Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 29

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 29
GUNNAR SANDHOLT, Menntaskólanum í Reykjavík: OLL æðstu trúarbrögð mannanna eru sammála um, að til sé líf eftir dauðann. Hvað tekur við eftir andlát okkar? Hamingja, óhamingja, gleði eða sorg? Getum við unnið sálu okkar eilífa sælu með meinlæta lifnaði eða góðverkum? Nútímamaðurinn gerir reyndar lítið úr hvers konar trú. „Vísindin hafa sannað, að eilift líf og Guð séu ekki til“, segja sumir í fáfræði sinni. En vísindin hafa ekki og munu ekki sanna neitt um tilveru Guðs. En menn- irnir hafa komizt að raun um ,að cimsnvggja nútímans fullnægir ekki þörfum sálarinnar. Hvernig getum við þá vitað nokkuð með vissu um eilífðina? Biblían, Guðs orð, lætur okkur í té nægar uppl/singar um eilífðina. Hún talar ákveðið um að- eins tvennt, sem á sér stað eftir þetta líf. Eilíft líf og eilífa glötun. 20), fæ ég að sjá Jesúm eins og hann er og byrja nýtt líf með honum, hamingjuríkt og fullkomið hf, sem varir að eilífu. Hér gagna engin góðverk, til þess að koma okkur til himins, eða þróun sálarinnar á æðri tilverustigum. Aðeins ein leið er til himins, eins og stendur í sálminum: „Þú, —Jesús, ert vegur til him- insins heim.“ — Hvað segir Drottinn svo um þá, sem ekki eignast dýrðina á himni? Þeirra bíður eilíf glöt- un, eilífar þjáningar, án nærveru Guðs (Jóh. 3.16). Hvílík hörmung. Jesús hefur aldrei sagt, að eftir dauð- ann bjóðist okkur aftur tækifæri til þess að snúa okk- ur til hans, eins og sumir segja. Þess vegna, lesandi góður, ef þú deyrð, án þess að hafa fengið fyrirgefn- ingu synda þinna hjá Jesú og fullvissu um eilíft líf með honum, hlýtur þú að lifa fjarri Guði um eilífð, því, hví skyldi hann vilja þig hjá sér, ef þú vilt ekki vera hjá honum? Hvenær þú deyrð, veit Guð einn. Þess vegna skaltu snúa þér til hans, áður en það er um seinan. Guð þráir að fá að bera áhyggjur þínar og veita þér frið, en hann hefur gefið þér frjálsan vilja. Hvað ætlar þú að gera við hann? Er þá nokkuð að marka Biblíuna í þessum efn- um? Hvernig get ég verið viss um, að hún sé Guðs orð? Jú, skrif Biblíunnar eru þannig, að hver, sem rannsakar hana, kemst að raun um, að meira er bak við en mannlegur máttur. Og þann sannleika, sem hún flytur um huggun iðrandi syndurum til handa, hef ég fengið að reyna. Þess vegna trúi ég, að Biblían segi okkur sannleikann um eilífðina. Þegar Jesús talar um dómsdag í 25. kafla Matt- eusarguðspjalls, talar hann aðeins um tvo hópa, sinn hvorum megin við hásæti Drottins. Hann segir líka: „Þá munu tveir vera á akri, annar tekinn hinn skil- inn eftir“. (Matt. 24, 40).Af þessu sjáum við, að aðeins er um tvennt að velja í sambandi við eilífð- ina. Eitt sinn kom ungur maður til Jesú og spurði: „Hvað á ég að gera til að erfa eilíft líf.“ Jesú sagði honum að fylgja sér. Jesú sagði líka: „Ég er vegur- inn, — enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“. Jesús er eina leiðin til eilífs lífs og til sannrar lífsham- ingju. Hugsaðu um sálarheill þína, meðan tími er til þess. Þér virðist ef til vill nægur tími eftir dauðann, en þá er það OF SEINT. (Lestu Hebreabréfið 9, 27). Lestu Biblíuna og lærðu að þekkja Guð, því að Jesús sagði: „í því er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki þig, hinn eina sanna Guð, og þann, sem þú sendir, Jesúm Krist.“ STJÓRN K.S.S. 1965-66 Formaður: Jón Dalbú Hróbjartsson Verzlunarskóla Islands. Ritari: Sævar Berg Guðbergsson Kennaraskóla íslands Gjaldkeri: Friðrik Ól. Schram Verzlunarskóla íslands Meðstjórnendur: Elín Einarsdóttir Kennaraskóla ísíands Grímur Friðgeirsson Iðnskólanum Fulltrúi K.S.F., K.F.U.M. og K.: Sigurður Pólsson, kennari RITNEFND KRISTILEGS SKÓLABLAÐS Ritstjóri: Friðrik Ól. Schram Benedikt Steingrímsson Guðmundur Guðlaugsson Margrét Möller Sigríður Pétursdóttir Menntask. í Rvk. Menntask. í Rvk. Verzlunarsk. ísl. Verzlunarsk. Isl. Kristilegt skólablað 29

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.