Golf á Íslandi - 01.11.2001, Page 38

Golf á Íslandi - 01.11.2001, Page 38
GOLF Að margra áliti hefur Thaíland einna mest upp á að bjóða fyrir áhugasama kylfinga um þessar mundir. Á síðustu árum hefur hróður þessarar „Golf- perlu Austurlanda" borist víða og er nú svo komið að golf er stór hluti af ferða- mannaiðnaði landsins. Kjartan L. Pálsson hef- ur leitt marga íslenska kylfinga á vit ævintýr- anna í Thaílandi og í sumar var honum boð- ið á sérstaka ráðstefnu um golfferðaiðnaðinn í landinu. Á síðasta ári komu um 350 þús- und ferðamenn til Thailands gagngert til að leika golf. Gjald- eyristekjur þjóðarinnar af þessum mikla íjölda eru gífurlegar og því er allt kapp lagt á að halda þess- um hluta ferðamannaiðnaðarins við og gera enn betur á komandi árum. Spáin er að yfir 400 þús- und ferðamenn komi til landsins í ár - 2001 - til þess að leika golf. Stefnir í að sú tala standist eins og fram kom á Golfferðamála- ráðstefnu Thailands „The Thai- land Golf Travel Mart” sem haldin var í júni sl. Einn íslend- ingur tók þátt í þessari golffnessu Thailendinganna, Kjartan L. Pálsson, fararstjóri hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn, en hann hefur verið fararstjóri íslenskra kylfinga á Thailandi sl. fimm ár og þekkir því vel til mála þar. „Thailenska ferðamálaráðið bauð mér á þessa messu og var ég þar í hópi með breska genginu en ekki því skandinavíska Var það hið beta mál því bretamir vom fjall- hressir eins og alltaf. Þetta er ekki nein smá messa og hefur sjálfsagt kostað nokkrar milljón- irnar enda ekkert tilsparað til að hafa þetta sem flottast fyrir okk- ur. Við vorum um 190 talsins sem var boðið og kom það fólk allstaðar að úr heiminuin. Það var allt frítt; flugferðir, gisting, matur, golf og ferðir. Það var nánast bannað að taka upp budd- una allan túrinn, sem stóð yfir í eina viku. Það sýndi sig þarna að Thailend- ingar leggja mikið upp úr því að fá erlenda kylfinga í heimsókn. Þeir segja að í vetur og vor hafi um 300 þúsund kylfingar heim- sótt landið og þeir eiga haustið 38 Á í S L A N D I GÖLFPERLA AUSTURLANDA efdr og þá ná þeir því örugglega að fara yfir 400 þúsund manns. Þetta er ekki nein smá tala og j maður talar nú ekki um þegar manni dettur í hug að allir íbúar j Islands era rétt um 280 þúsund,” sagði Kjartan. 200 golfvellir í Thaílandi „Þeir eru með um 200 velli og margir eru í byggingu um allt land. Fyrsti golfvöllurinn á Thailandi var byggður í Bangkok fyrir um 100 áram eða árið 1905 og var 9 holur. Fyrst 18 holu völl- urinn The Royal Hua Hin í sam- | nefndri borg var byggður af skoskum verkfræðingum sem unnu þar við járnbrautalagnir j árið 1924. Sá völlur er enn til og j gengur almennt undir nafninu J “The Railway” eðajárnbrautin. Upp úr 1990 verður svo sprengj- j an í golfvallagerð í landinu. Þá voru fengnir inerni eins og Pete Dye, RobertTrentJonesJr., Jack Nicklaus, Nick Faldo, Gary Player og fleiri frægir til að hanna velli. Þeir sprattu líka upp eins og golfkúlur úr bönkum um allt landið og allt era þetta “golf- perlur” hver með sínu sniði. Klúbbhúsin eru nánast hallir. Það stærsta sem ég hef komið í er á Jack Nicklausar-vellinum Laem Chabang við Pattaya. Það er 10 þúsund fermetrar. Svæðið undir pissuskálarnar á karlakló- settinu þar er stærra en flestir ef ekki allir golfskálar á Islandi. Þetta er allt of stórt - en flott er það.” Kjartan segir einnig að fyrsta verk Tigers Woods í golfvalla- hönnun gæti orðið í Thailandi. „Tiger kemur til Thailands á hverju ári og hefur gert síðan að hann var barn. Hann er jú Thaí- lendingur í aðra ættina og er mjög stoltur af því. Nú er talað um að hann hanni sinn fyrsta golfvöll og hann segir að sá völl- ur verði á Thailandi - það sé sitt annað heimaland. Og hann segir að sá völlur muni bera af öllum öðram völlum. Mesta golfsvæðið á Thailandi er við Pattaya. Þar eru 18 golfþerlur, hver annari fallegri. Sú nýjasta var opnuð núna í ár og heitir “St Andrews 2000”. Sá völlur er um átta þúsund metra langur og er með tvær par 6 holur svo eitt- hvað sé nefnt. Við spiluðum þennan völl í ferðinni og hann er einn sá undarlegasti sem ég hef komið á. Hann er mest fyrir aug- að en það er meira svona “hitt and hope” að spila á honum,” segir Kjartan. Gist á fínasta hóteli Pattaya Sem fararstjóri hefur hartn verið einna mest á Pattaya-svæðinu, þar sem hópar sem ferðast á vegum Samvinnuferða- Landsýnar gista á The Dusit Resort, einu fínasta hótelinu á svæðinu. „Pattaya er ódýrasta golf svæðið af öllum á Thailandi. Það kom fram á messunni og aeir sem ráða ríkjum í golfinu 3ar ætla að halda því áfra að ajóða upp á bestu veíðin á golf- inu. Phuket er dýrasta svæðið svo og vellirnir í kringum Bang- kok. En þetta eru ekki stórar upphæðir miðað við annarstaðar í heiminum. Það kostar á milli 1000 og 2000 íslenskar krónur að spila vellina við Pattaya. Þá er innifalið vallargjöld, golfkerra og greiðsla fyrir kaddý, en maður fær ekki að spila á Thailandi öðravísi en að hafa kaddý með í hringinn. Maður gefur svo kaddýinum þjórfé í lokin. Það er Pete Dye er á meðal heimsþekktra golfvallahön- nuða, sem unnið hafa í Thaílandi. Hann var frumkvöðull að svokölluðum eyjuflötum, eins og þeirri sem sést hér að ofan. SJ0VAU1PALMENNAR

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.