Golf á Íslandi - 01.06.2017, Side 32

Golf á Íslandi - 01.06.2017, Side 32
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkum ætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Fæst í öllum helstu apótekum landsins. LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. FY RI R SJÓ NOGAUGU NÝTT NÝJUNG FRÁ LÝ SI Styrkleiki minn eru högg sem eru 120 metrar og nær. Ég vippa vel inn á flatirnar og púttin eru oftast góð. Veikleikinn hjá mér eru upphafshöggin með drævernum, en ég er alltaf að reyna að laga það,“ segir Gylfi Þór en hann slær um 230-240 metra á flugi í upphafshöggunum. Lék með Adam Scott og Gareth Bale á Bahamaeyjum Gylfi Þór fylgist mikið með golfi í sjónvarpi og þá sérstaklega þegar risamótin fara fram. „Konan er ekki alltaf ánægð með mig þegar ég skipti yfir á golfið síðdegis á sunnudegi. Þetta er fínt sjónvarpsefni á góðum tíma dagsins. Minn maður í golfinu er Ástralinn Adam Scott. Ég fékk að spila með honum á Bahamaeyjum á sínum tíma þegar ég var í Tottenham. Þar spilað ég með Gareth Bale og Scott á svæði sem eigandi Tottenham á. Ég var aðeins stressaður að spila með svona góðum leikmanni en hann var rosalega rólegur og yfirvegaður. Þetta var frábær dagur með Scott. Sveiflan hans er ótrúlega falleg, alltaf sama tempóið og engin átök. Hann hafði sigrað á Masters-mótinu skömmu áður en við hittum hann og í klúbbhúsinu eftir hringinn var verið að sýna pútt á lokaholunni á Masters þegar hann var að tryggja sigurinn. Það var skrýtið að sitja með honum og horfa á þetta móment á þessum stað. Ég var með stjörnur í augunum og fannst þetta magnað.“ Púttkeppni á hótelgöngum í landsliðsferðum Það eru töluvert margir í landsliði Íslands sem leika golf reglulega. Má þar nefna Alfreð Finnbogason, Jóhann Berg Guðmundsson, Kolbein Sigþórsson og Ögmund Kristinsson. Sá síðastnefndi er bróðir landsliðskonunnar efnilegu Ragnhildar Kristinsdóttur úr GR. „Við reynum að spila saman í landsliðs­ ferðunum ef það gefst tími í það. Á EM í Frakklandi í fyrra var einn frídagur sem nokkrir nýttu í golf en ég gerði það ekki, ákvað að hvíla mig. Við erum alltaf með pútterinn með okkur í ferðunum erlendis og við útbúum golfbrautir á hótelgöngunum. Þá er púttað yfir alls konar gólfefni, flísar, parket og teppi. Það eru heilmikil læti þegar slíkt er í gangi og margir sem hafa sigrað á slíkum mótum.“ Margir vellir í uppáhaldi Hvaleyrarvöllur og Urriðavöllur eru í uppáhaldi hjá Gylfa Þór hér á landi og einnig Vestmanneyjavöllur. „Ég hef alltaf haft gaman af fyrri níu holunum í Hvaleyrinni í hrauninu. Sjöunda brautin sem er par 5 hola er skemmtileg, kannski ekki sú erfiðasta, en það er hægt að ná góðu skori á henni. Mér finnst Urriðavöllur skemmtilegur og þar eru nokkrar holur mjög áhugaverðar, sérstaklega sú 17. sem býður upp á marga möguleika. Mér finnst líka mjög gaman og sérstakt að leika í Vestmannaeyjum. Það er einstakt og útsýnið af vellinum þar er frábært.“ Gylfi Þór hefur leikið á mörgum golfvöllum erlendis og TPC Sawgrass völlurinn í Bandaríkjunum er einn af þeim. „Ég hef leikið þrisvar sinnum á þessum velli þar sem Players meistaramótið fer fram árlega. Að standa á 16. flötinni og horfa yfir á eyjuna á þeirri 17. er magnað. Áhorfendastúkurnar voru enn uppi þegar ég lék þar síðast og mér fannst það gaman. Flatirnar voru reyndar rosalega harðar og hraðar, og boltinn skoppaði út af 17. flötinni þegar ég sló með fleygjárninu. Þær voru aðeins of hraðar fyrir minn smekk en líklega eru þær svona þegar Players-mótið fer fram. Ég hef einnig spilað á Belfry, Royal Porthcawl í Wales þar sem Opna breska fyrir eldri kylfinga hefur farið fram, Stoke Park, The Grove og Celtic Manor. Allt frábærir vellir en ég á eftir að heimsækja enn fleiri velli í framtíðinni.“ Nákvæmni betri en lengd Landsliðsmaðurinn í fótbolta er ekki mikill græjukall þegar kemur að golfkylfum og öðru slíku. „Ég var eitthvað að spá í að fá mér nýjan dræver og lengja mig aðeins. Ég fór í mælingu en endaði á því að halda mig við gamla Titleist dræverinn minn. Ég slæ um 230-240 metra á góðum degi en ég vil frekar vera nákvæmur og hitta brautina í stað þess að slá aðeins lengra og í kargann. Ég held mig við það sem virkar fyrir mig.“ Í liði Swansea eru nokkrir góðir kylfingar og segir Gylfi Þór að það séu ávallt 4-5 leikmenn í hverju liði sem hafi mikinn áhuga á golfi. „Þetta var svipað hjá Tottenham þegar ég var þar. Hjá Swansea erum við 4-5 sem spilum reglulega. Sænski markvörðurinn Kristoffer Nordfeldt er með svipaða forgjöf og ég.“ Gylfi Þór var kjörinn íþróttamaður ársins 2016 í annað sinn á ferlinum. Hann fylgist vel með árangri íslenskra kylfinga og er sannfærður um að fleiri atvinnukylfingar frá Íslandi eigi eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. „Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur rutt brautina að undanförnu og gefið tóninn fyrir aðra. Það er mikilvægt fyrir yngri kylfinga að sjá að það er hægt að ná alla leið þótt þú komir frá Íslandi. Það er nóg af efnilegum kylfingum á Íslandi sem eiga eftir að fara sömu leið og Ólafía Þórunn,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson. 2UNDR herranær buxurnar hafa fengið ótrúlega góðar viðtökur um allan heim meðal íþrótta manna og þar með talið kylfinga. Einstaklega þægilegar nærbuxur sem gerðar eru úr hágæða efnum með góðri öndun. Það eru tvær línur í gangi hjá okkur, Swing Shift og Gear Shift. Swing Shift eru hannaðar fyrir golf og til daglegra nota. Verð 3.400 kr. Gear Shift henta betur fyrir þá sem stunda „líkamlegri” íþróttir eins og hlaup, hjólreiðar, fótbolta, handbolta, körfubolta, fjallgöngur, crossfit og ýmsa líkamsrækt. Verð 3.900 kr. BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ Í GOLFI Joey Pouch er aðalsmerki 2UNDR. Mjúkur og þægilegur „kengúrupoki” innan á nærbuxunum sem verðmætin eru sett í. Pokinn heldur utan um verðmætin og kemur í veg fyrir „skinn við skinn” núning. Non-Drip-Tip er einstakt rakastjórnunar lag sem gefur mjúka og kælandi tilfinningu. 32 GOLF.IS - Golf á Íslandi „Ætla að verða betri en Óli bróðir“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.