Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 11

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 11
Ég leitaði fyrst, þar sem flestir byrja að leita, á dans- og skemmtistöðum. En ég þekkti vilja Guðs með mig, og rödd hans hljómaði sífellt í eyrum mér á þessa leið: Gœfan, sem leitar þú ákaft að, andartak stendur við. Krossinn fær opnað þér í þess stað eilífa gleði og frið. Já, gæfan, sem ég leitaði að á þessum stöðum, stóð aðeins andartak við. En svo fékk ég að reyna það, að við kross Krists var hina einu sönnu gæfu að finna, þar hafði hann dáið fyrir mínar syndir, og því gat ég eignazt frið. Guð sagði: „Eg þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður, fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju“. Þetta vil ég leyfa mér að benda einnig þér á, vegna þess að ég veit af eigin reynslu, að sanna gæfu er ekki annars staðar að finna. Hann hefur einnig fyrirætlanir í hyggju með þig, fyrirætlanir til heilla, en ekki til ó- hamingju. Hann vill, að þú verðir aðnjótandi sannrar gæfu, gæfu, sem hann hefir fyrirbúið þér með kross- dauða sínum, og hún er eilíft líf með Honum. Að lokum vil ég svo benda þér á söng, sem séra Friðrik hefur þýtt, þar sem talað er um leitina að gæfunni: Ei gæfu þú finnur, þótt dansirðu dátt við dillandi slátt; hún flýr þig, — en gœlir og glitrar, þú grípur, en rasar og titrar. Þú finnur í eymd þinni, að allt er valt. Þú gœfuna finnur, ef krýpurðu á kné við krossins tré; hún gripur þig fallinn, sem grœtur og grátinn þig reisir á fœtur. Þá nemur þú lofsöngsins lag þann dag. „Neniið staðar við vegina og litist um, og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin, og farið hana, svo að þér finníð sálum yðar hvíld.“ — Jer. 6,16 MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Kennaraskóla íslands: KÆRI LESANDI, þessari spurningu get ég með fögnuði í hjarta svarað játandi. Þá gæfu, sem varir, fann ég, fyrst þegar ég mætti Jesú Kristi og tók við hon- um sem lausnara mínum, persónulegum endurlausn- ara. Því hver getur orðið meiri gæfu aðnjótandi en þeirri að vita að Guð elskaði okkur svo mikið að hann gat látið einkason sinn líða kvöl og dauða á krossi, til þess að við, þú lesandi minn og ég, gætum öðlazt eilíft líf. Hann var ekki einungis viljugur að deyja fyrir okkur, heldur var hann, sem var heilagur, gerður að synd- okkar vegna. Hvernig tökum við svo þessu boði, sem hann býð- ur okkur, að öðlast eilíft líf? Segjum við já við kalli hans og fylgjum honum eða snúum við við honum bakinu og þá um leið við gæfunni? Eða erum við hlutlaus, það finnst þér kannski vera það bezta. Þá segirðu ef til vill sem svo: Ég læt þetta bara alveg afskiptalaust, mér kemur þetta ekkert við. En það er bara ekki rétt, einmitt þér kemur þetta við. Biblían segir, að enginn geti þjónað tveimur herrum, annað hvort erum við á móti honum eða með honum. Lesandi minn hvorum megin stendur þú? í Matt. 6. 33. stendur: „En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis og þá mun allt þetta veitast yður að auki“. Það er einmitt þetta, sem ég hef fengið að reyna. Áður fyrr vildi ég stjórna lífi mínu sjálf, og mér fannst ég vel geta það, en ég fann engan tilgang með lífinu, ég hafði ekkert takmark að steína aö. En þegar ég tók þessi orð í Matt. 6. 33. til mín, öðlað- ist líf mitt tilgang. Á hverjum degi get ég komið til hans með allt, sem mér liggur á hjarta, bæði í gleði og sorg, og ég veit að hann leysir úr öllum mínum málefnum eins og mér er fyrir beztu. Einnig þrengingar eru mér til góðs, því að ég veit að Drottinn leggur ekki meira á mig en það, sem (Framh. á bls. 33). Kristilegt skólablað 11

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.