Bautasteinn - 01.05.2005, Side 10
10
Það vekur almennt athygli erlendra
gesta, og þá sérstaklega norrænna sem
koma í Hólavallagarð, hve margar lág-
myndir Bertels Thorvaldsens prýða leg-
steina í garðinum. Á tímabilinu frá því um
1880 og fram yfir 1920 var slíkum lág-
myndum komið fyrir á meirihluta leg-
steina í garðinum. Algengustu lágmynd-
irnar eru Dagur og Nótt og svo mun það
einnig vera erlendis. Er þær að finna í
mörgum stærðum og á flestum svæðum
garðsins en munu þó flestar vera í óskipu-
lagða hluta hans. Í Hólavallagarði má þó
auk Dags og Nætur sjá tíu aðrar lágmynd-
ir Thorvaldsens. Þær eru oft á tíðum fá-
gætar, sjaldnast til nema eitt til tvö eintök í
garðinum. Ekki gefst hér rúm til að leggj-
ast djúpt í lýsingu eða greiningu á mynd-
máli þeirra heldur verður hér einungis
um yfirlit að ræða. Vera má að færi gefist
síðar meir á þessum vettvangi til að fjalla
nánar um hvert myndefni fyrir sig.
Til að auðvelda lesendum þessa grein-
arkorns að virða lágmyndirnar fyrir sér
skulum við leggja af stað í ímyndaða
gönguferð um garðinn og þræða breiðar
götur og mjóa stíga. Ferð okkar hefst við
Suðurgötu, við enda hellulagða stígsins
sem er norðarlega fyrir garðinum miðjum
og sker hann frá austri til vesturs. Horft
er til klukknaportsins. Fáeinum metrum
fyrir framan okkur, á vinstri hönd, er leið-
ið P 515. Á legsteini Jóns Hjaltalín land-
læknis (d. 1882) er ein þeirra lágmynda
sem aðeins eitt eintak er til af í garðinum.
Þetta er lágmyndin Hygea gefur slöngu
Asklepíosar næringu, öðru nafni Heil-
brigði. Hér hefur verið vel hugað að tákn-
fræðinni við frágang minningarmarks
Jóns og á þetta einkar vel við á legsteini
landlæknisins. Við snúum okkur til suð-
urs og göngum eftir stígnum meðfram
Suðurgötu. Nokkru áður en komið er að
gryfjunni syðst í garðinum er reitur K 515.
Þar eru tveir háir grágrýtisvarðar á vönd-
uðum sökkli. Á syðri steininum, sem er
yfir Jón Árnason bókavörð og þjóðsagna-
safnara (d. 1888), má sjá stóra útgáfu af
lágmyndinni Degi og á legsteini Katrínar
konu hans (d. 1895) er verkið Nótt. Þessi
verk mótaði Thorvaldsen í Róm árið 1815
og urðu þau eftirsóttustu verk hans. Það
er því ekki tilviljun að afsteypur þeirra
skuli vera algengustu lágmyndirnar á leg-
steinum hérlendis. Á verkinu Nótt líður
hin líkingarfulla (allegóríska) kventákn-
mynd næturinnar um himininn og í faðmi
hennar sofa börn hennar Svefn og Dauði.
Fugl næturinnar, uglan, hnitar hringi þar
um kring. Ef grannt er skoðað hefur kven-
myndin valmúaknappa í hárinu og eru
þeir algengt tákn svefnsins langa. Á mynd-
inni Degi líður Áróra um loftið og sáir rós-
um dagrenningar yfir jörðina. Vængjaður
hollvættur styður sig við væng hennar og
heldur á lofti kyndli sem lýsir um heim all-
an.
Við höldum nú göngu okkar áfram og
fetum stíginn þar til við komum að gryfj-
unni í suðausturhorni garðsins. Þar beygj-
um við til hægri og höldum um þrjátíu
metra til vesturs upp stíginn. Þar fáeinum
metrum frá okkur á hægri hönd er reitur-
inn I 404. Á lágum grásteini yfir Guðbjarti
Kristjánssyni (d. 1915) er lágmynd úr röð-
inni Æviskeiðin - árstíðirnar og sést hér
verkið Æska og sumar en verkið gerði
Thorvaldsen í Róm árið 1836. Þetta er
eina eintakið af þessu myndverki í garðin-
um. Nú færum við okkur aftur út á stíginn
og göngum hann til enda. Þegar við nálg-
umst kirkjugarðsvegginn við Ljósvalla-
götu er reitaröðin E 10 okkur á hægri
hönd. Þar beygjum við til hægri og göng-
um röðina á enda. Þar verður á vegi okkar
á vinstri hönd leiðið E 10 1. Á legsteinin-
um sem þar er undir grenitrénu er að
finna lágmyndina Spilandi englar sem
meistarinn gerði í Róm 1833. Héðan höld-
um við í norður að þjónustuhúsinu og það-
an suður hellulagða stíginn að enda sýn-
ingarreitsins. Hér bregðum við út af horn-
réttum leiðum og tökum stefnuna á stóra
minnisvarðann á franska reitnum. Um
fimmtán metra þaðan í hásuður er leg-
steinn Alexíusar Árnasonar lögregluþjóns
(d. 1883) og Sesselju konu hans (d. 1884)
á leiði N 115. Á legsteininum má sjá stóra
gerð af verkinu Jólafögnuður á himnum.
Myndin er algerlega óskemmd, vel föst í
Gunnar Bollason sagnfræðingur skrifar:
Lágmyndir Thorvaldsens í Hólavallagarði,
gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Hygea gefur slöngu Asklepíosar næringu
(Heilbrigði).
Nótt.
Dagur.
Æska og sumar.. Úr myndaröðinni
Æviskeiðin - árstíðirnar.
Spilandi englar.