Skák


Skák - 15.06.1949, Síða 30

Skák - 15.06.1949, Síða 30
Fræðsla, sem bæfir úr brýrnii þörf íslenzka skákmenn skortir tilfinnanlega fræðslu um skákbyrjanir og almenna skák- „strategí“ (hernaðarfræði). Ennþá liefur engin bók kornið út á íslenzku um þessi efni, og hafa margir áhugasamir skákmenn, sem vilja „studera“, kvartað yfir þessu. Er þessi skortur því bagalegri sem það er vitað, að flestum skákmönnum er þörf meiri eða minni þekkingar í hyrjunum og skákfræði lil þess að ná góðum árangri og þroska í skáklistinni. „Skák“ hefur leitazt við að bæta úr þessu með því að gefa nokkrar undirstöðu- reglur (sbr. aðallega I. árg.), og þótt það hafi náð skammt, liefur það verið vel þegið af lesendum, en nú mun þessi fræðsla verða tekin fastari tökum. Mun blaðið birta greinaflokk, þar sem allar algengustu skákbyrjanirnar eru teknar til allræki- legrar athugunar, og birtist fyrsta greinin í þessu blaði. (Full ástæða væri til að gera skák „strategíunni“, sörnu skil hér í blaðinu og verður það tekið til atliugunar þegar greinaflokki þessum lýkur og máske fyrr. Að sjálfsögðu gera ýtarlega útskýrðar og lærdómsríkar skákir mikið gagn í þessa átt. Til þess að koma nokkuð til móts við lesendur að þessu leyti, mun blaðið fyrst um sinn velja til birtingar í hverju blaði a. m. k. eina slíka skák. Fyrsta skákin í þessu augnamiði birtist einmitt í þessu blaði: Fine-Horowitz, New York 1948). Greinaflokk þennan um skákbyrjanir hafa þeir félagarnir D. A. Yanofsky og R. G. Wade nýlega samið fyrir „Skák“, þannig að ein grein birtist í liverju blaði. 26 Kóngspeðs-byrjanirnar eru fyrst teknar til meðferðar og þeirra fyrst sú veigamesta, Spánski leikurinn (Ruy Lopes), og nær hann yfir þrjár greinar, en hinum kóngs- peðs-byrjunum eru gerð skil í einni grein hverri. Spánski leikurinn er flókin og við- sjál bvrjun og þess vegna nokkuð þung fyrir byrjendur að glíma við, en af ýmsum ástæðum fer bezt á því að láta þessa byrjun korna þegar í upphafi. Þeir sem vildu kynna sér einfaldari byrjanir fyrst (t. d. Caro-Kann vörn og sum afbrigði í Franskri vörn) verða því að láta það bíða síns tíma. Eins og sézt á fyrstu greininni, er lögð mikil áherzla á að útskýra markmið byrj- unarinnar, en minna gert að því að greina frá tilgangi hvers einstaks leiks, enda er þess ekki alltaf þörf og einnig reiknað með því, að lesandinn skilji, að hverju beri að stefna í hyrjun taflsins. Eins og fyrr var sagt, hefur nokkur tilsögn liér að lútandi verið gefin hér í blaðinu áður, og skal vísað til þess, en þessar meginreglur skulu ítrekaðar: 1) að leika mönnunum sem fyrst út á borðið (m. ö. o. sem örasta útrás) og 2) að bafa a. m. k. jafnmikil yfirráð yfir miðborðinu (reitunum e4, d4, e5 og d5) og andstæðingurinn. Höfundar greinaflokksins, þeir félagarnir Yanofsky og Wade, eru íslenzkum skák- mönnum að góðu kunnir. Skákför þeirra hingað til lands vorið 1947 er okkur í ferskti minni (um komu þeirra og skák- mót, sjá „Skák“, marz-apríl 1947). Hafa þeir borið íslendingum og íslenzku skák- Kfi vel söguna í skákblöðum erlendis. Auk þess að vera snjallir og samvizkusamir skákmenn, eru þeir lærðir vel í þessum efnum og fylgjast vel með öllum nýjungum. Ætti lesendum „Skákar“ að vera fyllilega óhætt að fylgja leiðsögn þeirra félaga á hinum hálu vegum skákbyrjananna. Lesendur góðir! „Skák“ væntir þess, að þið gefið greinaflokki þessum verðugan S K A K

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.