Bautasteinn - 01.04.2003, Blaðsíða 19

Bautasteinn - 01.04.2003, Blaðsíða 19
Tæp tvö ár eru liðin frá því að KGSÍ opnaði vef sinn, gardur.is, þar sem er að finna legstaðaskrár víðsvegar af landinu. Strax í byrj- un voru viðbrögð við vefnum góð og heimsóknir margar þrátt fyrir að litlu sem engu hafi verið til- kostað við kynningu hans. Nú er svo komið að mun fleiri heim- sækja vefinn en bjartsýnustu spár gerðu nokkurn tíma ráð fyrir. Vel er fylgst með heimsóknafjölda og þegar mest hefur verið hafa 1.100 manns heimsótt vefinn á einum degi, en að jafnaði eru heimsóknir á dag um nokkur hundruð. Hátt í hundrað þúsund skráningar Margir hafa sent inn bréf og vilja bæta þær upplýsingar sem er að finna á vefn- um, t.d. upplýsingar um fæðingar- og dán- ardaga þeirra sem í legstaðaskránni eru. Einnig berast margar fyrirspurnir og þá sérstaklega um þá garða sem enn hafa ekki verið skráðir inn. Sífellt fleiri garðar bætast þó í hópinn og eru um 86.000 skráningar á vefnum eins og er, en þó er mikið verk óunnið. Upplýsingum um alla þá sem grafnir voru á árabilinu 2000 - 2002 hefur verið safnað saman og þær skráðar inn og því eru komnar inn einhverjar færslur úr flestum kirkjugörðum landsins. Um þessar mundir er verið að ræða við prófasta landsins um söfnun og skráningu dánarskýrslna inn á gardur.is og þegar slíkur samningur er kominn í gagnið munu allir sem látast frá þeim tíma verða færðir inn í legstaða- skrána. Ný þjónusta - ítarefni Í lok síðasta árs var þjónustan á vefnum aukin verulega þegar að- standendum látinna var boðið upp á að setja inn æviágrip og mynd við upplýsingar um skráða ein- staklinga á vefnum. Gerður var samningur við Morgunblaðið um aðgang að þeim minningargrein- um sem þar birtast, auk mynda. Er þar um að ræða svokallað ítar- efni, þ.e. dökka letrið fremst í minningargreinunum. Gjald fyrir æviágrip og mynd sem tengjast skráningu í legstaðaskrá er kr. 7.500 fyrir hverja færslu, en veittur er 25% afsláttur ef æviágrip hjóna eru skráð samtímis. Þessi þjónusta hefur hlotið góðar viðtökur og taka útfararþjónustur, Kirkjugarðar Reykjavíkur og Kirkjugarðar Akureyrar á móti beiðnum, auk þess sem hægt er að senda inn beiðni í gegnum vefinn gardur.is. 19 Aukin þjónusta á gardur.is Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma ásamt Reykjavíkurborg hafa efnt til samkeppni um hönn- un duftgarðs og mótun lands á Sóllandi í svo- nefndri Leynimýri í Öskjuhlíð. Keppnin snýst um mótun hugmyndar að framtíðar duftgarði á svæð- inu og jafnframt frágangi á náttúrlegu svæði sem er innan samkeppnissvæðisins. Samkeppnissvæð- ið er um 6 hektarar að stærð, allt innan svæðis sem þegar hefur verið deiliskipulagt. Rétt til þátttöku í keppninni hafa arkitektar, verkfræðingar og aðrir þeir sem hafa tilskilin leyfi til þess að leggja aðal- og hlutauppdrætti fyrir skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur. Hafi þátttakendur ekki tilskilin leyfi þurfa þeir að tryggja sér löggiltan samstarfsaðila. Skilafrestur tillagna er 23. maí nk. en keppnis- gögn fást afhent á skrifstofu Arkitektafélagsins, Engjateigi 9 í Reykjavík. Samkeppni um hönnun duftgarðs Óþekkt útför. Líkbíll Eyvindar Árnasonar. Frá útför Jóns Þorlákssonar borgarstjóra og fyrrum forsætisráðherra 1935. 18

x

Bautasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.