Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 26

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 26
Ólafur Ólafsson, kris'nihobi: vern segja mannssonmn menn vera? „Tómas svaraði og sagði við hann: Drottinn minn og Guð minn“. — Jóh. 20, 28. íIANN STOÐ fyrir framan grádurnar í hópi margra fermingarbarna. Og honum fannst það augna- blik ákaflega alvarlegt, þegar hann gaf prestinum hönd sína upp á það — alveg eins og hinir krakkarnir — að hann hefði gengið Krisd á hönd sem leiðtoga lífs síns. Honum var þó alls ekki ljóst, hvað í því felst, að Kristur sé leiðtogi lífs okkar. Til þess vissi hann of lítið um Krist og þekkti heldur ekki sjálfan sig nógu vcl. Helzt hafði honum skilizt, að það aö kjósa Krist sér að leiðtoga þýddi blátt áfram, að maður vildi líkj- ast honum, taka hann sér til fyrirmyndar. Er það ekki það, sem Pétur á við, þegar hann skrif- ar í fyrra bréfi sínu: „Kristur eftirlét yður fyrirmynd til þess að þér skylduð feta í hans fótspor?“ Það hafði honum verið sagt, fermingardrengnum. Að Pétur skrifaði ýmislegt fleira um Krist, var honum ekki eins vel kunnugt, eins og til dæmis: „Helgið Krist sem konung í hjörtum yðar.“ Og ennfremur: „Ekki er hjálpræði í neinum öðrum, því að eigi er heldur annað nafn undir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða“. — Post. 4,12. —I fermingarveizlunni um kvöldið var sungið: 26 Kristilegt skólablað „ . . . frjálsa og glaða lífið, það kjósum vér“. — Það skildi hann betur. „Lítilsvirðum ekki litla byrjun.“ 2. Fyrstu lærisveinar Jesús, sem síðar urðu postular hans, gerðu sér alls ekki grein fyrir hverjar afleið- ingar það mundi hafa, að þeir kusu hann sér að leið- toga, hlýddu kalli hans: Fylg þú mér. Þeir hlýddu kalli hans. Það var upphaf lífs þeirra í fylgd með Jesú, lífs í hlýðni við hans kærleiksríka, heilaga vilja. Adam og Eva óhlýðnuðust Guði. Afleiðing þess var fráhvarf og andlegur dauði. Hlýðni við boð Frelsarans er afturhvarf til lífssamfélags við Guð. Lærisveinarnir höfðu litla hugmynd um, hvað þeirra beið í fylgd með hinum nýja leiðtoga frá Nazar- et. Þeir vissu, að hann var rabbí, frábær kennimaður. En ekki vissu þeir fremur en Nikódemus, að þá skorti ekki svo mjög meiri lærdóm eða að komast í kynni við nýjar kenningar, heldur nýtt líf. „Enginn getur séð Guðs ríki nema hann endurfæðist“, öðlist lífssamfélag við Guð. Það voru orð Jesú. Um þetta fræðir frelsarinn lærisveina sína enn í dag, í orði sínu og votta sinna: „Það eru misgjörð- ir yðar, sem skilnað hafa gjört milli yðar og Guðs yðar.“ — Jes. 59,2. „Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf fyrir samfélagið við Krist Jesúm, Drottinn vorn.“ — „Vér erum því erind- rekar í Krists stað . . . látið sættast við Guð.“ — Róm. 6,23 og II. Kor 5.20.

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.