Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 10

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 10
Fannstu gæfuna í Kristi? MARGRÉT M'O'LLER, Verzlunarskóla íslands: FANNSTU gæfuna í Kristi? Þetta er alvarleg spurn- ing, sem allir trúaðir menn svara hiklaust játandi. En hver er þessi gæfa? Jú, það er mikil gæfa að fá náð til að þekkja Guð og vilja hans, koma til hans með all- ar sínar syndir og öðlast fyr- irgefningu þeirra. Hann auðsýndi okkur mönnunum svo mikinn kær- leika að hann sendi sinn ein- getinn son, Jesúm Krist, til jarðarinnar, til að vera frið- þæging fyrir syndir vorar og til þess að við mættum eign- ast trú á hann og hljóta eilíft líf að lokum. Hann dó á krossi fyrir mig og fyrir þig. Blóð hans rann á Golgata vegna synda okkar, sem við höfðum til unnið. Þess vegna verðum við að koma fram fyrir hann með allar okkar syndir og draga ekkert undan, því að þá er hann trúr og rétt- látur. Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns(Sálm. 100, 5). Ég heyrði kall Drottins fyrst, þegar ég fór að sækja fundi í K.S.S., en ég vildi ekki hlýða því. Mér fannst gott að mega koma til hans með allar mínar áhyggjur, þegar eitthvað bjátaði á, eða eitthvað gekk illa. En svo laukst það upp fyrir mér, að Jesús vill enga hálfvelgju. A einum stað í ritningunni stendur: „Því er það, af því að þú ert hálfvolgur, og ert hvorki heitur né kaldur mun ég skyrpa þér út af munni mínum.“ Þá var það að ég gafst upp fyrir honum og gafst honum á vald. „Komið til mín 10 Kristilegt skólablað allir þér, sem erfiðið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Ég kom til hans eins og ég var, og hann tók við mér. Jesús Kristur gefur okkur mönnunum náð til þess að velja á milli sín og glöt- unarinnar. 1 hans orði stendur, að hver, sem komi til hans, muni hann alls ekki burtu reka. Hann leyf- ir okkur að velja hvort við viljum ganga í ljósinu eða í hinu eilífa myrkri. Með því að lesa Biblíuna fáum við andlega næringu og lærum að þekkja hann og vilja hans, sem er okkur fyrir beztu. Jesús Kristur er vegurinn, sem liggur til lífsins, hjá hon- um færð þú allt, sem þú þarfnast. Er hann knýr á hjartadyr þínar, skalt þú svara honum með því að koma til hans og gefast honum á vald, því að þú munt aldrei sjá eftir því. Jesús Kristur er grund- völlur, sem gott er að byggja líf sitt á. Hann er það bjarg, sem bifast ekki þó á reyni. Gefi hann þér náð til að velja veginn rétta. GUÐMUNDUR INGI LEIFSSON, Kennaraskóla íslands: ÞESSARI SPURNINGU get ég ekki svarað nema á einn veg, játandi, og ég gæti bætt við, já svo sann- arlega. Ég leitaði gæfu eins og allir unglingar, sem eru að halda út í lífið, allir vilja verða gæfusamir menn. Og nú hefur þessi leit mín borið árangur, ég hef fundið gæfu, sanna lífshamingju. Og vegna þess, að ég hef orðið þessarar gæfu aðnjótandi, langar mig til þess að benda þér á, hvar hana er að finna.

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.