Bændablaðið - 15.08.2024, Page 55
55Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Setja skal inn tölur frá 1-9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Erfinginn:
Hress og kátur
Þessa dagana eru briddsarar á ferð og
flugi landshorna á milli í Bikarkeppni
Bridgesambands Íslands.
Sveit Norðurljósa mætti Borgfirðingum
á heimavelli hinna síðarnefndu á dögunum
og var ekkert lát á
skiptingarspilum.
Hlynur Angantýsson í
sveit Norðurljósanna fékk
mikið skrímsli á hendina.
Ekki bara 6-6-skiptingu í
rauðu litunum heldur eru
spilin svo sterk að segja má
að aðeins sé einn tapslagur
á hendinni. Og þá er það
milljón dollara spurningin:
Hvernig meldar maður svona?
Eftir tvö pöss var opnað á spaða Hlyni á
hægri hönd. Eftir umhugsun stökk hann í fimm
grönd sem lýsti tveggja lita hendi. Makker
hans, Karl Grétar Karlsson, meldaði þá leitandi
6 lauf, Hlynur leiðrétti með 6 tíglum, Karl
meldaði 6 hjörtu og málið dautt.
Sigurbjörn Haraldsson, landsliðsmaður
Íslendinga í bridds, skoðaði spilin hans Hlyns
í umræðu um spilið. Sigurbjörn minnir á
sagnvenju sem ekki er víst að allir lesendur
Bændablaðsins séu kunnugir. Opnun á 4
gröndum spyr um ása eftir sortum. Margir
þekkja RKCB eða Roman Keycard Blackwood
lykilspilaspurninguna en ef opnað er á fjórum
gröndum er oftast svarað þannig að ef enginn
ás er á hendinni meldar svarhönd 5 lauf. Ef
einn ás er á hendi þá er svarað í viðkomandi
lit. Með laufás þarf þó að melda sex lauf af
því að 5 lauf eru frátekin fyrir engan ás. Ef
ásarnir eru tveir meldar svarhöndin 5 grönd.
En aftur að spilinu. Borgfirðingarnir sem
öttu kappi við Hlyn og félaga melduðu líka 6
hjörtu með því að nýta Michaels sagnvenjuna
til að byrja með og spilið féll.
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson@gmail.com
Rauða skrímslið í Borgarfirðinum
Björn
Þorláksson.
Orðið skákblinda er stundum notað þegar
maður sér ekki góða leiki hjá andstæðingum
sem setur mann í klemmu.
Það getur verið verulega
svekkjandi þegar maður
fær á sig mjög sterkan leik
frá sínum andstæðingi sem
maður sá ekki fyrir.
Stundum er leikurinn
það góður að maður getur
gefið skákina strax. Allir
skákmenn hafa fengið svona
leiki á sig á ferlinu og er það
alltaf jafn svekkjandi þegar
maður áttar sig á að oftast var hægt að redda
sér út úr þessu hefði maður leikið öðrum leik
næst á undan.
Undirritaður tefldi við Rúnar Ísleifsson,
skógarvörð á Vöglum í Fnjóskadal árið 2020
í meistaramóti Goðans það ár. Þetta var
úrslitaskák um titilinn og því mikið undir.
Skákin var í jafnvægi þar til í 24. leik. Þá lék
Rúnar góðum leik sem hann hafði undirbúið í
leiknum þar á undan, sem undirritaður sá ekki
og gerði út um skákina.
Umsjón: Hermann Aðalsteinsson,
lyngbrekku@simnet.is
Hermann Aðalsteinsson hvítt. Rúnar Ísleifs-
son svart. Svartur á leik. 24……De2 !!. Báðir
hrókar hvíts í uppnámi og ekki hægt að
bjarga nema öðrum. Að lenda hrók undir var
vonlaust til árangurs og því gaf undirritaður
skákina tveim leikjum síðar.
Skákblinda
Hermann
Aðalsteinsson.
Hann Ari Kolbeinn býr í sveit nálægt Egils-
stöðum og æfir með íþróttafélaginu Hetti.
Honum finnst gaman að hjóla og vera með
vinum sínum og fer reglulega til Reykjavíkur
að hitta pabba sinn og eldri bræður.
Nafn: Ari Kolbeinn Þorgrímsson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Eiðaþinghá.
Skemmtilegast í skólanum:
Þegar það eru frímínútur!
Áhugamál: Íþróttir og kvikmyndir.
Tómstundaiðkun: Æfi fótbolta og
fimleika. Fer stundum á hestbak.
Uppáhaldsdýrið: Hundar.
Uppáhaldsmatur: Rækjupasta.
Uppáhaldslag: Líf mitt er bíómynd.
Uppáhaldslitur: Rauður.
Uppáhaldsmynd: Kung Fu Panda.
Fyrsta minningin: Þegar ég var úti og
var bitinn af hundi.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert: Þegar ég var með Ámunda
bróður mínum í sundi og við börðumst í
rennibrautinni.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór: Hugmynda- og
handritshöfundur.
Létt Miðlungs Þung Þyngst
Viltu taka þátt ? Hafðu samband.
sigrunpeturs@bondi.is
Rúnar Ísleifsson að tafli í Atlantic City árið 2016.
SUDOKUÞRAUTIR
HUGARÍÞRÓTTIR
Norður
QJ64
J108
54
9864
Vestur
732
643
32
J7532
Austur
AK1098
9
1076
AKQ10
Suður
5
AKQ752
AKQJ98
Menntskælingar læra bridds
Mikil uppsveifla varð í skólabridds í fyrravetur
þegar iðkendum íþróttarinnar fjölgaði svo um
munaði. Dæmi voru um að ungir nemendur
og spilarar á elliheimilum tækjust á í spilinu.
Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridge-
sambands Íslands, segir að öllum framhalds-
skólum á landsbyggðinni verði boðið upp
á online briddskennslu næsta vetur, ýmist
þriggja eða fimm eininga nám. Matthías
segir að fjöldi rannsókna sýni fram á fylgni
milli briddskunnáttu og góðs námsárangurs.
Einkum hvað varðar raungreinar.
Myndin var tekin af nýjum framhalds-
skólameisturum í tvímenningi ungmenna að
loknu Íslandsmóti í vor.
Karl Grétar Karlsson virðir fyrir sér skrímslið.