Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Side 27

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Side 27
Þetta kenndi Jesús og hans vottar þeim, sem vildu fylgja honum og vera lærisveinar hans í raun og sann- leika. 3. Ekkert áttu lærisveinar Jesú jafn erfitt með að nema hjá honum og það, að hann væri sá, er nafn hans benti til, frelsari mannanna. Enginn þeirra gat trúað því fyrr en undir lok sam- veru þeirra með honum og fæstir ekki fyrr en eftir upprisu hans frá dauðum. En þá varð það samróma vitnisburður þeirra allra, sem Páll orðar þannig, í upphafi Rómverjabréfsins, (hér í nýrri norskri þýðingu): „ . . . evangeliet om hans sönn .. . som etter hellig- hetens Ánd er Guds veldige Sönn, slik det blev slátt fast da han stod opp fra de döde: Jesus Kristus, vár Herre. Ved ham har vi fátt náde og apostelkall, for at vi til ære for hans navn skal skape troens lydighet blant alle hedningefolk.“ Skiptir það nú miklu máli, hvort því er trúað eða afneitað, að Kristur hafi verið Guðs einka Sonur, „sannur Guð, fæddur af föðurnum frá eilífð“, eins og kristin kirkja hefur játað á öllum öldum? Sé því ekki trúað, þá fer að verða ástæða til að setja spurningarmerki við ótal margt af því, sem haft er eftir Kristi og um hann er sagt í Nýja testament- inu okkar, en aðrar heimildir um hann eru ekki til, — enda er það óspart gert af þeim, sem hafna guðdómi hans. Hann segist vera „ljós heimsins“, kominn til þess að eyða myrkri vanþekkingar þessa mannkyns á Guði sínum. Hann segir: „ . . .eigi gjörþekkir nokkur Föður- inn nema Sonurinn og sá er Sonurinn vill opinbera Hann. Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir . . .“ — Matt. 11.28. Og ennfremur segir h.ann: ..Ef þér hafið Jækkt mig, munið þér og þekkja Föður minn. Og héðan í frá þekkið þér hann og hafið þegar séð hann“. — Jóh. 14.7. Af ótal mörgum orðum Krists í sömu átt skulum við minnast Jóh. 17.3: „En í Jrví er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki þig, hinn eina sanna Guð, og þann, sem þú sendir, Jesúm Krist“. Og loks í kristniboðsskipuninni: „ . . . skírið þá til nafns Föðurins, Sonarins og Heilags Anda“. — Minn- ir þetta ekki á orð hans: „Ég og Faðirinn erum eitt“? 4. Að vonum gera þeir menn, sem hafna sjálfsvitnis- burði Jesú og boðskap postulanna um guðdóm hans, lítið úr þekkingu trúaðra manna á Guði. Og vitan- lega hiyllir þá við vitnisburði Jóhannesar skírara: „Sjá GuSs larnbið, er ber synd heimsins“. Því bera þó frumvottarnir, þeir, sem fyrstir manna kusu Jesúm að leiðtoga lífs síns, ótvírætt vitni, að hann hafi ekki dáið á krossi líkt og óteljandi píslarvottar hafa gert heldur sem endurlausnari fallins mannkyns. „Það var Guð, sem í Kristi sætti heiminn við sig. -—■ Vér biðjum í Krists stað: „Látið sœttast við Guð“— II. Kor. 5. Þegar fjöldinn sneri baki við Jesú og hafnaði hon- um, af því að þeir voru ekki ánægðir með hann eins og hann er, þá spurði hann lærisveinana: „Hvern segið þér mig vera“? Pétur svaraði fyrir hönd þeirra — og undir það svar hafa kristnir menn tekið allt til þessa dags: „Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs“! Fékk hann ávítur fyrir það svar? Jesús svaraði og sagði: „Sæll ert þú Símon Jónas- son, því að hold og blóð (þ.c. mannleg vizka) hefur eigi opinberað þér það heldur Faðir minn í himninum. — Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn“. Þegar Pétur játaði trú sína á Frelsarann á fyrsta hvítasunnudegi, varð til kristinn söfnuður, kristin játningakirkja, sem hefði fyrir löngu liðið undir lok, væri hún ekki byggð á þessum grundvelli heilagrar játningar: Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs! 5. I sálmabók íslenzku kirkjunnar eru 56 sálmar „um upprisu Krists og tign og náð Guðs Sonar“. Engir sálmar bókarinnar eru meira sungnir en þessir 56. En síðasta vers þeirra er: „Son Guðs ertu með sanni. . . “ Á að hætta að syngja það? — „Hvern segið þér mig vera“? Ein er sú bók, sem alþjóð á, öðrum bókum fremur, —■ Passíusálmarnir. Þeir eru sungnir og lesnir í út- varpinu á 50 kvöldum ár hvert. En efni þeirra er frá upphafi til enda „umþenking guðrækileg Herrans Jesú pínu og dauða“. Vei mér, gæti ég ekki tekið undir lokavers þeirra: Dýrð, vald, virðing og vegsemd hœst, vizka, makt, speki og lofgjörð stærst sé þér, Ó, Jesú, Herra hár, og heiður klár. Amen, amen um eilíf ár. Kristilegt skólablað 27

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.