Skák


Skák - 15.06.1949, Blaðsíða 15

Skák - 15.06.1949, Blaðsíða 15
okkar. Ef Iiann lifði nú og hefði alltaf haft góða heilsu, ekki þurft að herjast við hvíta dauðann, en fengið að berjast við okkar beztu skákmeistara við skákborðið, þá væri hann efalaust búinn að vera Skák- riieistari fslands, og ef til vill oftar en í eitt skipti. Þegar hann varð að hætta að tefla, var hann húinn að vinna sér þátt- tökurétt í landsliði. Sigurður var mjög góður í hraðskák, hann var svo fljótur að leika, að maður átti erfitt með að fylgjast með, þegar liann lék, og útlendingar, sem sáu liann tefla hraðskák stóðu undrandi, þeir höfðu aldrei séð þvílíkan hraða og þó lék hann oftast mjög vel. Sigurður var einnig ágætur námsmaður. Hann átti skammt eftir til að Ijúka lög- fræðiprófi, þegar hann varð að fara á Vífilstaðahæli, og hætta námi. 1 sínurn hópi var Sigurður hrókur alls fagnaðar. Hann var gæddur skemmtilegri kímnigáfu, kom oft félögum sínum í gott skap með græskulausu gamni. Hann gat einnig verið nijög alvörugefinn og rætt um þjóðmálin og ýms pólitísk vandamál, var rökfastur en mildur í dómum sínum. Um þau mál talaði hann lielzt er við vorum tveir einir, að minnsta kosti heyrði ég hann lítt minn- ast á þau mál annars. Sigurður, þú ert fluttur frá okkur, en við kunningjar þínir munum geyma minn- ingu þína, minnast glaða og góða drengs- ins, sem við áttum svo margar skemmti- legar stundir með við skákborðið. Blómið unga blöðin felldi um morgun miðjan. Þú, okkur kvaddir alltof snemma, Siggi, vertu sæll. Aðalsleinn Halldórsson. t UeScfl ^&iðmundsson Nýlátinn er Helgi Guðmundsson læknir frá Keflavík. Þrátt fyrir erfitt og umfangs- mikið læknisstarf, var liann áhugasamur skákmaður og góður liðsmaður í félagi sínu, en vegna atvinnu sinnar gat hann ekki tekið þátt í opinberum skákmótum. — Síðuslu árin dvaldi hann sem sjúklingur að Vífilstöðum, og gat þá gefið sig meir að skákiðkunum, enda varð hann brátt lvftistöng skáklífs þar og lengstum formað- ur Taflfélagsins á staðnum. — Helgi er hróðir Steingríms Guðmundssonar, skák- meistara. LeiSrétting: Lesendur hlaðsins eru beðnir afsökunar á prentvillu, er slæddist inn í skák þeirra Guðmundar Ágústssonar og Ásmundar Ásgeirssonar, (skák nr. 219), en þar vant- aði inn í 30. leik lijá hvítum, en 29. hjá svörtum. Leikjaröðun verður því svona: 29. Kgl—lil, De3—e2; 30. Hfl—gl, Rel—d3; 31. Hgl—bl, Rd3—el! 7 /7 kaupenda blaðsins. Áskrifendur eru vinsamlega beðnir að tilkynna blaðinu bústaðaskipti. S K Á K 11

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.