Skák - 15.03.1981, Síða 26
jón L. Árnason:
Heimsmeistaramót unglinga '80
Sovéski s+órmeistarinn G. Kasparov sigraði með yfirburðum
Smáatriðin eru þessi: Heims-
meistaramót unglinga í skák
1980 fór fram í Dortmund í V-
Þýskalandi. Teflt var í glæsileg-
um sal í Westfallenpark. Kepp-
endur 58 frá 56 löndum. Tefld-
ar 13 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Stopp.
Aðeins eitt atriði skipti veru-
legu máli og varð til þess að
yfir heimsmeistaramótinu var að
þessu sinni óvenju mikil reisn.
Það var þátttaka hins heims-
fræga stórmeistara frá Bakú,
Garrí Kasparov. Óhætt er að
segja að Kasparov hafi teflt sig
beint inn að hjörtum áhorf-
enda. Auðvitað var ekki hægt að
búast við öðru af honum en
efsta sæti, en skiptar skoðanir
voru um hvernig hann færi að
því að ná ]>ví takmarki. Þeir
svartsýnustu töldu að tæknin
yrði látin sitja í fyrirrúmi og að
fyrirskipunum frá Moskvu um
að tefla varlega skyldi hlýtt út
í ystu æsar. — Aðrir töldu að
Kasparov færi ekki að kasta
skákstíl sínum fyrir róða út af
smámóti sem þessu. Þeir hinir
sömu voru fullvissir um að mál-
tæki mótsins yrði „fórna fyrst
og hugsa svo“, eins og Tal ráð-
lagði sveininum unga hér um
árið.
Og mótið var ekki fyrr hafið
en áhorfendur fengu smjörþef-
inn af kraftmikilli taflmennsku
Kasparov. Heimamenn höfðu
ekki séð þvílíka flugeldasýningu
78 SKÁK
síðan í heimsstyrjöldinni síðari,
þegar iðnaðarborgin Dortmund
var næstum jöfnuð við jörðu.
Og ekki virtist hann liafa mikið
fyrir hlutunum. Minnti á ljón
í búri er andstæðingurinn átti
leik. Þá óð hann um salinn og
lagði hornsteininn að næstu
leikfléttum. Það var ekki fyrr
en í seinni hluta mótsins sem
um fór að hægjast. Sigurinn gat
orðið enn stærri en 10J4 vinn-
ingur og D/2 vinnings forskot.
Þegar tvær umferðir voru eftir
hafði hann þegar tryggt sér sig-
urinn _ skákmaður í sérflokki.
Þá fór Kasparov að beina at-
hygli sinni að hraðskákinni,
enda var þar drjúgan skilding
að fá. Sérstaklega fór pyngja
Tempone varhluta af þeim við-
skiptum. Kasparov hafði iðu-
lega 3 mínútur gegn 5 mínútum
andstæðingsins og var það hon-
um feikinógur tími til þess að
stýra mönnum sínum í átt að
óvinakónginum og sleppa þeim
þar lausum. Styrkti þetta þann
orðróm um að Kasparov væri í
raun annar mesti hraðskák-
kappi Sovétríkjanna, einungis á
eftir Karpov. Læti voru oft mik-
il í hraðskákinni og var Kas-
parov í ];eim efnum enginn eft-
irbátur óstýrilátustu klukku-
berjara T. R. En minna en 3
mínútur vildi drengurinn ekki
hafa, þrátt fyrir fjölda áskorana.
„Ég verð að hafa tíma til að
hugsa!“ sagði hann.
Það væri röng lýsing á mótinu
að ræða eitthvað um aðra kepp-
endur en undrabarnið frá Bakú.
Ekki verður þó hjá því komist
að minnast á frammistöðu ofan-
ritaðs, sem kom til mótsins full-
ur bjartsýni, með Helga Ólafs-
son sér til fulltingis. Árangur-
inn var þó ekki í samræmi við
björtustu vonir og á afleit tafl-
mennska auðvitað mesta sök þar
á. Ég þverbraut nefnilega þá
grundvallarreglu nr. 1, sem gef-
in er upp í frægri norskri byrj-
endabók eftir Sigurd Heierstad
og hljóðar svo: Fremfor alt gjpr
ingen fejl!
Við sál mína eina verður þó
ekki að sakast. Ytri aðstæður
áttu sinn hlut að máli. Réttast
væri að fara um þær :iokkrum
orðum ef vera mætti öðrum
keppendum víti til varnaðar:
Við Helgi vorum seinir fyrir og
misstum af setningarathöfninni.
Þá voru flestir þátttakendur
mættir til leiks og á hótelinu
var nær fullskipað á bása. Marg-
ir kependur kusu að vera einir
í herbergi og því hafði jiýsk ná-
kvæmni ekki gert ráð fyrir. Við
Helgi máttum því gera okkur
að góðu duggunarlitla herberg-
iskytru á jarðhæð, staðsetta mitt
á milli móttökunnar og eldhúss-
ins. Útsýni yfir að bakdyrum,
þangað sem flutningabílarnir
komu í morgunsárið með skips-
farma af skemmdum kartöflum
og öðru ljúfmeti, sem kastað var