I. alþjóðamótið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 27

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 27
ráðandi í skákheiminum og hvort sem menn lesa Biblíuna eða Kóran- inn, verða ELO-stigin ævinlega það sem skákmeistaranum er efst í huga þá hann sofnar og vaknar. Jæja, stigahæstur á þessu móti er ungur og glaðbeittur Bandaríkja- maður, Larry Christiansen að nafni. Hann er einn af þessum kómetum sem skotið hefur upp á stjörnuhimin skáklistarinnar. Hann hefur 2550 ELO-skákstig. Larry Chrístiansen. Þrívegis varð hann Bandaríkja- meistari unglinga og tvívegis hefur hann orðið Bandaríkjameistari, 1980 og 1983. Eigum við ekki að taka aðeins meira úr afrekaskránni. Larry varð efstur í Linares 1979, tveimur árum síðar varð hann að láta sér nægja að deila fyrsta sæti með heimsmeistaranum Karpov. Að venju eru skákmenn á heimsmæli- kvarða flakkandi um heim allan og næst sjáum við Larry Christiansen í 4—5. sæti í Mar del Plata í Argen- tínu, síðan komum við aftur á heimaslóðir og Larry sigrar á Opna bandaríska meistaramótinu 1983. Og þó, við verðum að hverfa lítið eitt aftur í tímann. Því veldur minni gamals manns, sem heitir Larry Christiansen, því að síðast á afreka- skrá sinni nefnir hann 3—5. sæti á bandaríska meistaramótinu 1981, fyrsta sæti i Malaga 1977, 2. sæti í Malaga 1976 og loks 2. sæti í heims- meistarakeppni unglinga 1975. Þá er búið að minnast tindanna í skákferli Larry Christiansen. Þetta dugar flestum. Þó má geta þess, að Larry er af dönskum ættum, glaður og léttur í framgöngu, kvenhollur og dregur ekki í efa að svo gæti farið að hann yrði hin nýja og bjarta von Bandaríkjamanna um heimsmeist- aratitilinn. Hann er hvass og harður sóknarskákmaður og líklegur til alls. Larry Christiansen skrifar einnig töluvert um skák og er meðritstjóri að víðlesnu skákblaði „Player’s Chess News“ sem gefið er út í Los Angeles í Kaliforníu. Enn er Bandaríkjamaður á ferð þegar rætt er um næsthæsta „stiga- manninn" í mótinu. Fjarri væri okk- ur að telja 2505 skákstig séra Lomb- ardy til stigamennsku. Hann er stór- meistari og reyndar margfaldur meistari. Fullu nafni heitir hann William James Lombardy, þótt flest- ir vinir hans kalli hann bara Bill. Hingað til lands hefur Bill Lom- bardy komið oftsinnis, ekki aðeins sem keppandi á mótum hér á landi, heldur einnig sem stoð og stytta hvorki meiri né minni manns en Robert James Fischer, betur þekktur sem Bobby Fischer, þegar hann tefldi um heimsmeistaratignina í skák í Laugardalshöll í Reykjavík ár- ið 1972, sællar minningar. Bill vann þar margs konar afrek með sinni þægilegu og notalegu framkomu. Hann var maður sátta og samlyndis, nægilega öflugur skák- maður til þess að Fischer virti hann viðlits, og meðal íslendinga var þessi maður hempunnar ljúfur vinur. Prestsskapinn hefur Lombardy látið lönd og leið, en er án efa sannur vinur móðurkirkjunnar engu að síð- ur. Við, breyzkir menn og lítt búnir til meinlætalifnaðar, fögnum því að hann kemur nú með hollenzka brúði sína, Louise, og verður hún honum án efa til trausts og halds í Bláa lön- inu. Bill Lombardy vakti strax á unga aldri mikla athygli í skákheiminum er hann varð heimsmeistari unglinga árið 1957 með 11 vinninga af 11 mögulegum! Geri aðrir betur. Lombardy fikraði sig áfram upp skákstigann. í því fræga móti, sem nú er fyrir bí, Lone Pine 1979, kom hann ósigraður hálfum vinningi á eftir sigurvegurunum Liberzon, Gligoric, Balashov og Nonu Gapr- indashvili. Þar bar hann sigurorð af Viktor Korchnoi og gerði jafntefli William Lombardy. við Gligoric og Balashov, en með hliðsjón af jafnteflisbaráttu Bala- shovs á nýafstöðnu Reykjavíkur- móti, er kannski ástæðulaust að minna á þetta jafntefli. Nú, en áfram með smjörið. í Caracas vorið 1982 varð Lombardy í 1—2. sæti, á Reykjavíkurmótinu 1978 varð hann ásamt öðrum í þriðja sæti og jafn þriðji með Romanishin í Mexíco-borg sama ár. Ógetið er þess, að William Lomþ- ardy stórmeistari hefur verið hægri hönd og hjálparhella John Collins í hinum eftirminnilegu skáksamskipt- um bandarískra unglinga og ís- lenzkra, stundum kallað Collin’s Kids Safari og í annan tíma eitthvað annað, en þau samskipti hafa verið báðum aðilum kær og hlutur Billa stór. Þá er röðin komin að fyrsta ís- lendingnum í skákstigaröðinni á þessu Grindavíkurmóti, Jóni L. Árnasyni. Hann er reyndar stiga- hæsti íslendingurinn þessa stundina í skák, 2500 ELO-stig. Hann er fyrsti íslenski skákmeistarinn sem kemst ofar að skákstigum en stórmeistar- arnir okkar, Friðrik Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson Jón hefur hrifið hug og hjarta ís- lenskra skákvina oft og mörgum sinnum. Þessi ljúfi og hugfelldi ung- lingur náði miklum og sterkum tök- um á þjóð sinni er hann varð heims- meistari unglinga árið 1977 í Frakk- landi suður. Skákferil Jóns er óþarfi að rekja miklu nánar. Skákmeistari 27

x

I. alþjóðamótið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.