Golf á Íslandi - 01.07.1990, Blaðsíða 16

Golf á Íslandi - 01.07.1990, Blaðsíða 16
GOLFFERÐIR TIL LONDON í ALLT SUMAR Feröaskrifstofan Saga og Jóhann F. Sigurðsson kynna vikulegar golfferöir til SUNDRIDGE PARK golfvallarins í Bromley, sem er skammt fyrir sunnan London, í friðsælu og fögru umhverfi. Fáir íslendingar þekkja betur til í Bretlandi en Jóhann F. Sigurösson, því þar hefur hann búið og starfað um árabil. Jóhann mun annast móttöku á kylfingum, sem ferð- ast á vegum Sögu, og aðstoða þá í Bromley á sinn lifandi og frísklega hátt, sem honum einum er lagið. í SUNDRIDGE PARK eru tveir 18 holu vellir, umluktir trjágróðri, með fallegum flöt- um og hæfilega mörgum gildrum. Til boða stendur að leika ótakmarkað golf frá mánudegi til föstudags. Einnig er mögulegt að leika á Sunningdale eða Wentworth ef pantað er tímanlega. í Bromley, sem er afar falleg og vinaleg borg, búa um 250 þúsund manns á mörkum sveitar og stórborgar, og er þaðan aðeins 15 mínútna ferð með lest til Viktoríu- stöðvarinnar í London. FERÐATILHÖGUN: Brottför alla sunnudaga fyrir hópa og einstaklinga frá 1. maí til 1. október, en lág- marksfyrirvari á bókun er 14 dagar. Jóhann mun sjá um aö taka á móti kylfingum á flugvellinum og koma þeim fyrir á HOTEL BROMLEY COURT, sem er fyrsta flokks meö 122 vel búnum herbergjum, sem öll eru meö baði, útvarpi, sjúnvarpi og síma. í hótelinu er góöur veitingastaður, nokkrir barir og herbergis- þjónustaallansólarhringinn og aðsjálfsögðu rómaöur enskur morgunveröur. Aðeins um 3 mínútnaferð er á golfvöllinn og verður Jóhann þátttakendum innan handar allan tímann. Verð í tvíbýli er kr. 67.270.— á mann. Aukagjald fyrir einbýli er kr. 13.800.—. Innifalið i verði er flug, gisting með enskum morgunverði í 7 nætur og akstur á milli Heathrow og Bromley. (Verð miðað við gengi 21.03.90). 16 GOLF A ÍSLANDI

x

Golf á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.