I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 12
Nonni & Bubbi
Jónas Ragnarsson, eigandi Nonna & Bubba. Fljótur að tileinka sér
heim kaupmennskunnar.
Dagmar Jóhannsdóttir, deildarstjóri. Búin að vinna hjá Nonna &
Bubba 15 ár.
Við erum stoltir af því að geta
staðið undir nafninu Nonni & Bubbi
og sérstaklega ánægðir með það að
hafa fengið fyrrverandi eigendur til
að ljá fyrirtækinu enn um hríð
starfskrafta sína, því án þeirra hefði
þetta verið erfiður róður hjá mér,
sagði Jónas Ragnarsson, kaupmað-
ur, eigandi verslunarinnar Nonni &
Bubbi, Hringbraut 92, Keflavík.
Ég hóf verslunarstörf árið 1979
með versluninni Róm og verslaði þá
aðallega með gjafavörur. Um ára-
mótin ’81—82 keypti ég svo þessa
verslun. Þetta var gífurlega erfitt í
fyrstu, en ég hafði góða hjálp, sem
áður er getið, og auk þess prýðilegt
starfsfólk, svo að hlutirnir hafa
gengið allt að því snurðulaust þann
tima er ég hef annast reksturinn. Að
vísu er vinnudagurinn yfirleitt nokk-
uð langur, þ.e. 16 tímar á sólarhring
en við uppskerum árangur erfiðisins,
því hér hefur sala aukist með hverj-
um mánuði.
Til hagræðingar fyrir alla, við-
skiptavini jafnt sem starfsfólk,
stækkuðum við verslunina um 102
m2 og frekari stækkun er möguleg,
enda þótt slíkt bíði enn um sinn.
Með stækkuninni fengum við sérað-
stöðu fyrir kjötvinnslu okkar. Auk
þess að bjóða upp á besta fáanlega
hrámetið í kjötvörum, þá höfum við
einnig á boðstólum heitan mat, sem
framreiddur er í plastbökkum, afar
hentugum til að taka með sér og
halda vel heitu. Þessi þjónusta hefur
verið mjög vinsæl meðal viðskipta-
vinanna, enda þægilegt að grípa til
þegar illa stendur á heima fyrir.
Okkar frábæri matsveinn, Axel
Jónsson, sem nú er nýbúinn að opna
Glóðina, reyndist okkur mikil hjálp-
arhella við uppbyggingu og skipulag
kjötvinnslunnar.
Við erum á kafi í þessu bæði, kon-
an mín sér um bókhald, við höfum
skrifstofuaðstöðu og kaffistofu
starfsfólks hér uppi á 2. hæð í sama
húsi.
Þessi ár hafa verið reynslurík og
skemmtileg, sagði Jónas, ég hefði
ekki undir neinum kringumstæðum
viljað fara á mis við þetta. Ég vona
að fólk sjái sér áfram hag í áfram-
haldandi verslun hér, enda þótt
harðnandi samkeppni sé nú fyrir
höndum. Samkeppni er nauðsynleg
til þess að engum leyfist að brúka að-
stöðu sína til framboðs á lélegri vöru
og þjónustu, sem oft vill brenna við
þegar einokunaraðstaða er fyrir
hendi. Ég veit að fólkið vill hafa okk-
ur hérna. Við teljum að góð þjón-
usta sé nauðsynleg og aldrei sé gert
nógu vel við viðskiptavinina.
Víkurbær
Við Hafnargötu 21—23 í Keflavík
stendur Víkurbær, fyrstu vörumark-
aður Suðurnesjamanna. Þar ræður
ríkjum Guðjón Ómar Hauksson,
sem rak áður verslunina Kost við
Hringbraut, en keypti vörumarkað-
inn og 2. hæð hússins við Hafnar-
götuna fyrir tæpur tveimur árum.
Aðspurður sagði hann að allar sín-
ar vörur væru á vörumarkaðsverði,
þ.e. 10% afsláttur af allri álagningu
— þó ekki á landbúnaðarvörum, en
þar er álagningin 4—8%.
Um hverja helgi býður svo Víkur-
bær upp á sérstök helgartilboð, sem
felur í sér að 5—10 vörutegundir eru
seldar á sérstaklega hagstæðu verði.
Enda þótt hér sé um helgartilboð að
ræða þá má segja að slík tilboð gildi
þá um þær vörutegundir fram eftir
næstu viku.
Víkurþær leggur mikla áherslu á
vöruúrval, enda þótt slíkt sé oft erf-
iðleikum bundið, vegna þess hve
margir heildsalar eru illa staddir
fjárhagslega. Yfirleitt tekst okkur
samt að gera mjög hagstæð innkaup
og náum oft inn miklum birgðum
fyrir hækkunarskriður og veitum því
oft lægra vöruverð um langan tíma,
eftir að hækkanir eru um garð
gengnar, má hér til nefna t.d. kjöt-
vöru og kaffi.
Við erum stoltir af versluninni
hérna sagði Ómar. Aðeins er verslað
með fyrsta flokks ávexti og græn-
meti og hafa gæði vörunnar vakið
athygli og einnig má benda á að kjöt-
borðið okkar mun vera með því
besta sem gerist hérlendis. Við erum
með sérlærðan kjötiðnaðarmann
við vinnsluna sem annast alla um-
sjón með þeirri deild. Allar kjötvör-
ur eru vacumpakkaðar í kælinn.
Ómar var fyrstur til að breyta til
um opnunartíma hér um slóðir, svo
12