Golf á Íslandi - 01.06.2017, Síða 104

Golf á Íslandi - 01.06.2017, Síða 104
– Jóhannes Guðmundsson sýndi styrk sinn í lok síðasta keppnistímabils Fyrsti sigurinn eftirminnilegastur Hraðaspurningar Jóhannes Guðmundsson náði flottum árangri á síðasta tímabili og sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á Íslandsbankamótaröð unglinga á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Hann varð einnig í þriðja sæti á Honda Classic mótinu á Eimskipsmótaröðinni á Garðavelli á Akranesi í september. Það er í fyrsta sinn sem GR-ingurinn nær á verðlaunapall á mótaröð þeirra bestu. Móðir Jóhannesar skráði hann á golfnámskeið í Mosfellsbæ þegar hann var barn. Maturinn á námskeiðinu heillaði Jóhannes svo mikið að hann ákvað að halda áfram að æfa golf. Hvað er skemmtilegast við golfið?
„Það sem mér finnst skemmtilegast við golfið er að keppa.“ Framtíðardraumarnir í golfinu?„
Eiga árangursríkan feril á PGA-móta röðinni.“ Hver er styrkleiki þinn í golfi? 
 „Stutta spilið.“ Hvað þarftu að laga í þínum leik? „
Síðasta sumar tapaði ég mörgum höggum í stuttu púttunum. Núna er ég kominn með pútter sem hentar minni stroku betur og búinn að vera að vinna mikið í púttunum.“ Hvað er það eftirminnilegasta sem hefur gerst hjá þér í golfi? „
Fyrsti sigurinn minn á Íslandsbankamótaröðinni. Hvert er vandræðalegasta atvikið á golfvellinum hjá þér? 
„Síðasta sumar var ég að keppa á móti á Íslandsbankamótaröðinni sem var haldið á Hvaleyrarvelli hjá Keili. Á öðrum hringnum var rigning og völlurinn orðinn frekar blautur eftir fyrsta daginn. Vegna aðstæðna mátti lyfta og hreinsa boltann á brautunum. Þegar ég var að spila 15. holuna var ég kominn að boltanum aðeins á undan meðspilurunum mínum svo ég ákvað að nýta tímann í að hreinsa boltann minn. Eftir að boltinn var kominn á sinn stað á brautinni fór ég að horfa á högg hjá einum af strákunum og studdi mig við kylfuna. Á meðan ég horfði á eftir boltanum rann kylfan á blautri brautinni, ég rakst í boltann minn og datt. Þetta atvik kostaði mig högg og næstum því sigurinn í mótinu.“ Draumaráshópurinn? 
„Bill Murray, Rory McIlroy og Henrik Stenson.“ Uppáhaldsgolfvöllurinn og hvers vegna? 
„Ég spilaði Bay Hill síðustu jól sem var frábær upplifun. Bay Hill er í uppáhaldi vegna þess hve skemmtilegur völlur er. Þegar ég spilaði þar var ég með skemmtilegan kylfusvein og í frábærum félagsskap. Eftirminnilegasta atvikið kom upp þegar einn meðspilari frá Kanada átti misheppnað högg og sagði: „Just like my son in law, not what I wished for but it´ll have to do.“ Hvaða þrjár golfholur eru í uppáhaldi hjá þér og hvers vegna? 
„Mínar uppáhaldsgolfholur eru 16. á Bay Hill, 18. á Crooked Cat og 15. á Grafarholtsvelli.“ Hvaða áhugamál hefur þú fyrir utan golf? 
„Ég stunda mikið líkamsrækt og hef gaman af því.“ Í hvaða skóla og bekk ertu? 
„Ég er í Verzlunarskóla Íslands á þriðja ári.“ Jóhannes lenti í töluverðum vand ræðum við 18. flötina á Akranesi á Honda Classic í fyrra, þar sem hann var frekar pirraður. Hann lýsir því þannig: 
 „Ég var búinn að spila ágætt golf á mótinu og var +6 fyrir lokahringinn. Ég var á parinu fyrir síðustu þrjár holurnar og fékk svo fugl á 16. og 17. braut. Þegar ég kom upp á 18. teig vissi ég að holan væri hægra megin á flötinni og við glompu. Ég sá fyrir mér þriðja fuglinn í röð og leið vel með kylfuna sem ég valdi. Þegar ég sló í boltann vissi ég um leið að annað hvort yrði ég stuttur á glompuna eða alveg upp við bakkann. Því miður endaði boltinn við bakkann og gerði það að verkum að ég átti mjög krefjandi högg eftir til þess að koma boltanum upp úr glompunni. Í fyrstu tilraun tókst það ekki en það tókst í þeirri seinni, sem betur fer. Eftir annað höggið úr glompunni átti ég eftir rétt innan við tveggja metra pútt, sem ég missti. Í stað þess að fá fugl eins og ég ætlaði mér fékk ég skramba og hélt ég væri búinn að kasta frá mér verðlaunasæti með því að reyna við holuna.“ Staðreyndir: Nafn: Jóhannes Guðmundsson. 
 Aldur: 18 ára. Forgjöf: 1,1. Uppáhaldsmatur: Hreindýrakjöt. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Uppáhaldskylfa: Nýi pútterinn, Bettinardi BB1
. Ég hlusta á: Hlusta mikið á rokk, rapp og R&B
. Besta skor í golfi: 66 högg í Grindavík. Besta vefsíðan: kylfingur.is
. Besta blaðið: Golf á Íslandi
. Hvað óttast þú mest í golfinu: Það er ekkert sem ég óttast, en mér líkar illa við fimm feta pútt fyrir pari. Dræver: Titleist 913 D2. Brautartré: Titleist 915
. Blendingur: Er ekki með blending, er með Titleist Utility 3-járn
. Járn: Titleist AP2. Fleygjárn: SM6 Vokey Wedge. Pútter: Bettinardi BB1
. Hanski: Callaway
. Skór: Ecco Tour Hybrid
. Golfpoki: Titleist Staff Stand Bag. Kerra: Clicgear. 16 bitar 4499 krónur SJÁUMST Á BJÓÐIÐ VEISLUPLATTANN VELKOMINN Pantið á veisla@subway.is eða á þeim stað sem hentar að sækja. Nánari upplýsingar eru á subway.is/veisla. 104 GOLF.IS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.