Skák - 15.03.1981, Page 4
A. J. Miles:
Sosonko og Timman
efstir í Wijk aan Zee 1981
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 V.
1. Sosonko (Holland) i y2 y2 y2 i % y2 y2 1 % 1 % — 8
2. Timman (Holland) . 0 X 0 í y2 y2 í y2 V2 1 1 1 1 (1) 8
3. Sveshnikov (Sovétríkin) . y2 1 X y2 i y2 y2 % 1 y2 y2 0 y2 — 7
4. Taimanov (Sovétríkin) . % 0 % X í y2 y2 y2 1 % y2 % 1 (Vz) 7
5. Browne (Bandaríkin) . y2 y2 0 0 X i % y2 1 % y2 1 y2 — 6%
6. Gheorghiu (Rúmenía) . 0 % y2 y2 0 X y2 i y2 V2 1 y2 1 — 6%
7. Andersson (Sviþjóð) . y2 0 % % y2 % X % y2 0 y2 1 1 — 6
8. Sax (Ungyerjaland) . % y2 y2 y2 % 0 y2 X y2 y2 y2 1 y2 — 6
9. Ree (Hoiland) . y2 y2 0 0 0 y2 y2 % X 1 1 y2 % — 5%
10. Miles (Eng-land) . 0 0 y2 y2 % y2 í y2 0 X y2 % % — 5
11. Torre (Filippseyjar) . % 0 y2 y2 y2 0 % % 0 % X 1 0 — 4y2
12. Langeweg (Holland) . 0 0 í y2 0 y2 0 0 y2 y2 0 X 1 — 4
13. Unzicker (Vestur-Þýskaland) . . . y2 0 y2 0 y2 0 0 % y2 y2 1 0 X — 4
14. Adorjan (Ungverjaland) 0 y2 X y2
Alþjóðaskákmótið í Wijk aan
Zee, hið 43. í röðinni, hófst að
þessu sinni með all undarlegum
hætti. 1 fyrsta lagi mætti banda-
ríski stórmeistarinn W. Browne
sárþjáður til leiks og fór því
fram á frestun á fyrstu skákinni.
Er þetta venja sem ég álít afar
óeðlilega (hvað skeður ei and-
stæðingurinn er veikur þegar
skákin skal tefld?). I öðru lagi
töfðust þeir Andersson og Torre
á leið isinni frá skákmótinu í
Hastings og varð því einnig að
fresta skákum þeirra.
Af þeim fáu skákum sem sáu
dagsins ljós í fyrstu umferð bar
hæst viðureign þeirra Timm-
ans og Andras Adorjans, sem
lauk með sigri þess fyrrnefnda.
Eins og mörgum er kunnugt þá
er Adorjan ekki heilsuhraustasti
skákmaður í heimi á stundum,
og slæm byrjun í upphafi móts
virðist hafa vond áhrif á liann.
Aðstoðarmaður Adorjans hefur
jafnvel látið hafa það eftir sér
að Adorjan fái hita af tilhugs-
uninni einni saman. — En hvað
um það, við morgunverðarborð-
ið daginn eftir leið Adorjan út
af og annarri skák hans varð því
að fresta. í þriðju umferð mætti
hann til leiks og samdi jafntefli
eftir stutta viðureign, en í fjórðu
umferð mætti hann Browne sem
er mikill bardagamaður. Adorj-
an tókst að klára nokkra leiki
áður en svanasöngur hans hófst
með endurtekningu á yfirliði.
Er hér var komið höfðu móts-
haldarar fengið nóg og þrátt fyr-
ir mótmæli Adorjans ákváðu
þeir að keppninni væri betur
haldið áfram án þátttöku hans.
En snúum okkur nú aftur að
gangi mótsins. Það kom fljót-
lega í ljós að baráttan um efsta
sætið stóð milli hoilensku meist-
aranna Timmans og Sosonkos
annars vegar og sovésku meist-
aranna Taimanovs og Sveshni-
kovs hins vegar. Þess má geta
hér til gamans að forráðamenn
jólaskákmótsins í Hastings höfn-
uðu þátttöku Sveshnikovs á
þeirri forsendu að hann væri of
,,veikur“ skákmaður!
Sosonko hélt forystunni mest-
allan tímann og þegar tvær um-
ferðir voru eftir hafði hann auk-
ið forskot sitt upp í hálfan ann-
an vinning. — En þar eð hann
hefði átt að tefla við Adorjan í
síðustu umferð, þá átti hann
raunverulega aðeins eina skák
til góða. Þeirri skák lyktaði með
jafntefli og með því tryggði So-
sonko sér fyrsta sætið ásamt öðr-
um, en örugglega fyrstu verð-
laun.
Timman hafði hins vegar
66 SKÁK