I. alþjóðamótið


I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Side 22

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Side 22
Fiskur undir steini Oft hefur því verið haldið fram að Grindvíkingar væru menningar- snauðir og Iifðu og hrærðust í fiskin- um, en það er öðru nær. Þeir hafa löngum verið félagslyndir og þar hafa starfað og starfa enn hin ýmsu félög, m.a. kvenfélagið sem var stofnað 1923. Hefur það ávallt unnið ötullega að ýmsum félags- og menn- ingarmálum. Árið 1930 reisti það veglegt samkomuhús sem var félags- miðstöð Grindvíkinga allt til ársins 1972, er Félagsheimilið Festi var tek- ið í notkun. Kvenfélagið er nú eign- araðili að Festi en kvenfélagshúsið er notað í þágu Tónlistarskólans, og starfsemi Leikfélags Grindavíkur fer einnig þar fram. í Grindavík starfa félög stjórnmálaflokka, Lions- og Kiwanisklúbbar, JC-félag, Rauða- krossdeild og fleiri félög. Einna öflugast þeirra er ung- mennafélagið sem leggur aðallega stund á knattspyrnu og körfuknatt- leik, þar sem Grindvíkingar hafa náð góðum árangri, en aðstæður hafa mjög háð þeim til þessa. Von er þó að úr rætist með nýju íþróttahúsi Hin svipmikla kirkja Grindavíkur. sem verið er að byggja. Og grasvöllur mun vera á framtíðaráætluninni fyr- ir knattspyrnumennina. Þá hafa Grindvíkingar átt góða fjölbragða- glímumenn (júdó). Grindavík er aðili að sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs og það minnir okkur einmitt á að Sigvaldi Kaldalóns læknir og tónskáld, bjó lengi í Grindavík. Heilsugæslustöð Suðurnesja sem hefur aðsetur í Keflavík, hefur útibú í Grindavík. Landssímastöð hefur verið í Grinda- vík frá 1917 — sjálfvirk stöð frá 1960 og póstafgreiðsla frá 1956 en bréf- hirðing hófst þar 1892. Útibú Lands- banka íslands hefur starfað frá 1972. Bókasafn hefur aðsetur í Festi. Pústþjónustan Nýsmíöi og undirsetningar Eigum á lager pústkerfi í flestar bifreiöar Pústþjónustan Fitjabraut 2 — Njarðvík — Sími 1227 22

x

I. alþjóðamótið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.