Golf á Íslandi - 01.06.2017, Page 30

Golf á Íslandi - 01.06.2017, Page 30
Ég hitti Gylfa Þór á hóteli landsliðsins í Reykjavík tveimur dögum fyrir stórleikinn gegn Króatíu á Laugardalsvelli í júní. Hann brosti breitt þegar í ljós kom að viðtalið yrði aðeins um golf og það er greinilegt að atvinnumaðurinn er mikill áhugamaður um golfíþróttina. Gylfi Þór kynntist golfinu í gegnum föður sinn, Sigurð Aðalsteinsson, og Ólaf Má bróður sinn sem var í fremstu röð kylfinga á Íslandi í mörg ár. „Ég æfði í raun aldrei golf eins og Óli Þór, en ég fór á einhver námskeið hjá Keili þegar ég var yngri. Pabbi og Óli hafa í raun kennt mér allt sem ég kann en ég ætla mér að ná betri tökum á þessu og verða betri en þeir báðir,“ segir Gylfi Þór en hann er ansi lipur kylfingur og spilar á forgjöf í kringum 3-4. „Það er alltaf mikil keppni í gangi þegar við feðgarnir spilum golf saman. Pabbi er í landsliði eldri kylfinga og er glerharður keppnismaður. Óli bróðir gefur ekkert eftir í keppninni gegn okkur en hann er án efa bestur af okkur þremur. Pabbi æfir líklega mest af okkur og spilar meira en við báðir til samans. Við spilum mest höggleik og reynum að fara 36 holur á dag þegar við erum saman. Það er ekki margir dagar á ári sem við fáum í slíkt enda er mikið að gera yfir vetrartímann hjá mér í fótboltanum. Við mætum eldsnemma á golfvellina í ferðum okkar, hitum upp í klukkutíma fyrir hringinn og síðan er allt lagt í keppnina.“ Golf í sól og blíðu er heillandi Gylfi Þór velur sér golfdaga þar sem sólin skín og veðrið er gott. Það rignir oft í Swansea þar sem hann hefur búið frá árinu 2014 og við þær aðstæður er Gylfi ekki mikið úti á golfvellinum. „Ég get alveg spilað í rigningu og roki en mér finnst bara miklu skemmtilegra að leika í sól og blíðu. Um leið og sólin fer að skína þá fer ég í golfgírinn. Golfið reynir gríðarlega mikið á hugann og einbeitinguna. Ég get alveg verið pirraður á golfvellinum ef hlutirnir eru ekki að ganga upp. Ég vil slá rétt og koma boltanum þangað sem hann á að fara, ef það er ekki í lagi þá get ég alveg átt það til að pirra mig á því.“ Stutta spilið er styrkleiki Gylfa Þórs Það er ljóst að Gylfi Þór hefur engan áhuga á því að vera í meðalmennskunni þegar kemur að íþróttum. „Ég á enn mörg ár eftir í fótboltanum en þegar ég hætti í atvinnumennskunni þá fer ég að æfa golfið af miklum krafti. Ég finn á hverju sumri að ég næ betri og betri tökum á golfinu og mig langar að gera meira í framtíðinni. SKJÁBOÐI Einföld öryggislausn fyrir vinnustaði Kynntu þér Skjáboðann og aðrar öryggislausnir fyrir þitt fyrirtæki securitas.is securitas@securitas.is S: 580-7000 ÖRYGGI Í EINUM SMELLI Skjáboðinn er nýr hugbúnaður frá Securitas sem gerir þér kleift að kalla eftir aðstoð samstarfsfélaga og senda boð til stjórnstöðvar Securitas með einum smelli Ég æfði í raun aldrei golf eins og Óli Þór, en ég fór á einhver námskeið hjá Keili þegar ég var yngri. Pabbi og Óli hafa í raun kennt mér allt sem ég kann en ég ætla mér að ná betri tökum á þessu og verða betri en þeir báðir 30 GOLF.IS - Golf á Íslandi „Ætla að verða betri en Óli bróðir“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.