I. alþjóðamótið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 21

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 21
fiska eftir hugmyndum á sviði iðn- aðar. Við höfum annað slagið staðið fyrir kynningarherferðum til þess að vekja athygli almennings á því sem hér er að gerast, svo og þeim mögu- leikum sem Suðurnesin í heild bjóða upp á. Samvinnuverkefni sveitarfé- laganna í S.S.S. eru afar fjölþætt og get ég hér rétt drepið á stofnun Hita- veitu Suðurnesja, Brunavarnir Suð- urnesja, Iðnskóla Suðurnesja, sem síðar varð Fjölbrautaskóli Suður- nesja, Heilsugæslu Suðurnesja, byggðasafn Suðurnesja, stofnun til- raunasaltvinnslu á Reykjanesi og svona mætti lengi telja. Nýverið hefur verið stofnuð sam- göngumálanefnd, sem á að gera til- lögur um bættar samgöngur milli byggðarlaganna hér á Suðurnesjum. Ætti það m.a. að vera til að örva við- skipti. Auk þess er nú nefnd á vegum S.S.S. að vinna að ferðamálum, þ.e.a.s. hvernig ferðamannaiðnaður geti orðið okkur hér til framdráttar. Númer eitt hjá okkur eru samt orkumálin og þeir möguleikar sem sú orka sem hér er í iðrum jarðar get- ur veitt okkur. Möguleikarnir á stofnun Orkuveitu Suðurnesja fær- ast nú óðfluga nær og með slíkri stofnun myndi skapast traustari grunnur undir hugsanlegan iðnað af margvíslegu tagi. Við eigum von á því að ekki líði á löngu áður en þetta mál verður lagt fyrir Alþingi. Ég hef löngum verið þeirrar skoð- unar, að Suðurnesin ættu að vera eitt kjördæmi. Hagsmunir sveitarfélag- anna hérna eru um margt líkir, en fara ekki saman við hagsmuni ann- arra hluta kjördæmisins, nema að mjög takmörkuðu leyti. Það eru fá landsvæði á íslandi sem eru jafn landfræðilega og atvinnulega af- mörkuð sem stjórnsýslueining og kjördæmi og Suðurnes. Ég held ég ætti mér þann draum helstan, að hægt væri að segja um Suðurnesja- menn, að þar lifði fólk hvað á öðru — þá yrði hagsmunum Suðurnesja best borgið í dag. (Eiríkur Alexandersson, framkvstj. Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum). Finnbogi Björnsson, frkvstj. Ekkert svæði á öllu landinu á sér betri vaxtarskilyrði en Suðurnes. Það er ljóst að þá orku sem við eig- um hér á Suðurnesjum, verðum við að nota til atvinnuuppbyggingar, því fyrr, því betra. Sjóefnavinnslan er bara einn þáttur, getur að vísu orðið mjög snar þáttur í þessari uppbygg- ingu. Þar er um að ræða fram- kvæmdir sem ekki eiga sér hliðstæðu annars staðar. Nu stendur yfir bygg- ing byrjunaráfanga sjóefnavinnslu, sem miðar að 40—80.000 tonna salt- framleiðslu á ári. Þessi byrjunar- áfangi er byggður sem fyrsti hluti hins varanlega fyrirtækis. Stefna Sjóefnavinnslunnar hf. er sú að koma upp margþættri efna- vinnslu, sem grundvallast mest- megnis á því sem úr jörðu má fá á Reykjanesi. Þannig er ætlunin að framleiða minnst 40.000 tonn af ýmsum salttegundum, minnst 4000 tonn af kalí og 9000 tonn af kalsíum- klóríði. Ýmis konar önnur fram- leiðsla er á döfinni. Ætlunin er að framkvæma þetta í beinu framhaldi af því sem nú er verið að gera. Ég hef látið í ljósi þá skoðun mína, að i framtíðinni sé vel hugsan- legt að um 950 manns geti byggt af- komu sína að einhverju eða öllu leyti í tengslum við þær mörgu hliðar- greinar sem kunna að skapast með þeim framkvæmdum sem nú eru í gangi í tengslum við Sjóefnavinnsl- una. Þetta gerist hvorki í dag né á morgum, en möguleikinn er fyrir hendi og möguleikarnir eru næsta ótæmandi. Suðurnesjamenn eru nú að vakna við það að sjórinn er ekki ótæmandi gullnáma. Góðir framsýnir menn hafa á síðustu áratugum spáð í hina ýmsu framkvæmdamöguleika hér suður með sjó, en fengið lítinn hljómgrunn fyrr en nú, þar eð komið hefur í ljós að sjórinn, atvinnuupp- sprettan, er ekki ótæmandi. Ég hef tröllatrú á möguleikum Suðurnesja, og þá þar sem sjávarút- vegur og iðnaður styðja hvort annað. í skjóli þess munu svo verslun og þjónusta dafna. Á sumum sviðum eigum við litla samleið með öðrum hlutum Reykjaneskjördæmis og því er það skoðun mín að gera ætti Suð- urnesin að sér kjördæmi sunnan Hafnarfjarðar. Það mundi auka á samkennd Suðurnesjamanna, sem á stundum mætti vera meira af. Sam- starf er ekki tilfinningasemi heldur hagfræðileg nauðsyn. (Finnbogi Björnsson, frkvstj.). Frá Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi. 21

x

I. alþjóðamótið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.