I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 29
Jón L. Árnason.
Taflfélags Reykjavíkur 1976, aðeins
15 ára að aldri. Ári síðar íslands-
meistari. Alþjóðlegur meistari 1979
og svona má lengi telja. Jón Loftur
hlaut slæma skelli í upphafi Búnað-
arbankamótsins, en lét það ekki á sig
fá. Hélt sínu striki og sýndi þann
baráttuvilja sem með honum býr. í
Reykjavíkurmótinu skorti aðeins
herzlumuninn. Jón L. dró til baka
sængina á móti Piu og með örlitlum
tilþrifum hefði hann orðið einn
hinna efstu. Þeir eiga það sameigin-
legt, Margeir og Jón L., að báðir eru
menn vilja og athafna, og láta sér
ekki nægja skákina. Báðir stunda
háskólanám með góðum árangri og
ætla sér frama á þeim vettvangi.
Nú, þegar þeir snjöllu skákmeist-
arar Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson, eru í blossum sviðsljósa
fjölmiðlanna, er ekki úr vegi að
minna á Birger Ruud, einn frægasta
skíðakappa Noregs fyrr á tíð. Hann
vann hvern sigurinn á fætur öðrum,
og þegar haft var á orði að hann væri
farinn að dala, svaraði hann að
bragði: „Ég á bróður heima“ Það
voru orð að sönnu. Bræður hans
urðu heimsfrægir, einnig. Bræður
Helga og Jóhanns í dag eru að sjálf-
sögðu Jón Loftur og Margeir.
Knezevic, Milorad, heitir sá næsti.
Ættaður og uppvaxinn í Júgóslavíu,
því mikla móðurlandi skákarinnar á
einn og annan veg. Þeir tefla vel,
þessir Slavar. Hann hefur 2450 ELO-
stig sem þykir gott. Stórmeistari að
nafnbót, harðskeyttur og traustur
skákmaður, en ekki að sama skapi
beinskeyttur. Honum lætur betur að
verja en sækja, jafnteflin eru vinsæl
við hans borð. Engu að síður er mað-
urinn stórmeistari og ekki fyrir
fjandann sjálfan að vita upp á hverju
hann gæti tekið hér í Bláa lóninu.
Knezevic er hljóður og hæglátur
maður, lætur ekki mikið yfir sér, en
kemst þótt hægt fari. Á Búnaðar-
bankamótinu og Reykjavíkurmót-
inu sýndi hann ekki vígtennur í skák-
inni, en blóðhitinn fékk sína útrás
þótt á annan veg væri. Landar hans
hafa oftsinnis teflt á mótum hérlend-
is og getið sér gott orð, ekki aðeins
sem skákmenn heldur einnig sem
góðir fulltrúar sinnar þjóðar. Þess-
Vincent McCambrídge.
um línum fylgja hlýjar óskir til sam-
nefnara júgóslavneskra skákmanna,
stórmeistara Svetozar Gligoric.
Nú kemur fram á sjónarsviðið
ungur og upprennandi Bandaríkja-
maður, Vincent McCambridge að
nafni. 2465 ELO-stig hefur piltur-
inn, 23 ára að aldri. Hann er ekki
þekktur sem einn af þeim stóru, en
fyrir þá sem fylgjast með skák og
lesa skáktímarit, er Vince engin
uppákoma. Hann hefur djarfan og
harðan sóknarstíl og ætlar sér stóra
hluti í skákinni.
Vincent McCambridge varð al-
þjóðlegur meistari 1982. Hann varð
sigurvegari í Opnu Meistarakeppn-
inni bandarísku 1983 ásamt Nick
deFirmian, en ofar tveimur köppum
sem voru á Reykjavikurmótinu,
þeim Christiansen og Shamkovic.
Eins og margir ungir skákmeistar-
ar vill McCambridge láta ljós sitt
skína. Hann hefur þegar ritað bók
um landa sinn Yasser Seirawan stór-
meistara og vinnur um þessar mund-
ir að bók með bandaríska stórmeist-
aranum Jim Tarjan um kóngsind-
verjann fyrir Batsfordútgáfuna.
Vincent McCambridge hafði vað-
ið fyrir neðan sig. Hann lauk há-
skólaprófi í hagfræði frá hinum virta
háskóla, California University í
Berkley, árið 1982. Hann hefur náð
frábærum afrekum í skákinni á ýms-
um mótum og skrifar mikið um
skák, m.a. í Player’s News og
bandaríska skáktímaritið Chess
Life. Hann hefur verið atvinnumað-
ur í skák frá ársbyrjun 1983 og býr í
London, Englandi.
Þá er komið að meisturum meist-
aranna þessa stundina, sigurvegur-
unum í Reykjavíkurmótinu, þeim
Helga Ólafssyni með 2445 stig og J ó-
hanni Hjartarsyni.
Báðir þessir kappar hafa verið í
fremstu röð íslenzkra skákmanna
nokkur undanfarin ár, Helgi öllu
lengur fyrir aldurs sakir. Hann hefur
lengi verið einn öflugasti skákmeist-
arinn í liði ungu mannanna, en Helgi
er maður sveiflunnar. Hann er geysi-
lega harður keppnismaður og sókn-
djarfur og fáir standast honum
snúning í harðri stöðubaráttu. Þó
hefur komið fyrir, að sveiflan hefur
verið niður á við og Helga hefur ekki
fundizt ástæða til að sýna sitt besta.
Helgi hefur ekki teflt mikið að
undanförnu. Hann hefur tekið sér
hvíld frá sterkum mótum, en á hinn
29