I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Blaðsíða 10
Gistihúsið í Bláa lóninu þar sem keppendur búa.
neyslu. Stærsti hluti hitakerfisins
nýtir vatnið aðeins einu sinni og kæl-
ir það niður í um það bil 40°C en við
það hitastig fer það í frárennsli hús-
anna og þaðan til sjávar. Áætlað er
að orkuþörf neytendanna næstu ár-
in verði um það bil 110 MW eða 350
kg/sek af heitu vatni, en það sam-
svarar hitaorku í 15 tonnum eða 100
tunnum af olíu á klst.
Dreifikerfi Hitaveitu Suðurnesja
hefur nú verið lagt í 7 sveitarfélög
auk Keflavíkurflugvallar. Saman-
lögð lengd alls dreifikerfis og að-
veitulagna í lok árs 1982 er um 290
km. Heita vatnið fer aðeins aðra
leiðina, eins og áður sagði, í sveitar-
félögin, en hinsvegar kemur það til
baka af flugvellinum.
Aðalaðveitulagnir frá Svartsengi
eru lagðar ofanjarðar og einangrað-
ar með steinull og síðan varðar með
álþynnum. Allar aðrar pípur eru
neðanjarðar frá bæjarmörkum þétt-
býliskjarna og verða þar af leiðandi
ekki til trafala- eða lýta. Heita vatnið
er sent út með mismunandi hitastigi.
Vatn sem fer til Grindavíkur fer út
83°C og þar með gert ráð fyrir að
það sé 80°C við bæjarmörk. Það
vatn, sem sent er til byggðanna norð-
an á skaganum fer út um 125°C að
dælustöð í Njarðvík, þar sem það er
blandað með „retúr“ vatni frá flug-
vellinum og síðan sent út 80°C til
notendanna. Almennt er reiknað
með að húseigandi sleppi vatninu
ekki heitara en 40°C út úr húsi sínu,
enda liggur leið þess til sjávar.
Með þessu móti er augljóst að
vatnstaka í Svartsengi verður mjög
mikil eða allt að 1200 tonnum á
klukkutíma, en ekki er talin hætta á
of mikilli vatnsnotkun þar sem
reiknað er með að meðal úrkoma
sem fellur á 15 km2 nægi til allrar
vatnsþarfar hitaveitunnar.
Háþrýstigufa er notuð til þess að
framleiða rafmagn með milligöngu
gufuhverfils. í dag eru þrír gufu-
Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar
hf. hóf starfsemi sína í 502 bílskúr
við Smáratún en árið 1976 flutti fyr-
irtækið í nýtt húsnæði við Iðavelli 6
í Keflavík, sem var stórt stökk eða
upp í 800 m2. Árið 1983 fór fram
gagnger breyting á vélakosti Tré-
smiðjunnar og húsnæðið stækkað í
2000 m2. Við þessa stækkun var
einnig aukið við vélakost fyrirtækis-
ins. Var gerður samningur við
danska fyrirtækið Sennersko A/S
um vélakaup, uppsetningu og sam-
stillingu á einni fullkomnustu fram-
leiðslulínu hérlendis. Gefur þessi nýi
vélakostur margvíslega möguleika til
framleiðslu á sviði innihurða og við-
arklæðninga, sem er sérsvið Tré-
smiðjunnar.
Við þessa breytingu er Trésmiðjan
orðin í öllu samkeppnisfær við inn-
flutta vöru hvað varðar verð og gæði,
einnig býr Trésmiðjan við svipaðari
vélakost og verksmiðjur í Skandi-*
navíu sem keppa um íslenskan mark-
að. Áætlað hefur verið að markaðs-
þörf á Islandi fyrir hurðir séu um 25
þúsund árlega og er það stefna fyrir-
tækisins að framleiða um 10 þúsund
hverflar í gangi og framleiða 8 MW
afl (1 + 1+6). Með þessu móti er
framleidd raforka í Svartsengi sem
gengur að miklum hluta út á orku-
kerfi Rarik.
Orkuverið í Svartsengi notar hins-
vegar ekki nema 1 til 2 MW en heild-
arframleiðslutími gufuhverflanna
getur auðveldlega verið 7000—8000
klst.
Snemmaárið 1981 gerðu psoriasis
sjúklingar tilraunir með böðun í
„Bláa lóninu“. Böð þessi virtust gefa
tímabundinn bata, enda er það í
samræmi við það sem þekkt er ann-
ars staðar frá að brennisteinsríkt
vatn hentar vel til lækninga á gigt,
exem, psoriasis.
Sá árangur, sem náðst hefur í
lækningu psoriasis, hefur orðið til-
efni til þess að gera reglubundnar til-
raunir með böðun sjúklinga í „Bláa
lóninu“.
Verði niðurstöður þeirra tilrauna í
samræmi við fyrri árangur, þá er
ekki að efa að í Svartsengi mun fyrr
en síðar rísa heilsuhæli.
hurðir á ári, sem er svipuð tala og
innfluttar hurðir. Stefnt er að því að
afgreiða hurðir af lager eins og inn-
flytjendur bjóða nú upp á. Með því
að hafa yfir að ráða svipaðri fram-
leiðslutækni og erlendir samkeppn-
isaðilar styrkist samkeppnisaðstað-
an til muna.
Öll framleiðsla fyrirtækisins er
merkt TRÉ-X sem er nýtt vörumerki
Trésmiðjunnar. Vörumerkið var tek-
ið í notkun haustið 1983. Um er að
ræða TRÉ-X viðarklæðningar jafnt
spónlagðar eða undir málningu, af-
greiddar af lager, einnig TRÉ-X inni-
hurðir spónlagðar eða massívar.
Massívar fulningahurðir er ein af
nýjungum fyrirtækisins, og njóta
þær mikilla vinsælda um þessar
mundir. Fulningahurðirnar eru
framleiddar úr aski og eik og einnig
er hægt að fá þær litaðar í samræmi
við óskir kaupenda. Hurðirnar eru
algjörlega massívar, bæði spjöld og
karmar.
TRÉ-X vörur eru fáanlegar i
helstu byggingavöruverslunum um
allt land.
Trésmiðja Þorvaldar
Ólafssonar hf.
10