Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Blaðsíða 13

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Blaðsíða 13
aði hann sig í einkennisbúningi, sem að vísu var svo slitinn, að hann var öllu líkari betlara heldur en bardagamanni. — Þessum stjúpföður Mei-li bauð kristnboð- inn kvöld nokkurt heim til sín. Hann langaði gjarnan til að vita meira um Mei-li. Ég hugsa, að það sé ekki auðvelt að heyra skringilegri samrœður en þœr, sem þá fóru fram. Það eru kristniboð- inn og stjúpfaðir Mei-li, sem tala nú saman: „Er Alci-li dóttir þín?“ „Já.“ „En af hverju er hún þá svona vestrœn í útliti?“ — „Jú, móðir hennar er útlendingur“. „Hvað- an er móðir Mei-li?“ „Ég kvæntist franskri nunnu í Changhua.“ „Það kæmi ekki fyrir, án þess að við fréttum af því. Ég veit um enga hvíta nunnu í Chnghua, sem hefur gifzt Kínverja“. „Ó nei! Þetta er vitleysa. Það var ensk kona.“ „Nei, það stenzt ekki. Við kristniboðarnir mundum líka frétta af því“. „Minni mitt er mjög lélegt í dag. En, þegar ég hugsa mig vel um, þá man ég, að í Hong- Kong kvœntist ég rússnesk-banda- rískri konu, og hún er móðir Mei- li“ „Það er heldur ekki rétt, því í Hong-Kong höfum við kristni- boðsstöðvar, og við fréttum alltaf, þegar hvít kona giftist útlending“. „Já, en ég segi þó sannleikann“. „Hvernig stendur þá á þvi, að þú átt son, sem er iafngamall Mei- li?“ „Hann átti ég með fyrstu konu minni.“ „Eftir ártölunum að dæma, hlýtur þú að hafa átt þrjár konur í einu, því að svo er for- móska konan“. „Já, en áílt, sem ég hef sagt er satt. Líttu bara í skil- ríkin mín. Þarna stendur nafn- ið hennar skrifað. Hún tilheyrir mér, og enginn getur gert tilkall til hennar.“ Hann var rólegur, en augu hans gneistuðu af reiði. An þess að mæla meira, gekk hann út úr húsinu og út í myrkrið. Mei-li var hans eign. Hann hafði fengið hana í hendur, og með hana hafði hann ýmsar áœtl- anir. Hún yrði verðmætari eftir því, sem hún stœkkaði, og kristni- boðinn skildi gæta þess að sletta sér ekki fram í áform hans. Konan, sem Mei-li hélt að vœri mamma hennar, var í raun og veru frœnka hennar. Hennar rétta móðir var götustúlka, en, er Mei- li fœddist, hafði þessi frænka hennar farið með hana heim til sín. Þegar Mei-li var sex ára gift- ist frœnka hennar manninum frá Changhua. Hin rétta móðir Mei-li var, eins og áður er sagt, vœndiskona í Chilung. Hún hafði aðsetursstað í útlendingahverfi við höfnina. Faðir Mei-li var því sennilega ein- hver bandarískur sjóliði. Nú var móðirin orðin of gömul til að stunda sína fyrri iðju, og hafði hún fengiö vinnu við að slœgja fisk á hafnarbakkanum. Frænka Mei-li flutti sig fljótlega burt með hana frá Chilung, þvi hú.n var hrœdd um, að móðir Mei-li reyndi að draga hana síðar út í það líf, sem hún lifði, þar eð hún hafði gert nokkrar tilraunir til að lokka hana til sín. Mei-li, sem nú var orðin tvítug, var komin aftur eftir nokkurra ára fjarveru, en állt bar merki um það líf, sem stjúpfaðir hennar hafði leitt hana út í. — Dag nokk- urn kemur Mei-li til kristniboðans og segir honum, að faðir hennar hafi útvegað henni úrvals atvinnu í herstöð. Mei-li veit ekki, að í nœsta þorpi er vœndishús fyrir herinn. Kristniboðinn segir henni þetta í nokkrum hnitmiðuðum orð- um. Þar sem þegar var búið að undirrita samninginn, var eina leiðin fyrir Mei-li til að brjótast undan valdi stjúpföðurins að hrópa á hjálp á járnbrautarstöð- inni, því þá, mundi lögreglan grípa í taumana, og Mei-li fengi þá tœkifœri til að segja sögu sína á œðstu stöðum, já meira að segja sjálfri forsetafrúnni. Þannig eru kínversku lögin. En svo langt fór málið þó aldrei. Stjúþfaðirinn varð enn einu sinni að sjá hvíta kristniboðann kollvarpa fyrirœtl- unum sínum. Mei-li og frœnka hennar fluttust nú til annars þorps, þar sem Mei-li gat gengið í skóla og komizt undan áhrifa- valdi stjúpföðurins. Mei-li hefur nú verið í sumar- búðum með kristnum ungmenn- um. Hún hrífst með og játar synd- ir sínar og vill skírast. Nú gengur í hönd undirbúningsnámskeið hjá kristniboðanum fyrir skírnina, en það gengur hœgt. Tímum saman lætur hún ekki sjá sig, og kristni- boðinn er órólegur, en svo skýtur hún upp kollinum, segir ekki mik- ið, en er glöð og brosmild. Um tíma starfar hún sem miðasölu- stúlka í sporvagni, en menn, sem Kristilegt skólablað 13

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.