Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 28

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 28
hvað þá? BENEDIKT STEINGRÍMSSON, Menntaskólanuni í Reykjavík: ÞAÐ fer ekki hjá því, að við veltum því oft fyrir okk- ur hvað verði um okkur eftir dauðann. Oft á tíðum verða þessar vangaveltur til lítils gagns, þar sem þær skoðanir, sem uppi eru, eru það misjafnar, að erfitt er að greina bæði haus og hala á þeim. En er eitthvert svar við þessari spurningu? Ég persónulega var í miklum vafa um það, hvort svo væri, þangað til fyrir örfáum ár- um, að ég tók trú á Jesúm Krist, þá skildist mér, að það er satt, sem stendur í Bibl- íunni, að „svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“, eða eins og sr. Hallgrímur Pétursson segir í Pass- íusálmunum: En með því út var leiddur alsœrður lausnarinn, gjörðist mér vegur greiddur i Guðs náðar ríki inn og eilíft líf annað sinn. Blóðskuld og bölvan mína burt tók Guðs sonar þína. Dýrð sé þér, Drottinn minn. En eins og sést af þessu, öðlumst við aðeins eilífa líf- ið fyrir trúna á Jesúm Krist og því hvet ég þig til að koma til Hans og fylgja honum. Hann lét 28 Kristilegt skólablað VILBORG RAGNARSDÓTTIR, Fóstruskóla Sumargjafar: HVAÐ ER EILÍFÐIN í augum mínum, er hún eitt- hvað, sem ég kvíði fyrir eða hlakka ég til hennar? Ég hlakka svo sannarlega til hennar, vegna þess að ég trúi því, að Jesús Kristur hafi dáið á Golgata til þess, að ég gæti komist inn í him- ininn og lifað þar um eilífð. Hann sagði, þegar hann hékk á krossinum: „Það er fullkomnað/1 og fortjaldið rifnaði í tvennt, og öllum var greiddur vegur til himins, því Jesús sagði: „Ég er veg- urinn, sannleikurinn og lííið11 (Jóh. 14.6). Ef við viljum eignast hamingju í eilífðinni, sem hefst að þessu lííi loknu, þurfum við að komast til himins, og Jesús sagði: „Enginn kemur til Föðurins nema fyrir mig.“ (Jóh. 14.6). Ég hef komið til Jesú og fengið fyrirgefningu synda minna hjá honum og fyrirheit um eilíft líf með Guði, ef ég stend stöðug allt til enda. Þess vegna hlakka ég til eilífðarinnar, af því að Jesús hefur gefið mér loforð, sem hann mun ekki svíkja. Þá, þegar ég kem heim til Guðs, en þar eigum við heima (Fil. 3. krossfesta sig aðeins til þess að ég og þú gætum öðlazt eilíft líf. Er hægt að slá á útrétta hjálparhönd Guðs? Vilt þú eiga reiði Guðs yfir þér? Komdu heldur til Krists. Það hef ég sjálfur gert, og ég hef reynt, hve lífið öðlast meiri tilgang við það. Komdu nú. A morg- un getur það verið of seint.

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.