Bautasteinn - 01.04.2003, Blaðsíða 9
98
LEGSTEINAR
Í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval.
Yfir 45 ára reynsla.
Verið velkomin
til okkar, eða
fáið myndalista.
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,
SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
Norræn ráðstefna í Reykjavík
árið 2005
Fyrirhugað er að halda norræna ráðstefnu um málefni
kirkjugarða í Reykjavík í ágúst árið 2005. Ráðstefnan var
síðast haldin í Finnlandi og fóru fulltrúar frá Íslandi þang-
að eins og greint var frá í síðasta tölublaði Bautasteins.
Undirbúningur að ráðstefnunni hófst þegar að ráðstefn-
unni í Finnlandi lokinni og farið var í að taka frá hótelher-
bergi og ráðstefnusali. Sérstök nefnd var skipuð til að ann-
ast frumskipulag og ráða ráðstefnuhaldara. Ráðstefnur
sem þessar eru afar áhugaverðar og gagnlegar, enda
sækja þær stjórnendur kirkjugarða, garðyrkjufræðingar,
landslagsarkitektar, sölumenn, sem og framleiðendur
tækja og áhalda til notkunar í kirkjugörðum.
Búist er við að 4-500 manns sæki ráðstefnuna í Reykja-
vík og líklega munu drög að dagskrá liggja fyrir þegar
næsta tölublað Bautasteins kemur út. Stjórn NFKK (Nor-
disk Forbund for Kirkegårder og Krematorier) kemur til
landsins 23. apríl nk., en sú stjórn ákvarðar endanlega allt
er lýtur að dagskrá og framkvæmd ráðstefnunnar. Þór-
steinn Ragnarsson, forstjóri KGRP, er fulltrúi Íslands í
stjórninni. Einnig verða haldnir fundir í norrænum nefnd-
um, annars vegar í nefnd sem hefur með málefni kirkju-
garða að gera og á Þórsteinn sæti í henni fyrir hönd Ís-
lands og hins vegar í nefnd sem hefur með málefni bál-
stofa að gera, en þar á Sigurjón Jónasson, rekstrarstjóri
KGRP sæti.