Bautasteinn - 01.05.2005, Page 21

Bautasteinn - 01.05.2005, Page 21
21 Fré t t i r a f f ramkvæmdum Á sjómannadaginn, þann 6. júni 2004, var minningarreitur vígður við kirkjugarð- inn í Ólafsvík. Er hann helgaður minningu þeirra sem farist hafa við störf sín á sjó en eftir hið hörmulega sjóslys í desember 2001, þegar þrír menn frá Ólafsvík fórust með Svanborgu SH, var ákveðið að ráðast í framkvæmd þessa. Formaður sóknarnefndar, Baldvin Leif- ur Ívarsson, flutti ávarp við vígsluna og þar útskýrði hann undirbúningsferlið að gerð minningarreitsins. Sagði hann þar m.a. að lengi hefði verið þörf á stað helg- uðum minningu þeirra sem farist hefðu við störf sín til sjós, stað sem rúmaði minningar og sorg en einnig trú og von. Í samráði við Guðmund Rafn Sigurðsson, framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs, var haft samband við Pétur Jónsson lands- lagsarkitekt og í samvinnu við sóknar- prest og sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju hófu þeir undirbúning að framkvæmdum. Sigurður Guðmundsson listamaður hafði hannað minnisvarða sem þótti henta vel aðstæðum í Ólafsvík og var haft samband við hann. Fjármögnun gekk vel þar sem fengist hafði myndarlegt framlag frá fjár- laganefnd Alþingis. Auk þess gáfu fyrir- tæki, félagasamtök, bæjarfélagið og heimamenn rausnarlega til framkvæmd- anna. Baldvin Leifur þakkaði sérstaklega gott samstarf við forsvarsmenn bæjarfé- lagsins, starfsmenn Snæfellsbæjar og skrúðgarðyrkjufélagið Lystigarðar ehf. „Verkið og umgjörðin hér munu án efa laða til sín fjölda fólks,“ sagði Baldvin Leif- ur einnig. „Hér er staður til að heiðra minningu ástvina, reitur fyrir okkur öll; heimafólk, gesti og gangandi. Hér eru það minningarnar, listin og náttúran sem fá að tala - okkar er að njóta og láta hreyfa við okkur. Með því að prýða þetta svæði er líka verið að hefja á ný til virðingar hjarta bæjarins sem var, því eins og flestir kann- ast við þá stóð hér skammt frá gamla Ólafsvíkurkirkjan. Á grunni hennar er nú búið að setja upp söguskilti eins og sjá má“. Vígslubiskup, sr. Sigurður Sigurðarson og sóknarpresturinn, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson önnuðust vígsluathöfn að á- varpinu loknu. Eftir söng kirkjukórsins lögðu þau Krista Hrönn Héðinsdóttir og Erlingur Sveinn Sæbjörnsson blómsveig að steini til minningar um sjómennina sem fórust með Svanborgu SH. Að því loknu flutti höfundur minnisvarð- ans í minningarreitnum, Sigurður Guð- mundsson, ávarp þar sem hann skýrði frá tilurð verksins sem er úr graníti. Undir minnisvarðanum er graníthella, eins og tár í laginu. Listamaðurinn lagði áherslu á að hver og einn ætti að lesa sjálfur út úr verkinu. Sjálfur upplifði hann að þar sem stórt gat væri á steininum, sem hægt væri að horfa í gegn um, væri sem eitthvað vantaði í steininn: „að það hafi verið tekið úr honum stykki sem ætti þar heima“. En einnig að ef horft væri í gegnum steininn, þá sé útsýni út Breiðafjörðinn sem ný framtíð þeirra sem misst hefðu ástvin. Það gekk svo sannarlega eftir sem Bald- vin Leifur Ívarsson sagði við vígsluávarp sitt að verk Sigurðar og umgjörð minning- arreitsins myndu án efa laða til sín fjölda fólks því heimsóknir bæði heimamanna og ferðafólks að minningarreitnum voru gríðarlega margar s.l. sumar og reiturinn einn helsti viðkomustaður í Ólafsvík. Minningarreitur vígður við kirkjugarðinn í Ólafsvík

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.