ-
RENNSLI
N
A
TÍMABILS
F
Á
R
R
Á
S
S
HLJÓÐ-
FÆRI
HALLI
O
S
R
K
G
Á
E
I
LSÆLA
Í RÖÐ
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
223
www.bbl.is
Matarkrókurinn:
Piparosta-grísapasta
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Þeir sem eru ekkert í svíninu geta prófað sig áfram með að nota steikta sveppi í staðinn. Mynd / Hari
Innihald
Pasta, 400 grömm
Svínasíða, 1 bakki
Pastavatn, 250 millilítrar
Parmesanostur, 100 grömm
Kotasæla, 50 millilítrar
Pipar, 1 matskeið
Salt, 1 matskeið
Svínafita, 1 matskeið