Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 8

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 8
Sú grafhvelfing, sem talin er hafa verið gröf Krists. Næsta dag heimsóttum við marga staði innan múranna. Við komum að Betesdalaug (Jóh. 5, 2.), sem nú er aðeins uppþornuð gjá, og gengum inn í Húðstrýkingarkirkjuna, sem reist er á þeim stað, sem Jesús var húðstrýktur. Gegnt henni stendur Sak- fellingarkirkjan, þar sem dómurinn var felldur. Inni í þessum látlausu kirkjum áttum við hljóðar helgi- stundir, sem seint munu gleymast. Á leið okkar um Via Dolorosa, þennan dag, staðnæmdumst við á ýmsum stöðum, sem tengdir eru frásögnum Biblí- unnar eða helgisögnum. Við stönzuðum við hornið, sem kennt er við Símon frá Kyrene, þar sem Jesús hné niður undir krossinum, og hann var lagður á herðar Símonar. Við litum inn um dyrnar á húsi Veróniku, sem sagan segir, að hafi komið með dúk og þerrað sveitt og blóðugt andlit Jesú, en mynd þess hafi síðan greypzt óafmáanlega í dúkinn. Okkur var sagt, hvar Jesús hefði mælt orðin: „Grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og bömum yð- ar“. Við sáum Ecco-homo-bogann, og þannig mætti lengi telja. Síðast var staðnæmzt í kirkjunni, þar sem katólskir menn telja, að Golgata hafi verið. Það var þögull hópur, sem inni í þeirri kirkju hlýddi á sr. Frank lesa frásögnina um andlát Jesú, og við fund- um eflaust öll, að þama inni áttum við heilaga stund. Aftur á móti varð ég fyrir miklum vonbrigðum, er við komum að gröfinni. Þar vora smyrsl og reyk- elsi til sölu og engin helgi yfir staðnum. Ég reyndi að hugga mig við, að þetta stafaði af því, að allt væri svo miklu öðruvísi en ég hafði hugsað mér. Ég hélt, að Golgata væri utan borgarmúranna, enn ósnortin af manna höndum, og þá einnig gröfin. 8 Kristilegt skólablaS Ég á því bágt með að lýsa tilfinningum mínum er við síðar um daginn fórum til þess staðar, sem brezki sagnfræðingurinn Gordon telur hina réttu gröf Krists. Við gengum dáiítinn spöl út fyrir múr- ana og inn í Grafargarðinn, sem Englendingar kalla svo. Þar ríkti slíkur friður, að í hjarta mínu var ég strax fullviss um, að hér hefðu atburðimir gerzt. Við fengum að koma inn í gröf, sem höggvin var út í klett. Til hliðar við garðinn var hæð, þar sem jarðlögin sýndu greinilega hauskúpumynd. Þetta hlaut að vera hinn rétti Hauskúpustaður, utan við borg- armúrana. Og þarna var gröfin, hin opna, tóma gröf. Var nokkuð undarlegt, þó að við hæfum söng- inn: „Hann Hfir, hann lifir, hann lifir enn í dag,“ og hin brezka gæzlukona tæki undir með okkur? Þessi tóma gröf talaði sínu sterka máli, flutti hinn óumræðilega fagnaðarboðskap þeim, sem trúa á upp- risu Drottins, hverrar þjóðar, sem þeir em og hvaða tungumál, sem þeir tala. Næsta dag ókum við til Olíufjallsins, yfir Kedrondalinn. Frá Olíufjallinu blasir Moríafjall og Zíonsfjall við augum. Reyndar sýndist okkur Islend- ingunum þetta ekki vera fjöll, heldur hæðir, en það skipti minnstu máli. Á Olíufjallinu er spor í klett- inn: Það er talið síðasta fótspor Jesú á þessari jörð fyrir himnaförina. Ég hafði fyrir löngu heyrt um spor þetta talað, svo að það snerti mig ekki mikið, þó að ég liti það eigin augum. Aftur á móti varð frásögn LúkasarguðspjaUs lifandi fyrir hugskotssjón- um mínum: „Og meðan hann var að blessa þá, skildist hann frá þeim og varð upp numinn til him- ins.“ (Lúk. 24, 51.). Ég fann svo greinilega á þessum stað og stund „þann kærleik, sem ennþá þann boðskap mér ber, að blessandi hendur hans séu yfir / (C mer. I hlíðum Olíufjallsins, þar sem Jesús kenndi lærisveinum sínum að biðja, staðnæmdumst við. Þar stendur kirkja, þar sem bænin „Faðir vor“ er rituð á tungumálum hinna kristnu þjóða, nema ekki á íslenzku, því miður. Síðan lá leiðin niður í Getsemane. Getsemane er sá staður, sem mér þykir einna vænzt um. Þar var ákvörðun Jesú tekin og baráttan háð af honum ein- um, sem átti að bera synd alls heimsins. í kirkju þeirri, sem ýmsar þjóðir í félagi hafa reist þama í garðinum og nefnist því „Allra þjóða kirkjan,“ átt- um við hljóða helgistund. Utan um klettinn, þar sem Jesús háði hina ströngu baráttu sína, hafa verið reistar altarisgrindur. Við þær grádur kraup hópur-

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.